Dagblaðið Vísir - DV - 30.11.2018, Side 58

Dagblaðið Vísir - DV - 30.11.2018, Side 58
Hreint fyrir jólin 30. nóvember 2018KYNNINGARBLAÐ Er gamla æðardúnssængin þín orðin slitin? Fólki þykir eðlilega vænt um æðardúnssængurnar sínar enda afskaplega notalegt að sofa með slíkar ábreiður ofan á sér. En æðardúnssængur slitna eins og aðrir veraldlegir hlutir og stundum fara þær að leka að auki og æðardúnninn getur verið orðið óhreinn. Margir vita ekki að hér á landi er hægt að fá þá þjónustu að fá gömlu slitnu æðardúnssængurnar sínar góðar á ný. Dóróthea Guðrún Sigvaldadóttir rekur fyrirtækið Morgunroða, sem staðsett er við Borgarnes, og þar er meðal annars boðið upp á þá þjónustu að koma með slitnar æðardúnssængur. Æðardúnninn er þá þveginn og settur í nýtt ver og fólk fær til baka mjúka, slétta og fallega æðardúnssæng. „Við þvoum æðardúninn, skiptum um dúnver á gömlum æðardúnssængum og setjum nýjan æðardún í dúnver. Einnig seljum við nýjar æðardúnssængur og merkjum æðardúnssængur,“ segir Dóróthea. Fyrir utan þessa þjónustu við sængureigendur sinnir Morgunroði öllum æðardúnsþvotti fyrir dúnhreinsistöðvar. Dóróthea fær þá æðardúninn til sín hreinsaðan og skilar honum hreinum til baka svo hann er tilbúinn í framleiðsluvörur, sængur eða annað. Dúnþvotturinn er þar í vissum skilningi hluti af framleiðsluferlinu. Enn fremur sinnir Morgunroði dúnþvotti fyrir einstaklinga sem hafa dúntekju og þurfa að láta þvo dúninn sinn. Margt dúntekjufólk veit ekki af þessari þjónustu en hún getur komið sér afar vel. Til að kynna sér og nýta sér þjónustu Morgunroða ehf. er best að hafa samband í síma 893-2928. n

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.