Dagblaðið Vísir - DV - 30.11.2018, Síða 33
Bækur og menning 30. nóvember 2018 KYNNINGARBLAÐ
Bóksala stúdenta er staðsett í hjarta háskólasamfélagsins á Háskólatorgi, sem er við
hlið aðalbyggingar Háskóla Íslands.
„Bóksalan leggur áherslu á að
vera almenn bókabúð, sem býður
upp á allar jólabækurnar, auk
þess að þjónusta námsmenn með
þeirra bækur,“ segir Óttarr Proppé
verslunarstjóri. „Við leggjum okkur
eftir því að vera aðal bókabúð allra
okkar viðskiptavina.“
Bóksalan er komin í jólabúninginn
og þar fást allar jólabækurnar á vel
samkeppnishæfu verði, auk þess
sem boðið er upp á mikið úrval af
erlendum bókum og gjafavöru, sem
kemur mestmegnis frá Englandi
og Hollandi. „Bæði vörur fyrir börn
og skemmtilegar smávörur, eins og
kaffibollar, skrautvara og fleira. Við
leggjum áherslu á umhverfisvænar
og skemmtilegar vörur, og sumar eru
tengdar bókaútgefendum sem við
erum í miklum viðskiptum við.“
Bóksalan býður upp á notalega
stemningu í jólaatinu, faglega og
persónulega þjónustu, það er gott
aðgengi og næg bílastæði. Tilvalið er
að setjast niður í bókakaffinu og fletta
jólabókunum.
„Það er góð og skemmtileg
stemning hjá okkur, eins og við viljum
hafa það, alls konar fólk, bækur,
leikföng, ritföng og hvaðeina, og
við lítum svo á að bókakaffið okkar
sé falin perla,“ bætir Óttarr við, en
Bókakaffi stúdenta er í samstarfi við
Te & Kaffi og með vörur og vélar frá
þeim. „Margir hafa komist á bragðið
með að hittast í bókakaffinu hjá okkur
og það er hluti af jólastemningunni,
að hittast og njóta aðventunnar
saman.
Það er hlutverk okkar sem bóksala
að vekja athygli á því sem okkur þykir
skara fram úr,“ segir Óttar aðspurður
hvort starfsfólkið lesi jólabækurnar.
„Við erum í kapphlaupi að lesa
jólabækurnar og erum að undirbúa
okkur fyrir að tilnefna bókaverðlaun
bóksala, sem verða tilkynnt í Kiljunni
12. desember.“
Auk þess að bjóða upp á bækurnar
sem koma út fyrir jólin, er Bóksalan
stór bókabúð með mikið úrval, bæði
fræðibækur og almennar bækur, en
að sögn Óttars eru um 12–15 þúsund
titlar til í versluninni hverju sinni. Fáist
bókin ekki í versluninni má nýta sér
pöntunarþjónustuna.
„Við erum með öfluga
sérpöntunarþjónustu og getum
útvegað flestar fáanlegar bækur,“
segir Óttarr, en sú þjónusta er vinsæl
og vex sífellt, enda býr bóksalan yfir
öflugum vef og góðum tengslum
við innlenda og erlenda útgefendur
og forlög. „Áherslan er að við
viljum þjónusta alla og útvega allar
bækur sem óskað er eftir. T.d. er
hægt að skoða úrvalið á boksala.
is úti á sjó, ganga frá kaupum og fá
bókunum innpakkað, þannig að allt
sé tilbúið þegar menn koma í land á
Þorláksmessu.“
Bóksala stúdenta er á
Háskólatorgi, Sæmundargötu 4.
Síminn er 570-0777 og netfangið
boksala@boksala.is. Opið er virka
daga frá kl. 9–18, en alltaf er opið í
vefversluninni á boksala.is. Fyrir jólin
er boðið upp á ókeypis innpökkun,
bæði í verslun og í vefverslun.
Lengri opnunartími er síðustu
tvær helgarnar í desember, helgina
15.–16. desember er opið kl. 12–16 og
laugardaginn 22. desember kl. 12–16,
á Þorláksmessu verður síðan opið kl.
12–19. n
BÓKSALA STÚDENTA:
Persónuleg þjónusta
og góð stemning