Dagblaðið Vísir - DV - 30.11.2018, Blaðsíða 47
Bækur og menning 30. nóvember 2018 KYNNINGARBLAÐ
Listasafn Reykjavíkur telur þrjú listasöfn. Það eru Hafnarhúsið við Tryggvagötu, Ásmundarsafn
við Sigtún og svo Kjarvalsstaðir við
Flókagötu. „Við skiptum ört um sýningar
og í dag eru 8 sýningar í gangi. Það hafa
alls verið átján sýningar í söfnunum
þetta árið og fleiri á döfinni. Því ættu
flestir að geta fundið eitthvað við sitt
hæfi,“ segir Áslaug Guðrúnardóttir,
kynningar- og markaðsstjóri Listasafns
Reykjavíkur.
Litaþema
„Í Hafnarhúsi eru fjórar ólíkar sýningar
sem sameinast í þemanu „litur“. Fyrst
má nefna verk eftir Erró. Sýningin
nefnist Svart og hvítt og samanstendur
af ólíkum verkum sem eru öll svarthvít.
Þau tengjast þemanu með því að vera
laus við lit,“ segir Áslaug.
Verk á sýningu Ingólfs Arnarssonar,
Jarðhæð, tengist þemanu að því
leyti að verkin virðast við fyrstu
sýn litlaus, en þegar betur
er að gáð má greina daufa
litatóna. Sýningin Litur: Skissa
II samanstendur svo af
nýlegum verkum úr safneign
listasafnsins. „Verkin eru öll í
lit og virka sem mótvægi við
Errósýninguna,“ segir Áslaug.
Sólarströnd á listasafni
Í D-sal Hafnarhúss sýnir safnið
verk nýrra og upprennandi
listamanna og nú stendur
yfir sýning Maríu Dalberg, Suð.
„Sterkur gulur litur er í þeirri sýningu
og er notalegt að koma þangað inn í
skammdeginu og baða sig í gula litnum.
Þetta er svona eins og að koma á
sólarströnd,“ segir Áslaug. Þess má geta
að sýningunni lýkur 25. nóvember.
Andstæður á Kjarvalsstöðum
Á Kjarnvalsstöðum standa yfir tvær
sýningar. Annars vegar er sýning á
málverkum Kjarvals sem heitir …lífgjafi
stórra vona og samanstendur af
landslagsmyndum og málverkum af
fólkinu hans Kjarvals. „Þar er t.d. málverk
af leigubílstjóranum sem keyrði Kjarval
alltaf upp á Þingvelli. Myndirnar segja
sögu Kjarvals á skemmtilegan hátt,“
segir Áslaug. Hins vegar er yfirlitssýning
á verkum Haraldar Jónssonar. Sýningin
spannar 30 ára feril og heitir Róf og er
skemmtileg andstæða við hefðbundin
málverk Kjarvals.
Verk sem flæða
„Haraldur er flinkur að tengja verkin við
sýningargesti og umhverfið. Hann fékk
íbúa á Flókagötunni til þess að byrgja
glugga sína með lituðum gluggatjöldum
frá honum og þannig flæða listaverkin
út úr safninu, yfir götuna og inn í
einkarýmið. Einnig flæðir verk út úr
safninu á völdum sunnudögum þegar
gestum gefst kostur á að láta taka
úr sér blóð og fá það með sér heim.
Þannig fer listaverkið inn í, og út úr
manneskjunni og hún verður partur af
verkinu. Verkið heitir Blóðnám. Fyrir utan
safnið eru svo tvö hljóðverk sem ég hvet
gesti og gangandi til að koma og hlusta
á,“ segir Áslaug.
Innrás í Ásmundarsafn
Í Ásmundarsafni stendur nú yfir
sýning á höfundarverki Ásmundar
Sveinssonar frá upphafi. Enn fremur
hefur fjórum listamönnum verið boðið
að koma og gera listræna innrás inn í
sýningarrýmið. Síðasta innrásin stendur
nú yfir og er í höndum Margrétar Helgu
Sesseljudóttur og nefnist Innrás IV.
Spennandi viðburðir
Það er alltaf eitthvað um að vera í
söfnunum og margs konar viðburðir
í gangi. Fyrsta fimmtudag í hverjum
mánuði kl. 20.00 er Hafnarhúsið
t.d. með kvöldstund fyrir þá sem vilja
kynna sér betur myndlist í nútímanum.
„Við bjóðum öllum sem hafa áhuga
að koma og fá heiðarleg svör við því
sem þeim liggur á hjarta varðandi
myndlist í samtímanum. Við viljum víkka
sjóndeildarhring sem flestra og okkar vilji
er að myndlist sé fyrir alla,“ segir Áslaug.
Nánari upplýsingar má nálgast á
http://listasafnreykjavikur.is/
Netpóstur: listasafn@reykjavik.is
Hafnarhús Tryggvagata 17
Sími: 411-6400
Opið: 10–17, fimmtudaga 10–22
Kjarvalsstaðir Flókagata 24
Sími: 411-6420
Opið: 10–17
Ásmundarsafn Sigtún
Sími: 411-6430
Opið: maí–september 10–17
október–apríl 13–17 n
LISTASAFN REYKJAVÍKUR:
Myndlist í skammdeginu
Sólveig Aðalsteinsdóttir. Án titils. 1993.
Svart og hvítt. Erró.
List fyrir fólkið. Ásmundur Sveinsson.
Jóhannes. S. Kjarval. Esja í febrúar.
Verk Ingólfs Arnarssonar af sýningunni
Jarðhæð eða Ground Level.