Dagblaðið Vísir - DV - 30.11.2018, Blaðsíða 68
68 30 nóvember 2018
F
yrri heimsstyrjöldin ein-
kenndist af skotgrafahernaði
og umsátrum sem varað
gátu mánuðum eða árum
saman. Sumarið 1915 gerðu Þjóð-
verjar gasárás á eitt rammgerðasta
virki austurvígstöðvanna. Töldu
þeir að varnirnar væru algjörlega
brostnar. Þeim brá hins vegar í
brún þegar Rússar gerðu gagnárás
„dauðra manna.“
Umsátur í næstum heilt ár
Á seinni hluta nítjándu aldar voru
öll stórveldi Evrópu að vígbúast
og traustið á milli þeirra lítið.
Osowiec var eitt rammgerðasta
virki rússneska keisaradæmisins.
Það var byggt árin 1882 til 1892 við
ána Biebrza, þar sem nú er Pól-
land, til að verjast hugsanlegum
árásum Þjóðverja. Osowiec var
eina leiðin yfir ána á stóru svæði.
Auk þess að vera byggt til að þola
árásir þá var virkið einnig varið af
torfæru mýrlendi í kring.
Í september árið 1914, tveim-
ur mánuðum eftir að fyrri heims-
styrjöldin hófst, sendu Þjóðverj-
ar mikið lið að Osowiec. Fjörutíu
deildir þýskra fótgönguliða herj-
uðu á langtum fámennari rúss-
neska deild sem varði virkið. Um
tíma komust þýskar stórskota-
deildir í færi við Osowiec en Rúss-
ar náðu að hrekja þá til baka. Við
þetta sat í fjóra mánuði.
Þjóðverjar gerðu aðra stór-
sókn að virkinu í byrjun febrúar
árið 1915. Varð þeim svo ágengt
að stórskotaliðið komst aftur í færi
við virkið. Vel yfir milljón sprengj-
um rigndi yfir Osowiec. Rússar
bjuggust við að missa virkið og
hófu undirbúning að brottflutn-
ingi hersins og almennra borgara
af svæðinu. Fjölmargar byggingar
hrundu og erfitt var að komast á
milli staða. Sprengjurnar dundu
á virkinu með fjögurra mínútna
millibili. Rússnesku herforingj-
arnir vonuðust til að geta haldið
virkinu í tvo sólarhringa en svo
liðu mánuðirnir og herdeildin gaf
sig ekki.
Uppvakningar með byssustingi
Í ágúst árið 1915 töldu Þjóðverjar
sig hafa styrkinn til að ná virkinu
á sitt vald. Þá voru fimm hundruð
Rússar eftir í virkinu. Þjóðverjar
biðu eftir hagstæðri vindátt sem
kom sjötta þess mánaðar og létu
klórgashylkjum rigna yfir svæðið.
Á eftir gasinu komu tólf herfylki,
samanlagt sjö þúsund fótgöngu-
liðar. Bjuggust þeir við því að
mæta lítilli eða engri mótspyrnu
og að vel flestir Rússarnir væru
dauðir.
Annað kom hins vegar á
daginn. Út úr gasmekkinum komu
á bilinu sextíu til hundrað eftirlif-
andi rússneskir hermenn og hófu
gagnsókn. Það var ófrýnileg sjón.
Rússarnir komu hlaupandi með
byssustingina mundaða. Þeir voru
með blóðuga klúta fyrir vitunum
og alvarleg brunasár í andlitun-
um. Þeir hræktu blóði og tægjum
úr eigin lungum og öndunarvegi.
Það var eins og her uppvakninga
kæmi aðvífandi að.
Þessi sýn olli svo miklu upp-
námi meðal þýsku hermannanna
að þeir tvístruðust og hlupu til
baka. Þeir festust í drullunni og
tröðkuðu hver annan niður. Margir
þeirra festust í gaddavír þýska
hersins og urðu auðveld bráð fyrir
Rússana. Loks hófu Rússarnir
skothríð og stráfelldu Þjóðverjana.
Síðan héldu þeir aftur í virkið og
tóku sínar stöður á ný.
Slembilukka
Þjóðverjar gerðu ekki aftur árás á
Osowiec en Rússar héldu virkinu
ekki lengi eftir þetta. Þeir gerðu sér
grein fyrir að atvikið, sem hefur
fengið nafnið „árás hinna dauðu“,
var slembilukka. Á endanum
myndi virkið falla. Tveimur vikum
seinna, þann 18. ágúst, yfirgáfu
Rússar Osowiec og eyðilögðu það
sem þeir gátu.
Osowiec varð aftur orrustu-
svæði í seinni heimsstyrjöldinni
og eftir stríðið var staðurinn gerð-
ur að bækistöð fyrir pólska flug-
herinn. Enn þá stendur hluti virk-
isins sem byggt var fyrir um 120
árum. Í dag er þar minnisvarði
um umsátrið mikla árin 1914 og
1915. n
TÍMAVÉLIN -ERLENT
Þitt er valið
Þú velur að kaupa innréttinguna í
ósamsettum einingum, eða lætur okkur um
samsetninguna. Að sjálfsögðu önnumst við
líka uppsetningu og endanlegan frágang.
Fullkomin þjónusta, eigið verkstæði.
Fjölbreytt úrval aF hurðum, Framhliðum,
klæðningum og einingum
ELDHÚSINNRÉTTINGAR
styrkur - ending - gæði
HÁGÆða DaNSKar
Askalind 3 • 201 Kópavogur • Sími: 562 1500 • friform.is
Opið:
Mán. til föstudaga kl. 09 til 18
Laugardaga kl. 11 til 15
„Þeir hræktu
blóði
og tægjum úr
eigin lungum og
öndunarvegi
Osowiec Hluti virkisins stendur enn.
ÁRÁS HINNA DAUÐU
Gagnárás gasbrenndra hermanna á austurvígstöðvunum
Kristján Kristjánsson
ritstjorn@dv.is
Uppnám Þjóðverjarnir
tvístruðust þegar þeir
mættu her hinna dauðu.