Dagblaðið Vísir - DV - 30.11.2018, Qupperneq 86
86 FÓLK 30 nóvember 2018
75.900.000 kr.
SPÓAHÖFÐI 2, 270 MOSFELLSBÆR
Fallegt 4-5 herbergja endaraðhús á eftirsóttum stað í
Mosfellsbæ. Húsið er í heildina 179,6 fm, þar af bílskúr
29,6 fm. Mjög rúmgott risloft með óskráðum fm. nýtt í
dag sem sjónvarpsherb. og skrifst. Bílskúr er með góðri
lofthæð og geymslulofti (óskráður gólfflötur). Bílaplan
með hitalögn. Húsið var málað að utan sumarið 2017.
Halla Unnur Helgadóttir, lögg. fast. s.659 4044
Nánari upplýsingar veitir: Elín Urður, aðstm.,
elin@gimli.is, s. 690 2602 eða halla@gimli.is
Tegund
Stærð
Endaraðhús
179 M2
Bjó
ðu
m
up
pá
frít
t s
ölu
ve
rðm
at
gimli.is / Grensásvegi 13 / 108 Reykjavík / 570 4800 / gimli@gimli.is
Næsti kafli
hefst hjá okkur
L
ilja Ingvadóttir vaknaði upp
við vondan draum fyrir tíu
árum þegar talan á vigtinni
nálgaðist 100 kíló. Hún ákvað
að stíga upp úr sófanum, setja
sjálfa sig í fyrsta sæti og byrjaði í
líkamsrækt. Í dag er hún 47 ára, í
besta formi lífs síns og keppir inn
an skamms í fyrsta alþjóðlega fit
nessmótinu sem haldið verður á Ís
landi.
Lilja er lærður snyrtifræðingur,
var með eigin rekstur og vann síð
an á annarri stofu. Fyrir nokkrum
árum lærði hún einkaþjálfun í Keili
og fór að þjálfa konur í Sporthús
inu. „Ég fann bara að þetta togaði
í mig, mér finnst þetta svo gaman,
það er frábært að sjá aðra ná ár
angri og geta miðlað eigin reynslu.“
Í dag er hún búin að vinna sem
einkaþjálfari í fjögur ár og segir
að hana langi að hjálpa öðrum að
ná árangri. Lilja ólst upp í Borgar
nesi, var alltaf á fullu í alls konar
íþróttum og átti hreinlega heima
í íþróttahúsinu. „Það var ekkert
gjald fyrir hvert sport, heldur bara
eitt gjald og maður mátti æfa allt,
þannig að maður var þarna allan
daginn. Ég hef alltaf hreyft mig, þó
með smá pásum á milli, áður en ég
tók málin föstum tökum fyrir tíu
árum.
Ég tengi best við konur sem eru
í sömu stöðu og ég var í, búnar að
setja sig í aftasta sætið, alltaf þreytt
ar, með slen, líður ekki vel andlega.
Fyrir 10 árum þá small þetta allt
í einu hjá mér eitt kvöldið, ég var
komin með nóg,“ segir Lilja, sem
var þá á enn einum megrunarkúrn
um. „Maður bara gleymdi sér, setti
sjálfan sig í aftasta sæti og hugsaði
um alla aðra. Maður byrjar að bæta
á sig, meðal annars eftir barns
burð, og maður borðaði bara það
sem hendi var næst. Svo allt í einu
er maður orðinn of þungur og líð
ur illa í skrokknum. Ég fór í rækt
ina, fékk mér einkaþjálfara, tók til í
mataræðinu og missti 30 kíló á einu
ári og hef haldið mér í formi síðan.“
Lilja á tvö börn, 29 ára dóttur
og 22 ára son. Sonurinn býr heima
og borðar bara sama mat og móðir
sín. „Þannig að hollustan skilar sér
til barnanna, maður þarf að borða
og ég er ekki dýr þar,“ segir Lilja að
spurð hvort sportið sé ekki kostn
aðarsamt. Einnig nýtur hún að
stoðar góðra styrktaraðila, meðal
annars meðferða hjá Heilsu og út
liti og Húðfegrun.
Hefðbundnir dagar hjá Lilju
byrja snemma, hún byrjar að þjálfa
snemma, klukkan 6 á morgnana og
þjálfar fram að hádegismat. Síðan
fer hún sjálf á æfingu og þjálfar síð
an aðra seinni partinn.
„Þegar ég var búin að vera 3–4 ár
í ræktinni þá fór fólk að spyrja mig
af hverju ég væri ekki að keppa og
ég spurði bara hvað væri að fólk
inu,“ segir Lilja, sem sagði fólk hafa
svarað að hún væri með Xfaktor
inn og bygginguna, þrátt fyrir að
hún hafi ekki séð hana sjálf. Hún
keppti á tveimur mótum, áður en
hún fór að æfa undir handleiðslu
fitnesskonungs Íslands, Konráðs
Vals Gíslasonar.
„Mér finnst gaman að vera hjá
Konna, hann pælir allt út og hvað
er í gangi, nýjar rannsóknir, nýjar
uppgötvanir, hvað er hægt að gera
til að hlutirnir verði betri. Það er
enginn eins, sumir þurfa að borða
meira, aðrir minna. Svo er spurn
ing hvar hausinn á þér er staddur,
það er númer 1, 2 og 3. Maður pælir
meira í því þegar maður er í undir
búningnum, en aðra daga getur
maður verið misupplagður og þarf
að hvíla sig meira suma daga og
aðra ekki.“
Lilja keppti á Íslandsmótinu
í fyrra og í ár á Arnold Classic í
Bandaríkjunum og á Royal London
Proviku síðar í London. „Mér gekk
mjög vel, varð í 18. sæti á Arnold,
þar var risahópur, og í 8. sæti í
London. Þarna setur maður sér
ákveðinn standard, þetta er ólíkt;
Íslandsmót og svo erlendu mótin,
þarna er maður bara að keppa á
móti þeim bestu í heimi.
Ég er spennt fyrir fyrsta fitness
mótinu og hlakka líka til að sjá hvað
gerist eftir það,“ segir Lilja.
Á þessu móti er hægt að sækja
um „pro card“, atvinnumanns
skírteini sem gefur keppendum
kost á að taka þátt í stærstu mót
um heims. „Það er fjöldi fólks að
reyna við það og þetta dregur fólk
að alls staðar frá. Þetta mót getur
ekki verið í betri höndum en hjá
Konna. Svo er hann svo rólegur yfir
þessu og ég er bara; hvernig ferðu
að þessu?“
Lilja endar á að segja að þegar
hún byrjaði að keppa hafi margir
viljað draga úr henni kjarkinn: „Af
hverju ertu að þessu komin á þenn
an aldur?, félagslegur þrýstingur
var mikill, boð og fólk að skipta sér
af hvað ég væri að borða og drekka,
af hverju ég væri ekki að drekka.
Krakkarnir spurðu mig hvort ég
gæti ekki sleppt æfingu af því þá
langaði að gera annað og ég sagði
bara: „Nei, það er ekki í boði“, ég
setti sjálfa mig algjörlega í fyrsta
sæti.
Ég hugsa þetta bara út frá mér,
ég er að gera þetta fyrir mig,“ segir
Lilja, sem er að uppskera árangur
erfiðis síns, eitt mót í einu.
Hún hvetur alla til að drífa sig
upp úr sófanum og bæta lífsgæði
sín. „Ef þú hugsar ekki vel um þig
núna þá færðu það í bakið seinna.
Byrjaðu núna, ekki á morgun eða
2019, farðu af stað núna, bara eitt
hvað einfalt sem þú treystir þér í og
bættu ofan á það.
Ekki fara í megrunarkúra, þeir
skila aldrei neinu. Hugsaðu að þú
ætlir að gera þetta þar til þú ferð í
gröfina.“ n
„Ég er
alltaf
að ögra
sjálfri mér“
Ragna Gestsdóttir
ragna@dv.is