Ljósmæðrablaðið - 01.12.2014, Blaðsíða 14
14 Ljósmæðrablaðið - desember 2014
ÚTDRÁTTUR
Eftirlit með blóðsykri er mikilvægt fyrst eftir fæðingu hjá ákveðnum
hópum nýbura. Hins vegar greinir fræðimenn á um skilgreiningu
of lágs blóðsykurs hjá nýburum og hver gildi hans þurfi að vera til
að tryggja eðlilega líkamsstarfsemi. Óvissa einkennir því ákvarð-
anatöku um eftirlit með blóðsykri nýbura: hverja eigi að mæla og
hvenær og við hvaða gildi blóðsykurs eigi að hefja íhlutun.
Algengi lágs blóðsykurs hjá nýburum hér á landi er ekki þekkt.
Markmið þessarar rannsóknar var því að greina það og bera saman
við niðurstöður erlendra rannsókna og kanna hvernig staðið sé að
eftirliti með blóðsykri nýbura.
Rannsóknin var lýsandi, afturskyggn og upplýsinga aflað úr
sjúkraskrám. Almennar upplýsingar um börnin voru skráðar ásamt
blóðsykursgildum og framkvæmd eftirlits með þeim.
Í úrtaki voru þeir nýburar sem gengist höfðu undir eftirlit með
blóðsykri fyrstu þrjá sólarhringana eftir fæðingu á Landspítala,
alls 955 af 3468 sem þar fæddust árið 2010. Meðgöngulengdin var
frá 24–42 vikum og rúm 77% voru fullburða (> 37 vikur). Meðal
fæðingarþyngd var 3273 g (530–5280 g), 32,5% lögðust inn á
nýburagjörgæslu og 30,2% komu þangað í stutt eftirlit.
Algengi lágs blóðsykurs (< 2,2 mmól/L) reyndist vera 21,2%
í heild en 19,1% meðal fullburða nýbura. Fyrsta mæling var
gerð innan klukkustundar frá fæðingu hjá 60% úrtaks. Blóðsykur
var mældur einu sinni hjá 16,4% þeirra, en miðgildið var fjórar
mælingar fyrstu þrjá sólarhringana. Rúmlega 55% mældust með
lægsta gildi innan tveggja klukkustunda frá fæðingu. Síðfyrirburar,
þungburar og börn mæðra með insúlínmeðhöndlaða sykursýki á
meðgöngu reyndust marktækt líklegri til að mælast með lágan blóð-
sykur eftir fæðingu en aðrir nýburar í úrtaki.
Algengi lágs blóðsykurs var hátt samanborið við niðurstöður
erlendra rannsókna. Það skýrist að hluta til af samsetningu úrtaks,
þar sem ekki var einungis um heilbrigða fullburða nýbura að ræða.
Eftirlit með blóðsykri reyndist ómarkvisst, stór hluti mælinga var
innan klukkustundar frá fæðingu og því má ætla að erfitt hafi verið
að greina á milli óeðlilegrar blóðsykurslækkunar og eðlilegrar
aðlögunar nýburans að lífi utan móðurkviðar.
Lykilorð: Blóðsykurslækkun, nýburar, áhættuþættir, blóðsykur-
seftirlit.
ABSTRACT
The monitoring of blood glucose during the first hours is import-
ant in specific groups of newborn infants. However, there is no
consensus on how to define hypoglycemia and which levels of
blood glucose are needed to meet metabolic demands. Therefore
uncertainty characterizes decisionmaking in the monitoring and
management of blood glucose: who should be measured and when,
and at which levels interventions should take place.
The prevalence of hypoglycemia in Iceland is not known. Thus
the aim of this study was to determine the one year prevalence of
hypoglycemia of newborns at Landspítali, the National Hospital of
Iceland, and compare with findings from other countries as well as
to evaluate the quality of blood glucose monitoring.
Lágur blóðsykur hjá nýburum:
algengi, áhættuþættir og blóðsykurseftirlit
R I T R Ý N D G R E I N
RANNSÓKNFyrirspurnir:
Elín Ögmundsdóttir
elinogm@landspitali.is
Þórður Þórkelsson 1, 2, 4
Barnalæknir
Guðrún Kristjánsdóttir 3
Hjúkrunarfræðingur
Elín Ögmundsdóttir 1, 2
Hjúkrunarfræðingur, M.Sc
1. Vökudeild Barnaspítala Hringsins Landspítala, 2. Kvenna- og barnasvið Landspítala, 3. Hjúkrunarfræðideild Háskóla Íslands, 4. Læknadeild Háskóla Íslands