Ljósmæðrablaðið - 01.12.2014, Qupperneq 51
51Ljósmæðrablaðið - desember 2014
Ævintýrið er byrjað. Ljósmóðirin er komin út á flugvöll með tösk-
una í eftirdragi. Tilfinningin er margslungin. Danska afleysingaskrif-
stofan er búin að vinna sína vinnu og gera allt klárt. Pappírarnir eru
meðferðis, flugmiðinn, leiðarlýsing á búverustaðinn, sjúkrahúsið og
hvaða samgöngumiðla á að nota. Netnámskeiðum lokið ef svo ber
undir. Skrifstofan búin að leggja áherslu á að við séum að koma til
að hjálpa til og sannarlega líður manni eins og að maður sé að gera
mikið góðverk. Hjálpa norskum ljósmæðrum að komast í frí og við
sem komum með þessum hætti erum því mikilvægur hlekkur í heil-
brigðiskerfinu. Vellíðan rennur um æðarnar þegar flugfreyjan kemur
og býður manni kaffi eða te. Þetta er vinnuferð og gamanið að byrja.
Ljósmóðirin er mætt á Gardemoen og horfir í kringum sig. Langar
til að hrópa: „Hér er ég, ég er komin“. Bíður spennt eftir töskunni og
skondrast af stað. Frábærar leiðarlýsingar hjá skrifstofunni koma sér
núna vel. Nánast tímasettar áætlunarferðir á blaði með fluglestinni,
staðarlestinni, strætó eða jafnvel leigubíl er fylgt eftir og allt gengur
smurt. Komin á leiðarenda. Nú þarf að finna búsetustaðinn og lykl-
ana að honum. Spennt að sjá hvernig hann lítur út. Er þetta eitthvert
hreysi, fín stúdíóíbúð, herbergi með aðgangi að eldhúsi og stofu?
Hvernig lítur þetta út? Það reyndist svo allur gangur á því en skrif-
stofan leggur mikið uppúr því að þokkalega vel fari um alla. Rjóð í
kinnum og með öran hjartslátt fer ljósmóðirin þreytt í háttinn eftir
mislangt og stressandi ferðalag. Meira en tilbúin að takast á við verk-
efni fyrstu vaktarinnar. Hugsanirnar hringsóla í kollinum. Taka jafn-
vel völdin og svefninn fer út og suður. Hvernig verður þetta, hverju
mæti ég, hvernig verður tekið á móti mér? Vá hvað deildin hlýtur
samt að vera glöð að fá mig. Nú fara norsku ljósmæðurnar að tikka
í sumarfrí. Þökk sé okkur sem leysum þær af. Við erum að koma og
bjarga þeim.
Þegar fyrsti dagurinn rennur upp fær maður á tilfinninguna
að maður sé í ratleik. Þegar búið er að leita uppi sjúkrahúsið og
fæðingardeildina fer glansinn aðeins að mattast af björgunarstör-
funum. Áfram gengur ratleikurinn. Það er leitin að vinnufötunum,
aðgangsorðum, auðkenniskortum, myndatökum og svo er að slípa til
norskuna. Engin miskunn, nú er allt á norsku og danskan/sænskan/
norskan hjá íslensku ljósmóðurinni þarf að smella. Þegar þessari
yfirferð er lokið er ljósmóðirin nokkuð ánægð með sig. Eftir að vera
komin í fötin með auðkenniskortið og myndina og aðgangsorðin sem
Ævintýraþrá – tilbreyting –
húsmæðraorlof – peningar
H U G L E I Ð I N G A R
Auðkenniskort héðan og þaðan.
Stella og Guðrún Fema á hlaupum.