Dagblaðið Vísir - DV - 30.11.2018, Side 4

Dagblaðið Vísir - DV - 30.11.2018, Side 4
4 30 nóvember 2018FRÉTTIR U m fátt hefur verið meira rætt í þjóðfélaginu undan- farinn sólarhring en upp- tökur af fundi sex þing- manna á barnum Klaustrinu við Kirkjutorg. Upptökurnar eru sögu- legar að mörgu leyti því aldrei fyrr hafa Íslendingar fengið að líta inn í reykfyllt bakherbergi stjórnmál- anna með öðrum eins hætti. Á mánudagskvöldi sátu þing- mennirnir að sumbli og létu frá sér ummæli sem eru kjörnum fulltrú- um ekki sæmandi. Nokkrum dög- um síðar barst póstur á ritstjórnir þriggja fjölmiðla; DV, Stundarinn- ar og Kvennablaðsins. Í póstinum var hlekkur á vefsíðu þar sem hægt var að nálgast sjö upptökur af sam- ræðum þingmannanna, mynd af þeim á vettvangi sem og mynd- band af þeim að yfirgefa barinn. Sendandinn kallaði sig Marvin auk þess sem númerið 42 kom fyr- ir í tölvupóstfanginu, hvort tveggja tilvísun í skáldsöguna Hitchhiker’s Guide to the Galaxy. Staddur á barnum fyrir tilviljun Fyrstu fréttir af málinu vöktu gríðarleg viðbrögð og það gerðu viðbrögð Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar, formanns Mið- flokksins og fyrrverandi forsætis- ráðherra, einnig. Sigmundur sagði að málið væri afar alvarlegt því ekki kæmi annað til greina en „að brotist hafi verið inn í síma einhvers þeirra sem þarna voru staddir eða beitt hlerunarbúnaði.“ Það er fjarri lagi. DV óskaði eft- ir viðtali í gegnum tölvupóstfang- ið við Marvin. Nokkrum klukku- stundum síðar barst jákvætt svar og símanúmer. Í ljós kom að atburðarásin var á þá leið að í sama herbergi og þing- mennirnir voru sat einstaklingur, íslenskur kjósandi, við borð og var að fara í gegnum persónuleg skjöl. Viðkomandi blöskraði svo orðfæri þingmannanna að hann teygði sig í síma sinn og hóf upptöku. „Það litla sem ég heyrði fannst mér vera ógeðslegt og mér fannst það eiga erindi við almenning með einhverjum hætti. Ég fylgist ekki mikið með pólitík eða þjóðmál- um almennt og því var Sigmundur Davíð sá eini sem ég þekki af hópnum en mig grunaði að þetta væru einhverjir þingmenn eða aðstoðarmenn. Það var erfitt að greina allt sem þau sögðu en eins og ég segi, mér blöskraði það sem ég heyrði og þess vegna byrjaði ég að taka samtal þeirra upp án þess að vita nokkuð hvað ég ætlaði að gera við það,“ segir Marvin í sam- tali við blaðamann. Héldu að uppljóstrarinn væri erlendur ferðamaður Marvin ætlaði ekki að sitja lengi við barinn en eftir um 20 mínútur þegar þingmennirnir byrjuðu að hæðast að Freyju Haraldsdóttur og þingkonu Samfylkingarinnar, Albertínu Friðbjörgu Elíasdóttur, var honum nóg boðið. „Þá fékk ég æluna upp í háls og ákvað að hér myndi ég sitja þangað til að sam- tali þeirra væri lokið. Þetta væri ekki í boði í siðuðu samfélagi,“ seg- ir Marvin. Verkefnið reyndi talsvert á þolinmæði Marvins því þing- mennirnir sátu að sumbli langt fram á kvöld. Upptökurnar eru rúmlega þrjár klukkustundir að lengd og eru, eins og áður sagði, í sjö hlutum og gæðin misjöfn. „Þau veittu mér aldrei sérstaka athygli. Umræðurnar voru svo rosalegar að þau litu mjög sjaldan til mín. Þá töluðu þau svo hátt að ég hugsa að starfsfólkið á barnum, sem er í öðru rými, hefði getað náð góð- um upptökum af samtali þeirra,“ segir Marvin. Hann hafi þó reglu- lega þurft að færa símann til, setja yfir hann skjöl auk þess sem upptökugæðin minnkuðu mikið þegar Marvin þurfti að hlaða sím- ann sinn og færa hann fjær þing- mönnunum. „Það var ekki fyrr en þau stóðu upp og bjuggu sig undir að fara sem þau veittu mér einhverja athygli. Þegar þau voru komin fram þá minntist einhver þeirra á hvort að þessi manneskja hafi verið þarna allan tímann, en þá sagði annar að ég væri erlendur ferðamaður og það þyrfti ekki að hafa neinar áhyggjur af mér,“ seg- ir Marvin. Þegar heim var komið vissi Marvin ekki alveg hvað hann ætti að gera við upptökurnar. „Ég heyrði viðbjóðinn betur á upptök- unni en þegar ég var á staðnum. Ég reyndi að fletta upp hverjir þetta voru sem voru með Sigmundi Davíð þarna en gat ómögulega verið viss. Þess vegna ákvað ég að senda efnið á fjölmiðla sem að gætu unnið fréttir upp úr því mikil vægasta,“ segir Marvin. Hann segist ekki vera mikið tæknitröll, eigi þriggja ára síma og það hafi tekið talsverðan tíma að koma efninu yfir á netið og senda það til fjölmiðla þannig að erfitt væri að rekja efnið til hans. „Ég er mjög ánægður með hvernig til tókst og hvernig þið fjölmiðlar unnuð úr efninu. Það hvarflaði aldrei að mér að ég væri að gera eitthvað ósiðlegt. Stjórnmálamenn eru í valdamikl- um stöðum og hafa skyldum að gegna gagnvart okkur. Þau setja upp sparibrosið fyrir kosningar en þarna held ég að þeirra rétta eðli hafi sýnt sig. Það á erindi við al- menning,“ segir Marvin. n Það er staðreynd að… Á viðskiptaspjaldi glæpaforingjans Als Capone stóð að hann væri hús- gagnasölumaður. Samkvæmt sögunni voru lokaorð tónlistarmannsins Bobs Marley eftir- farandi: „Þú getur ekki keypt þér líf fyrir peninga.“ Svín geta ekki með neinu móti horft almennilega upp í himininn. Manneskjan getur ekki hrotið á sama tíma og hana dreymir. Það tæki letidýr rúman mánuð að ferðast eins og hálfs kílómetra leið. Hver er hún n Hún er fædd árið 1989 og ólst upp í Garðabæ. n Hún er jógakennari, fjölmiðlakona og einnig menntaður dansari. n Hún er sögð vera mikil samfé- lagsmiðladrottning og á son með þekktum uppistandara. n Í apríl árið 2017 stöðvaði hún þjóf sem hafði stolið úlpunni hennar. n Undir lok sama árs fór Anna Svava Knútsdóttir á kostum í hlutverki fjölmiðlakonunnar. SVAR: BERGLIND „FESTIVAL“ PÉTURSDÓTTIR „MÉR BLÖSKRAÐI ÞAÐ SEM ÉG HEYRÐI“ Klaustursuppljóstrarinn tjáir sig: Björn Þorfinnsson bjornth@dv.is

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.