Dagblaðið Vísir - DV - 30.11.2018, Qupperneq 55
KYNNINGARBLAÐ
Ábyrgðarmaður: Kolbrún Dröfn Ragnarsdóttir / kolla@dv.is Umsjón: Jóhanna María Einarsdóttir / johanna@dv.is
Hreint fyrir jólin
ÞRIF OG RÆSTIVÖRUR:
Þrif og ræstivörur er um margt afar áhugavert fyrirtæki með mikla sérstöðu. Fyrirtækið er
á Akureyri og rekur annars vegar
sérverslun með efni og tæki til
hreingerninga og veitir hins vegar
víðtæka og fjölbreytta ræstinga- og
hreingerningarþjónustu til fyrirtækja
og einstaklinga.
Verslunin er að Frostagötu 4C
og er opin virka daga milli kl. 8 og
16. Þar er meðal annars að finna
hinar þekktu Evans hreinsivörur
frá Bretlandi og margvísleg önnur
hreinsiefni. Þar eru einnig margs
konar áhöld, vélar og tæki til
ræstinga: tuskur, svampar, sköft,
skúringavagnar og skúringafötur
með vindum.
Af öðrum
vörum má
nefna pappír,
pappírsstanda og
sápuskammtara frá
hinum virta merki Katrin.
Enn fremur er mikið úrval
af ryksugum, gólfþvottavélum
o.fl. undir hinu klassíska Nilfisk-
merki til sölu í versluninni, sem
og hreingerningarvélar frá
þýska framleiðandanum
Kärscher – en þar ber
hæst afar vinsæla vél til
heimilisnota sem bæði
skúrar og ryksugar.
Kärscher vélin sem bæði
skúrar og ryksugar – hefur
slegið í gegn hér á landi
„Helsta sérstaða
verslunarinnar er kannski
sú að þar starfar fólk sem
er að vinna með þessa hluti alla
daga þannig að viðskiptavinir fá
mjög sérhæfða ráðgjöf um val og
notkun á efnum og tækjum. Þetta
er eitthvað sem fólk fær ekki annars
staðar. Mörg sterk hreinsiefni eru
ekki fyrir alla og þú getur skemmt
meira með þeim en gert gagn. Það
er mikilvægt að velja rétta vöru
sem hentar í viðkomandi verkefni.
Við höfum alltaf lagt mikið upp úr
persónulegri og góðri þjónustu,“
segir Sveinn Rúnar, annar eigenda
fyrirtækisins, en hinn eigandinn er
eiginkona hans, Birna Böðvarsdóttir.
Starfsemi Þrifa og ræstivara
hefur vaxið mikið í gegnum árin
en fyrirtækið sinnir daglegum
ræstingum og hreingerningum fyrir
hina ýmsu aðila, stóra og smáa,
fyrirtæki jafnt sem einstaklinga og
heimili. Starfsmenn eru nú um 120
talsins, allt í allt.
Starfsemin nær víða út fyrir
Akureyri: „Við veitum þjónustu
alveg austur á firði og vestur
fyrir Blönduós. Við erum
með föst
ræstingarverkefni á Akureyri,
Húsavík, Dalvík, Ólafsfirði, Siglufirði, í
Mývatnssveit og víðar.“
Nilfisk stenst tímans tönn
Sveinn Rúnar segir þörfina mikla
og er lögð mikil áhersla á faglega
ráðgjöf og persónulega þjónustu í
hreingerningum, viðhaldi gólfefna
og öðrum sérverkefnum. Fyrirtækið
sinnir margs konar vandasömum
sérverkefnum en Sveinn Rúnar telur
að sú sérþekking sem fyrirtækið búi
yfir á þessu sviði sé fágæt.
Meðal stórra viðskiptavina
Þrifa og ræstivara er Samkaup en
fyrirtækið hefur séð um ræstingar
fyrir allar verslanir Samkaupa
á Norðurlandi í 12 ár. Einnig má
nefna Samherja, Akureyrarbæ,
Norðlenska, Íslandsbanka,
Sjúkrahúsið á Akureyri,
Mjólkursamsöluna og Eimskip.
„Við höfum líka sérhæft okkur
mjög í tækjabúnaði til að þjónusta
tryggingafélög í tjónamálum,“
segir Sveinn Rúnar. „Við erum
vel búnir tækjum til að glíma við
afleiðingar vatnstjóns, erum t.d. með
rakabúnað, skilvindur, blásara og
fleira sem til þarf. Einnig erum við
sérhæfð í að fást við brunatjón, t.d.
með búnaði og tækjum til að
fást við þrif eftir bruna
og eyða lykt.“
Að sögn Sveins
Rúnars eru verkefnin
óþrjótandi en mikil
áhersla er lögð á
að viðhalda þeirri
persónulegu þjónustu með
faglegri ráðgjöf við viðskiptavini
sem ávallt hefur einkennt
starfsemi fyrirtækisins þrátt
fyrir að það stækki og
umsvifin aukist.
Nánari upplýsingar
um starfsemina
veitir Sveinn Rúnar í
síma 865-2425 en
einnig er að finna
upplýsingar á
Facebook-síðunni
Þrif og ræstivörur
sem og á
heimasíðunni
thrif.is. n
Fágæt sérþekking og
persónuleg þjónusta
Sala á öllum hreinlætisvörum
og áhöldum til ræstinga
fyrir fyrirtæki, stofnanir og
heimili í verslun okkar
G rum föst verðtilboð í öll verk, stór eð smá, þér að kostnaðarlausu.
Markmið okkar er að veita viðskiptavinum okkar ávallt:
Háma ksgæði og árangur, persónulega og góða þjónustu.
• Hjá Þrif- og ræstivörum starfa nú um 100 manns við ræstingar og hreingerningar
af öllum stærðum og gerðum.
• Í dag þjónustum við um 70 fyrirtæki o stofn ir í daglegri ræstingu.
• Auk þess rekum við öfluga hreingerni ga- og sérverkefnadeild.
Með allt á hreinu í 15 ár
• Gluggaþvottur
• Aðalhreingerningar
• Viðhald gólfefna
• Bónleysing og bónun gólfefna
• Salernis- og kísilhreinsun
• Teppa- og flísahreinsun
• Þr f eftir iðnaðarmenn
• Bruna- o vatnstjónaþrif
• Veggj -, lofta-, ljósa-
og gluggaþrif
Öll þrif fyrir fyrirtæki,
stofnanir og heimili
Dagleg eða regluleg þrif:
S la á öllum h einlæt svörum
o á öldum til ræstinga
fyrir fyrirtæki, stofna ir og
heimili í ver lun okk r
Gerum föst verðtilboð í öll verk, stór eða smá, þér að kostnaðarlausu.
Markmið okkar er að veita viðskiptavinum okkar ávallt:
Hámarksgæði og árangur, persónulega og góða þjónustu.
• Hjá Þrif- og ræstivörum starfa nú um 100 manns við ræstingar og hreingerningar
af öllum stærðum og gerðum.
• Í dag þjónustum við um 70 fyrirtæki og stofnanir í daglegri ræstingu.
• Auk þess rekum við öfluga hreingerninga- og sérverkefnadeild.
Með allt á hreinu í 15 ár
• Gluggaþvottur
• Aðalhreingerningar
• Viðhald gólfefna
• Bónleysing og bónun gólfefna
• Salernis- og kísilhreinsun
• Teppa- og flísahreinsun
• Þrif eftir iðnaðarmenn
• Bruna- og vatnstjónaþrif
• Veggja-, lofta-, ljósa-
og gluggaþrif
Öll þrif fyrir fyrirtæki,
stofnanir og heimili
Dagleg eða regluleg þrif:
Sala á öllum hreinlætisvörum
og áhöldum til ræstinga fyrir
fyrirtæki, stofnanir og
heimili í verslun okkar