Dagblaðið Vísir - DV - 30.11.2018, Blaðsíða 8
8 30 nóvember 2018FRÉTTIR
V
anlíðanin sem ég hef upp
lifað vegna þessa máls er
nánast óbærileg. Ég fylltist
viðbjóði og upplifi mig svo
óhreina að ég gæti klórað mig til
blóðs. Ég veit ekkert hvort mynd
irnar af mér og systur minni séu í
dreifingu eða ekki. Varnarleysið
er algjört og mér líður eins og mér
hafi verið nauðgað andlega,“ segir
Patricija Velina í samtali við DV.
Fyrir rúmum mánuði var fyrr
verandi stjúpfaðir hennar, Gints
Davidons, dæmdur í þriggja
mánaða skilorðsbundið fangelsi
á héraðsdómsstigi fyrir blygð
unarbrot gegn Patriciju og yngri
systur hennar. Brotin fólust í því
að á rúmlega árstímabili faldi Gin
ts síma sinn ítrekað inni á baðher
bergi heimilis þeirra og tók upp
myndskeið af systrunum við að
athafna sig. Við rannsókn málsins
fundust, auk myndbanda af systr
unum, fleiri myndir af ungum kon
um á tölvu Gints, sem hann hafði
tekið sjálfur auk gríðarlegs magns
af myndum sem hann hafði hlaðið
niður af netinu.
Patricija segir dóminn og
málsmeðferðina til skammar. „Það
liðu rúm tvö ár frá því að byrjað
var að rannsaka málið og þar til að
dómur féll. Á meðan gat hann um
frjálst höfuðið strokið og haldið
uppteknum hætti. Niðurstaðan
er sú að hann þarf ekki einu sinni
að sitja inni fyrir sína viðbjóðslegu
glæpi,“ segir Patricija. Hún fór fram
á tvær milljónir króna í miskabæt
ur en mat dómstólsins var að 350
þúsund krónur væru hæfilegar
bætur. „Þetta er nokkrir tímar hjá
sálfræðingi og í engu samhengi
við þann miska sem ég varð fyrir.
Það mun taka mig langan tíma að
vinna mig út úr þessu,“ segir Pat
ricija.
Henti brauðrist í konuna sína
sem hélt á ungum syni þeirra
Patricikja er 26 ára gömul og er frá
Lettlandi. Móðir hennar flutti til
Íslands ásamt yngri systur henn
ar í leit að betra lífi á sínum tíma.
Hér á landi kynntist hún Gints,
sem einnig er frá Lettlandi. Þau
hófu sambúð og fljótlega eign
uðust þau son saman. Patricija
elti síðan móður sína til Íslands
fyrir nokkrum árum og flutti inn á
heimilið til móður sinnar og stjúp
föður.
„Hann kom vel fram við mig og
við náðum að mörgu leyti ágæt
lega saman til að byrja með. Ég
varð þó fljótlega vör við að hann
kom afar illa fram við mömmu.
Hann virtist finna veikleika hjá
henni og nýtti sér það til hins
ýtrasta. Ég hef þó alltaf haft bein
í nefinu og því passaði hann sig
alltaf í kringum mig. Um leið og ég
brá mér út af heimilinu hófst of
beldið,“ segir Patricija.
Nefnir hún sem dæmi um
ofsafengin reiðiköst fyrrverandi
stjúpföður síns að hann hefði í
eitt sinn hent brauðrist í móð
ur hennar þegar hún hélt á ný
fæddum syni þeirra. „Hann var
algjört skrímsli. Samskipti okk
ar urðu þá mjög slæm því ég
leyfði honum ekki að komast upp
með þessa framkomu gagnvart
henni,“ segir Patricija. Hún bjó í
ár á heimilinu en gafst svo upp
og flutti að heiman til kærasta
síns. Allan þennan tíma hélt hún
að ofbeldið beindist aðeins gegn
móður sinni og hafði ekki hug
mynd um hið dulda ofbeldi sem
var í gangi gagnvart henni og yngri
systur hennar. „Mamma skildi síð
an loksins við Gints skömmu síðar.
Áreitið var slíkt að henni fannst sér
ekki vært á Íslandi og fluttist því til
Danmerkur,“ segir Patricija.
Gat ekki afborið að horfa á
myndböndin
Gints tók síðan saman við aðra
konu hér á landi. „Sú kona
er einnig frá Lettlandi og við
könnuðumst aðeins við hana,
hún og mamma eiga sameigin
lega vinkonu,“ segir Patricija. Það
voru þau tengsl sem urðu til þess
að upp komst um hin hræðilegu
myrkraverk Gints. „Mamma fékk
skyndilega skilaboð frá sameigin
legu vinkonunni um að sambýlis
kona Gints hefði fundið myndir
og myndbönd af dætrum hennar í
tölvunni hans. Myndir sem greini
lega voru ekki teknar með okkar
leyfi og vitneskju. Mamma hringdi
síðan í mig og mér varð flökurt
þegar ég heyrði hvers eðlis mynd
irnar voru,“ segir Patricija.
Sambýliskona Gints kom
myndunum til hennar á minnis
lykli en Patricija gat ekki hugs
að sér að skoða innihaldið. „Mér
fannst tilhugsunin ógeðsleg. Ég
hefði ekki getað afborið að horfa
á myndböndin. Ég keyrði því
Síðumúla 30 - Reykjavík
Hofsbót 4 - Akureyri
Tvennutilboð
Microfiber sæng og koddi
Verð: 9.900
Fullt verð: 13.300
„Mér líður eins og mér hafi
verið nauðgað andlega“
n Stjúpfaðir Patriciju tók upp myndbönd af henni og yngri systur hennar á
baðherbergi heimilisins n Hlaut þriggja mánaða skilorðsbundinn dóm
Björn Þorfinnsson
bjornth@dv.is
Gints Davidons fékk þriggja mánaða skilorðs-
bundinn dóm fyrir að taka upp myndbönd
af stjúpdætrum sínum yfir eins árs tímabili á
baðherbergi heimilis þeirra.