Dagblaðið Vísir - DV - 30.11.2018, Side 47

Dagblaðið Vísir - DV - 30.11.2018, Side 47
Bækur og menning 30. nóvember 2018 KYNNINGARBLAÐ Listasafn Reykjavíkur telur þrjú listasöfn. Það eru Hafnarhúsið við Tryggvagötu, Ásmundarsafn við Sigtún og svo Kjarvalsstaðir við Flókagötu. „Við skiptum ört um sýningar og í dag eru 8 sýningar í gangi. Það hafa alls verið átján sýningar í söfnunum þetta árið og fleiri á döfinni. Því ættu flestir að geta fundið eitthvað við sitt hæfi,“ segir Áslaug Guðrúnardóttir, kynningar- og markaðsstjóri Listasafns Reykjavíkur. Litaþema „Í Hafnarhúsi eru fjórar ólíkar sýningar sem sameinast í þemanu „litur“. Fyrst má nefna verk eftir Erró. Sýningin nefnist Svart og hvítt og samanstendur af ólíkum verkum sem eru öll svarthvít. Þau tengjast þemanu með því að vera laus við lit,“ segir Áslaug. Verk á sýningu Ingólfs Arnarssonar, Jarðhæð, tengist þemanu að því leyti að verkin virðast við fyrstu sýn litlaus, en þegar betur er að gáð má greina daufa litatóna. Sýningin Litur: Skissa II samanstendur svo af nýlegum verkum úr safneign listasafnsins. „Verkin eru öll í lit og virka sem mótvægi við Errósýninguna,“ segir Áslaug. Sólarströnd á listasafni Í D-sal Hafnarhúss sýnir safnið verk nýrra og upprennandi listamanna og nú stendur yfir sýning Maríu Dalberg, Suð. „Sterkur gulur litur er í þeirri sýningu og er notalegt að koma þangað inn í skammdeginu og baða sig í gula litnum. Þetta er svona eins og að koma á sólarströnd,“ segir Áslaug. Þess má geta að sýningunni lýkur 25. nóvember. Andstæður á Kjarvalsstöðum Á Kjarnvalsstöðum standa yfir tvær sýningar. Annars vegar er sýning á málverkum Kjarvals sem heitir …lífgjafi stórra vona og samanstendur af landslagsmyndum og málverkum af fólkinu hans Kjarvals. „Þar er t.d. málverk af leigubílstjóranum sem keyrði Kjarval alltaf upp á Þingvelli. Myndirnar segja sögu Kjarvals á skemmtilegan hátt,“ segir Áslaug. Hins vegar er yfirlitssýning á verkum Haraldar Jónssonar. Sýningin spannar 30 ára feril og heitir Róf og er skemmtileg andstæða við hefðbundin málverk Kjarvals. Verk sem flæða „Haraldur er flinkur að tengja verkin við sýningargesti og umhverfið. Hann fékk íbúa á Flókagötunni til þess að byrgja glugga sína með lituðum gluggatjöldum frá honum og þannig flæða listaverkin út úr safninu, yfir götuna og inn í einkarýmið. Einnig flæðir verk út úr safninu á völdum sunnudögum þegar gestum gefst kostur á að láta taka úr sér blóð og fá það með sér heim. Þannig fer listaverkið inn í, og út úr manneskjunni og hún verður partur af verkinu. Verkið heitir Blóðnám. Fyrir utan safnið eru svo tvö hljóðverk sem ég hvet gesti og gangandi til að koma og hlusta á,“ segir Áslaug. Innrás í Ásmundarsafn Í Ásmundarsafni stendur nú yfir sýning á höfundarverki Ásmundar Sveinssonar frá upphafi. Enn fremur hefur fjórum listamönnum verið boðið að koma og gera listræna innrás inn í sýningarrýmið. Síðasta innrásin stendur nú yfir og er í höndum Margrétar Helgu Sesseljudóttur og nefnist Innrás IV. Spennandi viðburðir Það er alltaf eitthvað um að vera í söfnunum og margs konar viðburðir í gangi. Fyrsta fimmtudag í hverjum mánuði kl. 20.00 er Hafnarhúsið t.d. með kvöldstund fyrir þá sem vilja kynna sér betur myndlist í nútímanum. „Við bjóðum öllum sem hafa áhuga að koma og fá heiðarleg svör við því sem þeim liggur á hjarta varðandi myndlist í samtímanum. Við viljum víkka sjóndeildarhring sem flestra og okkar vilji er að myndlist sé fyrir alla,“ segir Áslaug. Nánari upplýsingar má nálgast á http://listasafnreykjavikur.is/ Netpóstur: listasafn@reykjavik.is Hafnarhús Tryggvagata 17 Sími: 411-6400 Opið: 10–17, fimmtudaga 10–22 Kjarvalsstaðir Flókagata 24 Sími: 411-6420 Opið: 10–17 Ásmundarsafn Sigtún Sími: 411-6430 Opið: maí–september 10–17 október–apríl 13–17 n LISTASAFN REYKJAVÍKUR: Myndlist í skammdeginu Sólveig Aðalsteinsdóttir. Án titils. 1993. Svart og hvítt. Erró. List fyrir fólkið. Ásmundur Sveinsson. Jóhannes. S. Kjarval. Esja í febrúar. Verk Ingólfs Arnarssonar af sýningunni Jarðhæð eða Ground Level.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.