Litli Bergþór - 01.07.2017, Page 31
Litli-Bergþór 31
---
Jafnvel raforka, þótt ágæt sé, vegur ekki á móti því öryggi, sem trygg vegasambönd veita. Ef
Teitur Eyjólfsson væri búinn að annast ferju á Hvítá eða öðru álíka vatni í nokkur ár, hygg ég að
skoðun hans á brúarmálinu myndi allt önnur en skrif hans benda til.
Auðvitað má ímynda sér, með því að fram kemur opinber klofningur í uppsveitunum í viðhorfi til
brúarsmíðinnar, að dregið hafi úr slagkraftinum sem kominn var á málið og framkvæmdir raunar hafnar.
Þetta er gömul saga og ný: þar sem okkur hefur auðnast að standa saman að verkefnum hefur vel gengið.
Hinsvegar má tilgreina ófá góð verkefni sem hafa fallið á skorti á nægilegri samstöðu uppsveitamanna.
Síðari hluti þessarar greinar mun birtast í næsta tölublaði.
Þegar hér var komið voru enn fimm ár þar til brúin var opnuð fyrir almenna umferð, en ýmislegt varð
til að tefja framkvæmdina. Með greininni verða allmargar myndir sem voru teknar þegar brúarsmíðin
var á lokametrunum.
Verslun og bensínafgreiðsla
Opið 9:00 til 21:00
Allar almennar matvörur og olíur