Dagblaðið Vísir - DV - 30.11.2018, Blaðsíða 40
Bækur og menning 30. nóvember 2018KYNNINGARBLAÐ
Vestfirskt atvinnuleikhús á hjólum
Kómedíuleikhúsið er fyrsta og eina atvinnuleikhúsið á Vestfjörðum, stofnað árið
1997. Leikhúsið hefur sett á svið
yfir 40 leikverk sem eiga það flest
sameiginlegt að tengjast sögu
Vestfjarða á einn eða annan hátt.
„Leikhúsið starfaði fyrstu þrjú
árin í borginni en flutti búferlum
vestur um síðustu aldamót, þá
kom einfaldlega í ljós að við vorum
fyrsta og eina atvinnuleikhúsið
á Vestfjörðum,“ segir Elfar Logi
Hannesson, forystumaður og
leikari Kómedíuleikhússins, en hann
er, að eigin sögn, jafnframt eini
atvinnuleikarinn sem búsettur er á
Vestfjörðum. „Þegar við settum upp
okkar fyrstu leiksýningu vestra kom
náttúrlega ekkert annað til greina
en að setja upp einleik.“
Á þriðja tug útgáfuverka
Fyrsti einleikur Kómedíuleikhússins
var Leikur án orða, 2001, eftir
Samuel Beckett en eftir það hafa
allir einleikirnir komið úr smiðju
leikhússins. Þess er gaman að geta
að Kómedíuleikhúsið hefur starfað
talsvert í útgáfu og gefið út yfir á
þriðja tug verka.
„Í ár gefum við út tvær bækur
sem báðar tengjast Vestfjörðum
sterkum böndum. Fyrst skal nefna
verkið Geisli Bíldudal. Um miðja
síðustu öld kom út á Bíldudalsblaðið
Geisli. Ritstjóri var séra Jón Kr.
Ísfeld, sóknarprestur á Bíldudal.
Blaðið var safnaðarblað en gerði
þó meira en að miðla kristilegu efni
því í hverju tölublaði voru fréttir
úr heimahögum auk margs konar
fróðleiks um Bíldudal og Arnarfjörð
í fortíð og samtíð. Hér gefur að
líta úrval úr Geisla þann tíma
sem blaðið var gefið út á Bíldudal
1946–1960. Öllu kristilegu efni er
þó sleppt þótt allt sé það gott og
sérlega blessað. Geisli segir sögu
Bíldudals eins og hún hefur aldrei
verið sögð áður,“ segir Elfar.
„Hin bókin sem við gefum út í ár
er Allir dagar eiga kvöld, ljóðaúrval
Stefáns frá Hvítadal. Hér er á
ferð sérlega vönduð útgáfa með
úrvali úr ranni þessa áhrifamikla
skálds er kenndi sig við Hvítadal.
Hann var vormaður í orðsins fyllstu
merkingu bæði í verkum sínum og
ljóðlistinni sjálfri. Skáldið er fólksins
æð, kvað hann í einu ljóða sinna.
Ósjaldan hitti hann á æð sinna
lesenda í ljóðum sínum sem eru
mörg hver með því dásamlegasta
og áhrifaríkasta í ljóðlistasögu
þjóðarinnar. Ljóð hans hafa þó
eigi verið aðgengileg í svo veglegri
útgáfu í meira en hálfa öld.“
Leikhús landsbyggðarinnar
Bækur Kómedíuleikhússins fást í
bókaverslunum um land allt sem og
á heimasíðunni komedia.is. Leikhúsið
hefur gefið út á þriðja tug bóka.
Margar bækur tengjast vitanlega
Vestfjörðum á einn eða annan hátt,
nú eða þá leikhúsinu. „Við höfum
gefið út þó nokkrar leikhúsbækur
m.a. kennslubókina Leikræn tjáning
og Einleikjasaga Íslands,“ segir Elfar
Logi en báðar bækurnar eru eftir
hann.
„Við erum, jú, leikhús
landsbyggðarinnar,“ bætir
Elfar við. „En segja má að árið
2005 hafi orðið straumhvörf í
Kómedíuleikhúsinu. Þá frumsýndum
við leikritið Gísli Súrsson sem er
langmest sýnda leikrit Vestfjarða og
þótt víðar væri talið og leitað. Hefur
það verið sýnt yfir 320 sinnum
bæði hér heima og erlendis. Það
hefur tvort tveggja verið sýnt á
íslensku og ensku og í dag sýnum
við langoftast á ensku fyrir erlenda
ferðamenn sem sækja okkur heim.
Hvert leikhús þarf sína mjólkurkú og
það má sannlega segja að hjá okkur
sé það Gísli Súrsson.“
Kómedíuleikhúsið er leikhús
á hjólum og ferðast um land
allt með sýningar sínar. Nýjasta
sýning leikhússins er Valhöll en þar
fylgjumst við með æðsta og elsta
goðinum, Óðni, en hann er einnig
goð skáldskapar, dauðra, hernaðar,
töfra og galdra og rúna. n