Dagblaðið Vísir - DV - 30.11.2018, Blaðsíða 45
Bækur og menning 30. nóvember 2018 KYNNINGARBLAÐ
Átakanlegar sögur af baráttu
Heiður er áleitin saga um togstreituna á milli þess að berjast fyrir réttindum heillar
þjóðar eða hamingju eigin fjölskyldu. Í
bókinni endurspeglast samtímasaga
norðurírsku þjóðarinnar í sögu lítillar
fjölskyldu sem sundrast í Reykjavík. Til
að eiga möguleika á því að halda áfram
með lífið í einhvers konar sátt eða friði
þarf Heiður að gera upp fortíðina, fá að
vita sannleikann um föður sinn og það
sem átti sér stað fyrir öllum þessum
árum. Allt er þetta samtvinnað. Hún var
bara barn þegar faðir hennar og bróðir
hverfa úr lífinu og líf þeirra mæðgna
varð aldrei samt eftir það. Eftir því
sem hún kemst að fleiri staðreyndum
um örlög eigin föðurfjölskyldu kemst
hún líka að því að óuppgerð mál heils
þjóðfélags munu alltaf draga dilk á eftir
sér. Friður er að sjálfsögðu mikilvægur
og kærkominn en honum verður að
fylgja réttlæti til þess að ekki sé hætta
á að sagan endurtaki sig.
Um skáldsöguna Heiði segir Sólveig:
„Sagan er að stórum hluta byggð á
frásögnum og sönnum atburðum úr
lífi fólks á Norður-Írlandi. Ég eignaðist
marga vini frá Norður-Írlandi þegar
ég bjó í Skotlandi um nokkurra ára
skeið. Ég kynntist líka fjölskyldum
þessara vina minna og fékk að vita
um hluti sem sumt af þessu fólki
upplifði bæði á tímum The Troubles og
svo eftir að friðarsamkomulagið var
samþykkt. Þetta eru atburðir sem ekki
er hægt að lesa um í sögubókum eða
fræðiritum heldur erfiðar upplifanir
sem nánast urðu hversdagslegar á
þessum flóknu tímum. Það er búið að
vera mjög áhugavert að tala við fólk
sem hefur lesið bókina. Margir tala
um að hafa alltaf haft mikinn áhuga
á þessari átakasögu Írlands og muna
eftir fréttaflutningi frá því að þessi
ófriðartími stóð sem hæst.“ n
HEIÐUR:
Sólveig Jónsdóttir
Það er hægt að lesa bókina um Hasim eins og spennusögu, barn sem er
borið út og látið týnast í risastórri,
ókunnugri borg. Barn sem þvælist
um í Kalkútta, milli barnafangelsis,
munaðarleysingjahælis og
heimavistarskóla fyrir fátæka
drengi og endar loksins á Íslandi, í
litlu sjávarþorpi.
Hasim er ekki venjulegur drengur
og hann hefur ekki lifað neinu
venjulegu lífi. Hann kemur hingað
til lands tólf ára á handskrifuðu
vegabréfi. Það fylgja honum mjög
litlar upplýsingar og enginn veit að
hann á að baki erfiðar minningar
um ofbeldi og kynferðislega
misnotkun. Eftir ár á Íslandi er
honum skilað og hann verður aftur
umkomulaus. Við taka mjög erfið
unglingsár þar sem hann lifir á
jaðrinum og býr um skeið meðal
utangarðsmanna í miðborginni.
Þótt nánast allt í lífinu hafi
verið honum mótdrægt missir
hann samt ekki lífsgleðina og
baráttuviljann, hann eygir alltaf
von um að hitta móður sína
aftur þótt það verði að teljast
óraunsætt. Hann fer til Indlands,
tvítugur að aldri, til að láta
drauminn rætast. Endurfundirnir
verða þó öðruvísi en hann hafði
séð fyrir.
„Elsti sonur Hasims segir að
í sínum huga hafi Hasim verið
ævintýrapersóna frekar en
pabbi og eftir lestur bókarinnar
skilur lesandinn af hverju,“
segir Þóra Kristín Ásgeirsdóttir,
höfundur bókarinnar. „Hasim
hefði auðveldlega getað endað í
ræsinu en hann vann að lokum í
fjölskyldulottóinu. Í dag er hann
fimm barna faðir, elsta barnið á
hann með íslenskri konu en hin
fjögur með eiginkonu sinni frá
Pakistan. Hann býr og starfar í
Noregi en segist fyrst og fremst
vera Íslendingur.“ n
HASIM:
Þóra Kristín Ásgeirsdóttir