Dagblaðið Vísir - DV - 30.11.2018, Page 58
Hreint fyrir jólin 30. nóvember 2018KYNNINGARBLAÐ
Er gamla æðardúnssængin
þín orðin slitin?
Fólki þykir eðlilega vænt um æðardúnssængurnar sínar enda afskaplega notalegt
að sofa með slíkar ábreiður ofan
á sér. En æðardúnssængur slitna
eins og aðrir veraldlegir hlutir og
stundum fara þær að leka að auki
og æðardúnninn getur verið orðið
óhreinn. Margir vita ekki að hér á
landi er hægt að fá þá þjónustu að
fá gömlu slitnu æðardúnssængurnar
sínar góðar á ný. Dóróthea Guðrún
Sigvaldadóttir rekur fyrirtækið
Morgunroða, sem staðsett er við
Borgarnes, og þar er meðal annars
boðið upp á þá þjónustu að koma
með slitnar æðardúnssængur.
Æðardúnninn er þá þveginn og settur
í nýtt ver og fólk fær til baka mjúka,
slétta og fallega æðardúnssæng.
„Við þvoum æðardúninn,
skiptum um dúnver á gömlum
æðardúnssængum og setjum nýjan
æðardún í dúnver. Einnig seljum við
nýjar æðardúnssængur og merkjum
æðardúnssængur,“ segir Dóróthea.
Fyrir utan þessa þjónustu við
sængureigendur sinnir Morgunroði
öllum æðardúnsþvotti fyrir
dúnhreinsistöðvar. Dóróthea fær þá
æðardúninn til sín hreinsaðan og
skilar honum hreinum til baka svo
hann er tilbúinn í framleiðsluvörur,
sængur eða annað. Dúnþvotturinn
er þar í vissum skilningi hluti af
framleiðsluferlinu.
Enn fremur sinnir Morgunroði
dúnþvotti fyrir einstaklinga sem hafa
dúntekju og þurfa að láta þvo dúninn
sinn. Margt dúntekjufólk veit ekki af
þessari þjónustu en hún getur komið
sér afar vel.
Til að kynna sér og nýta sér
þjónustu Morgunroða ehf. er best að
hafa samband í síma 893-2928. n