Dagblaðið Vísir - DV - 30.11.2018, Blaðsíða 75
FÓLK 7530 nóvember 2018
Þegar þingmenn unnu alvöru starf
Fóstran
Björn Leví Gunnarsson, þingmað
ur Pírata, var nýlega sakaður um
að stunda einelti í
þinginu. Því verð
ur vart trúað upp
á hann enda
starfaði hann á
leikskólunum
Staðarborg og
Jörfa árin 1996
til 1999 og má því
kannski til sanns
vegar færa
að hann
sé nú á
heima
velli.
Framleiddi tómar spólur
Bjarkey Olsen Gunnars
dóttir, þingmað
ur Vinstri grænna,
bjó lengi á Ólafs
firði. Árin 1994
til 1999 rak hún
þar fyrirtæki sem
framleiddi tóm
ar spólur ásamt
eiginmanni sínum,
Helga Jóhannssyni.
Hét það Íslensk
tónbönd.
Barnabókarmógúllinn
Mosfellingurinn Bryndís Haralds
dóttir hefur setið á Alþingi fyrir
Sjálfstæðisflokkinn síðan 2016. Áður
stofnaði og rak hún útgáfufyrirtækið
Góðan dag sem gaf meðal annars út
barnabækur.
Tryggingasölumaðurinn
Guðlaugur Þór Þórðarson utanríkis
ráðherra gegndi áður starfi
heilbrigðis ráðherra, sem hefur oft ver
ið talið vanþakklátt. Hann hlýtur þó að
hafa haft þykkan skráp í ljósi þess að
hann starfaði sem tryggingasölumað
ur í samtals fimm ár.
Passaði steinull
Líklega hafa fáir þorað að brjót
ast inn í Steinullarverksmiðjuna á
Sauðárkróki árin 1989 til 1991. Þá
hefðu þeir mætt
vökulum aug
um Gunnars
Braga Sveinsson
ar, síðar utan
ríkisráðherra og
þingmanns Mið
flokksins.
Karate-Karl
Karl Gauti Hjaltason hjá Flokki fólksins
var lengi sýslumaður og kom landanum
fyrir sjónir við upplestur kosningatalna.
Karl er líka mikill íþróttagarpur og stofn
aði til dæmis Karatefélagið Þórshamar
árið 1979.
Bókmenntarýnir DV
Fáum líkar illa við Katrínu
Jakobsdóttur, for
sætisráðherra og
þingmann Vinstri
grænna til margra
ára. Hún var
áður stigavörð
ur í Gettu betur
og dúx í skóla.
Hennar mesta
vegsemd var þó
að skrifa bók
menntarýni
fyrir DV árið
2002.
Skemmtikrafturinn
Inga Sæland, formaður Flokks fólks
ins, er öryrki vegna blindu. Áður en
hún skaust upp á stjörnuhimin stjórn
málanna var hún Ís
landsmeistari í
karókí og tróð upp
í veislum í kjölfar
sigursins. Sig
urlagið var The
Greatest Love
of All með
Whitney
Houston.
Ljóðanörd
Allir vita að Píratinn Helgi Hrafn
Gunnarsson er tölvunörd enda
hefur hann fengist við forritun í
langan tíma. Færri vita að það eru
ekki aðeins táknin 0 og 1 sem
heilla hann heldur
gnægtarborð ís
lenskrar ljóðlist
ar og bragfræði.
Árið 2002 opnaði
hann stafrænt
athvarf fyrir skáld
til að varðveita af
urðir sínar
um ald
ur og
ævi.
Afruglarinn
Jón Gunnarsson, þingmaður Sjálfstæðis
flokksins, þykir fróður um ýmis málefni.
Svo sem hvalveiðar og vegtolla. Áður fyrr
var hann helsti sérfræðingur landsins í af
ruglurum og starfaði sem yfirmaður aug
lýsinga og áskriftardeildar Stöðvar 2.
Handboltastjarnan
Eins og allir fulltrúar Viðreisnar
kom Hanna Katrín Friðriksson lóð
beint úr viðskiptalífinu. Þar áður var
hún handknattleiksstjarna hjá Fram
og Val. Er hún með alls 36 landsleiki
á bakinu.
Slökkviliðsmaðurinn
Miðflokksmaðurinn Birgir Þórarins
son er sannkristinn Suðurnesjamað
ur. Árin 1991 til 1996
starfaði hann sem
slökkviliðsmað
ur á Keflavíkur
flugvelli.
Skáldið
Flestir vita að Ari Trausti Guð
mundsson, hjá Vinstri grænum,
er einn fremsti jarðvísindamað
ur landsins og hefur lengi starfað
við fræðin. Færri vita að hann erfði
listagáfuna frá foreldrum sínum og
hefur skrifað sjö ljóðabækur.
Á geðdeild
Andrés Ingi Jónsson, hjá Vinstri grænum,
er brosmildasti og hlýjasti þingmaður
inn. Glensið er heldur aldrei fjarri. Þessir
mannkostir hafa vafalaust nýst honum vel
þegar hann starfaði á geðdeild Landspít
alans árin 2002 til 2004.
Sjóari með sítt að aftan
Kristján Þór Júlíusson sjávarútvegs
ráðherra var lengi vel bæjarstjóri.
Fyrst á Dalvík en síðan Akureyri.
Áður en ferillinn í stjórnmálum
hófst var hann stýrimaður á Dalvík
og var með sítt að aftan.
Ritstjóri DV
Óli Björn Kárason, þingmaður Sjálf
stæðisflokksins, á langan feril að baki
í fjölmiðlum og útgáfu. Hans mesta
vegsemd á ferlinum var að sjálfsögðu
þegar hann ritstýrði DV á árunum
1999 til 2003.