Dagblaðið Vísir - DV - 30.11.2018, Blaðsíða 33

Dagblaðið Vísir - DV - 30.11.2018, Blaðsíða 33
Bækur og menning 30. nóvember 2018 KYNNINGARBLAÐ Bóksala stúdenta er staðsett í hjarta háskólasamfélagsins á Háskólatorgi, sem er við hlið aðalbyggingar Háskóla Íslands. „Bóksalan leggur áherslu á að vera almenn bókabúð, sem býður upp á allar jólabækurnar, auk þess að þjónusta námsmenn með þeirra bækur,“ segir Óttarr Proppé verslunarstjóri. „Við leggjum okkur eftir því að vera aðal bókabúð allra okkar viðskiptavina.“ Bóksalan er komin í jólabúninginn og þar fást allar jólabækurnar á vel samkeppnishæfu verði, auk þess sem boðið er upp á mikið úrval af erlendum bókum og gjafavöru, sem kemur mestmegnis frá Englandi og Hollandi. „Bæði vörur fyrir börn og skemmtilegar smávörur, eins og kaffibollar, skrautvara og fleira. Við leggjum áherslu á umhverfisvænar og skemmtilegar vörur, og sumar eru tengdar bókaútgefendum sem við erum í miklum viðskiptum við.“ Bóksalan býður upp á notalega stemningu í jólaatinu, faglega og persónulega þjónustu, það er gott aðgengi og næg bílastæði. Tilvalið er að setjast niður í bókakaffinu og fletta jólabókunum. „Það er góð og skemmtileg stemning hjá okkur, eins og við viljum hafa það, alls konar fólk, bækur, leikföng, ritföng og hvaðeina, og við lítum svo á að bókakaffið okkar sé falin perla,“ bætir Óttarr við, en Bókakaffi stúdenta er í samstarfi við Te & Kaffi og með vörur og vélar frá þeim. „Margir hafa komist á bragðið með að hittast í bókakaffinu hjá okkur og það er hluti af jólastemningunni, að hittast og njóta aðventunnar saman. Það er hlutverk okkar sem bóksala að vekja athygli á því sem okkur þykir skara fram úr,“ segir Óttar aðspurður hvort starfsfólkið lesi jólabækurnar. „Við erum í kapphlaupi að lesa jólabækurnar og erum að undirbúa okkur fyrir að tilnefna bókaverðlaun bóksala, sem verða tilkynnt í Kiljunni 12. desember.“ Auk þess að bjóða upp á bækurnar sem koma út fyrir jólin, er Bóksalan stór bókabúð með mikið úrval, bæði fræðibækur og almennar bækur, en að sögn Óttars eru um 12–15 þúsund titlar til í versluninni hverju sinni. Fáist bókin ekki í versluninni má nýta sér pöntunarþjónustuna. „Við erum með öfluga sérpöntunarþjónustu og getum útvegað flestar fáanlegar bækur,“ segir Óttarr, en sú þjónusta er vinsæl og vex sífellt, enda býr bóksalan yfir öflugum vef og góðum tengslum við innlenda og erlenda útgefendur og forlög. „Áherslan er að við viljum þjónusta alla og útvega allar bækur sem óskað er eftir. T.d. er hægt að skoða úrvalið á boksala. is úti á sjó, ganga frá kaupum og fá bókunum innpakkað, þannig að allt sé tilbúið þegar menn koma í land á Þorláksmessu.“ Bóksala stúdenta er á Háskólatorgi, Sæmundargötu 4. Síminn er 570-0777 og netfangið boksala@boksala.is. Opið er virka daga frá kl. 9–18, en alltaf er opið í vefversluninni á boksala.is. Fyrir jólin er boðið upp á ókeypis innpökkun, bæði í verslun og í vefverslun. Lengri opnunartími er síðustu tvær helgarnar í desember, helgina 15.–16. desember er opið kl. 12–16 og laugardaginn 22. desember kl. 12–16, á Þorláksmessu verður síðan opið kl. 12–19. n BÓKSALA STÚDENTA: Persónuleg þjónusta og góð stemning
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.