Ljósmæðrablaðið - 01.12.2014, Qupperneq 46
46 Ljósmæðrablaðið - desember 2014
AÐRAR MEÐFERÐIR ERU:
Nálastungur á meðgöngu
Ljósmæðurnar Súsanna Knútsdóttir og Margrét Unnur Sigtryggsdóttir
hafa sinnt nálastungum á meðgöngu hjá fyrirtækinu þar sem ýmsir
meðferðarmöguleikar eru í boði, svo sem við ógleði, grindarverkjum og
undirbúningsnálar svo eitthvað sé nefnt.
Nuddnámskeið fyrir verðandi foreldra hefur verið í höndum
Margrétar Unnar Sigtryggsdóttur ljósmóður þar sem hún hefur kennt
nuddtækni til notkunar í fæðingu og hvernig hægt sé að nudda ýmis
álagssvæði á meðgöngu til að bæta líðan kvenna.
Brjóstagjafafræðsla er nýhafin hjá fyrirtækinu og er Ingibjörg Eiríks-
dóttir, ljósmóðir og brjóstaráðgjafi, með þá fræðslu. Ingibjörgu þarf vart
að kynna enda starfað lengi sem ljósmóðir og er hafsjór af fróðleik um
allt sem tengist meðgöngu og brjóstagjöf.
Nýburarnir eru einnig velkomnir í 9 mánuði en Elsa Ruth Gylfa-
dóttir ljósmóðir er með námskeið fyrir nýbakaða foreldra sem vilja læra
grunntækni í ungbarnanuddi og læra þar skref fyrir skref að nudda nýbu-
rann. Námskeiðið nefnir hún Stubbanudd en Elsa er viðurkenndur leið-
beinandi í ungbarnanuddi frá alþjóðlegum samtökum ungbarnanudds,
International Association of Infant Massage.
Hypnobirth námskeiðið þarf vart að kynna en Kristbjörg Magnús-
dóttir ljósmóðir hefur undanfarin ár kennt sjálfsdáleiðslutækni í fæðingu.
Í stuttu máli felst í þessari aðferð að barnshafandi konur nái valdi á
hugsunum sínum sem gerir þeim kleift að takast á við fæðingu án þess
að sársauki, hræðsla og vanmáttur yfirskyggi upplifun þeirra. Upphafs-
maður aðferðarinnar er Marie F. Mongan dáleiðslusérfræðingur sem er
mörgum íslenskum ljósmæðrum að góðu kunn.
Áhugavert námskeið er að hefjast hjá 9 mánuðum sem ber heitið
„Ertu að verða foreldri“. Námskeiðið er fyrir verðandi foreldra og er
ætlað að hjálpa þeim að undirbúa sig fyrir þær breytingar sem verða á
parasambandinu við að verða foreldrar. Það eru þau Ástþóra Kristins-
dóttir ljósmóðir og Ólafur Grétar Gunnarson fjölskyldu- og hjónaráðgjafi
sem hafa umsjón með námskeiðinu en þau eru bæði Gotttman-leiðbein-
endur. Dr. Julie Gottman og dr. John Gottman eru í forystusveit fræði-
manna og fjölskylduráðgjafa en rannsóknarniðurstöður þeirra hjóna hafa
sýnt að með því að undirbúa pör fyrir foreldrahlutverkið skapist einstakt
tækifæri til að hafa jákvæð áhrif á parasambandið og velferð barnsins.
Sálfræðiþjónusta
Við erum einnig heppnar að hafa fengið til liðs við okkur sálfræðinginn
Hrefnu Hrund Pétursdóttur en hún hefur unnið mikið með konur á
meðgöngu og eftir fæðingu. Þunglyndi og kvíði á meðgöngu er vangreint
vandamál af því að oft skammast konur sín fyrir hvernig þeim líður.
Oftast er talað um meðgönguna sem tíma hamingju en því miður þá er
það ekki raunveruleikinn fyrir allar konur. Þess vegna er mikilvægt að
við ljósmæður sem verðum varar við þannig líðan hjá konu á meðgöngu
eða í sængurlegu getum vísað þeim sem á þurfa að halda áfram til
annarra fagstétta.
Nuddmeðferðir 9 mánaða eru vinsælar og eru margvíslegar nuddmeð-
ferðir í boði en ber þar fyrst að nefna meðgöngunuddið. Þar er tekið tillit
til þarfa hverrar konu fyrir sig en algengustu álagssvæði á meðgöngu eru
axlir, brjóstbak, mjóbak, svæði mjaðmagrindar og kálfa. Nuddið er þétt
og losandi. Boðið er upp á sérstakan meðgöngubekk sem gerir barnshaf-
andi konu kleift að liggja á maganum með stuðning undir kúluna sem
hentar vel alla meðgönguna. Allir nuddarar hjá 9 mánuðum hafa lokið
fullgildu nuddnámi og eru meðlimir í Félagi íslenskra heilsunuddara.
Nuddararnir starfa sem sjálfstæðir verktakar og hafa orðið sína föstu
kúnna sem koma aftur og aftur, enda er ekkert betra en að leyfa sér að
fara í gott nudd endrum og sinnum.
Grindarbotnsþjálfun á meðgöngu
Fyrirhugað var að vera með áhugavert námskeið fyrir konur til að ná
tökum á grindarbotnsæfingum á meðgöngu en það námskeið hefur enn
ekki náð fótfestu. Hvort það sé vegna þess að grindarbotninn sé ekki það
svæði sem konur hugi að á meðgöngunni skal ósagt látið en vitað er að
með því að stunda grindarbotnsæfingar á meðgöngu þá er stuðlað að því
að auðveldara sé að ná upp fyrri styrk og fyrirbyggja ýmist vandamál,
eins og þvagleka eftir fæðingu. Leiðbeinandi þessa námskeiðs er Guðrún
Magnúsdóttir sjúkraþjálfari.
Jóga
Hatha-jóga er tvisvar í viku þar sem lögð er áhersla á hreyfingu,
hugleiðslu, öndun og slökun. Þetta eru jógatímar á persónulegum
nótum í litlum hópi en mest geta 12 verið saman í hóp. Sigríður Herdís
Ásgeirsdóttir sér um jógakennsluna sem kennd hefur verið á mánu-
dögum og fimmtudögum.
Eins og sjá má þá veitir fyrirtækið 9 mánuðir – ljósmæðrasetur
margvíslega þjónustu þar sem þjónusta ljósmæðra er í aðalhlutverki og
viljum við gjarnan auka þjónustu þeirra enn frekar. Hvað framtíðin ber
í skauti sér verður tíminn að leiða í ljós en hugmyndirnar eru margar,
og eins og segir í inngangi greinarinnar þá eigum við enn stóra drauma
sem vonandi eiga eftir að rætast. Með góðri samvinnu og stuðningi
ljósmæðra væri hægt að auka hlut ljósmæðra í sjálfstæðum rekstri og
þá ætti draumurinn um samfellda og hagkvæma þjónustu til verðandi
foreldra að verða að veruleika. Við ljúkum því þessari umfjöllun okkar
á svipuðum nótum og í lokaverkefni okkar forðum daga en þá töldum
við rétt að konur ættu að hafa val um að nýta sér hagkvæma barn-
eignarþjónustu sem væri í höndum ljósmæðra. Það væri efnahagslega
hagkvæmt fyrir þjóðfélagið allt og fæli í sér persónulegan ávinning
fyrir konur og fjölskyldur þeirra.
Við erum sama sinnis í dag.
Með bestu kveðju,
Elín Arna Gunnarsdóttir og Guðrún I. Gunnlaugsdóttir
Ljósmæður
Kristbjörk kynnti ilmkjarnaolíur.