Dagblaðið Vísir - DV - 30.11.2018, Blaðsíða 41
Bækur og menning 30. nóvember 2018 KYNNINGARBLAÐ
BÓKASAFN ÁRBORGAR:
Alltaf heitt á könnunni
Bókasafn Árborgar samanstendur af þremur bókasöfnum. Þá er Bókasafn
Selfoss staðsett í fallegasta
húsinu á Selfossi. Bókasafnið á
Stokkseyri er í grunnskólanum þar
og Bókasafnið á Eyrarbakka er til
húsa í Blátúni. „Ásamt því að hýsa
bókasöfn Árborgar þá erum við
með fjölda menningarviðburða.
Við erum með tónlistarviðburði,
listasýningar, upplestra og margt
fleira. Það má alltaf bóka að það sé
eitthvað skemmtilegt að gerast á
bókasöfnunum. Svo er auðvitað alltaf
notalegt að koma hingað og kíkja í
blöðin. Það er alltaf heitt á könnunni!“
segir Heiðrún Dóra Eyvindardóttir.
Dagskrá á Bókasafni Árborgar,
Selfossi
Fyrsti desember: Á morgun
munum við opna fyrsta
Jólagluggann í bænum kl. 10.00,
sem myndlistamaðurinn Rakel Sif
Ragnarsdóttir sá um að skreyta.
Í framhaldi verða opnaðir nýir
jólagluggar hjá hinum ýmsu
fyrirtækjum á hverjum degi fram að
jólum.
Þrettándi desember:
Rithöfundurinn Bjarni Bjarnason les
upp úr nýrri bók sinni, Læknishúsinu.
Sagan er æsispennandi fjölskyldu-,
ættar- og draugasaga og á sér stað
í læknishúsinu á Eyrarbakka,“ segir
Heiðrún. Viðburður hefst kl. 17.15 og
eru allir velkomnir
Alltaf eitthvað að gerast
Sýningasalurinn Listagjáin er
starfræktur í kjallara bókasafnsins á
Selfossi. „Við erum alltaf með opna
myndlistarsýningu í Listagjánni og er
þetta í raun eini salurinn á Selfossi þar
sem eru alltaf sýningar. Núna stendur
yfir falleg málverkasýning Rakelar
Sifjar sem starfar jafnframt á safninu.
Hún sér alla jafna um skreytingar á
safninu og hefur til að mynda skreytt
jólagluggann og gerði allar skreytingar
í barnadeildinni.
„Á hverjum fimmtudegi kl. 10.30
kemur Kiddý, sem er fyrrverandi
leikskólakennari, til að lesa fyrir börnin.
Þessar stundir eru alltaf þéttsetnar af
áhugasömum börnum og foreldrum
þeirra enda er Kiddý ótrúlega lifandi
í lestrinum og með áratuga reynslu,“
segir Heiðrún.
„Mig langar sérstaklega að
minnast á öldungaráðið, sem er
skipað fólki á öllum aldri. Þau koma
saman á hverjum morgni til skrafs og
ráðagerða og fara yfir landsins gagn
og nauðsynjar.“
Kökuform til leigu
Það er ljóst að Bókasafn Árborgar
býður upp á skemmtilega dagskrá í
aðdraganda jólanna og ættu flestir að
geta fundið sér viðburði við hæfi. „Það
er svo notalegt að koma við í safninu,
finna sér bók til að lesa, kannski detta
inn á einhverja tónleika. Svo má ekki
gleyma því að Bókasafnið á Selfossi er
eina bókasafnið á landinu sem er með
kökuform til leigu!“ segir Heiðrún.
Nánari upplýsingar má nálgast á
bokasafn.arborg.is http://bokasafn.
arborg.is/
Tölvupóstur: bokasafn@arborg.is
Austurvegur 2, Selfossi
Sími: 480-1980
Opnunartími yfir vetrartíma: 1.
september–15. maí. Virkir dagar:
8.00–19.00 og laugardagar: kl.
10.00–14.00
Eyrarbraut 2, Stokkseyri
Sími: 480-3223
Opið er mánudaga og fimmtudaga
kl. 16.00–18.00. Þriðjudaga kl. 19.00–
21.00
Túngötu 40, Eyrarbakka
Sími 480-1991
Opið er mánudaga og fimmtudaga
kl. 16.00–18.00. Þriðjudaga kl. 19.00–
21.00 n