Dagblaðið Vísir - DV - 30.11.2018, Blaðsíða 70
70 MENNING 30. nóvember 2018
S
káldsagan Ungfrú Ísland,
eftir Auði Övu, gerist á
æviskeiði aðalsöguhetj-
unnar Heklu, sem flytur í
bæinn til þess að vinna og skrifa.
Við fjögurra ára aldur gýs eldfjall-
ið Hekla (líklega 1947) og hef-
ur óafturkræf áhrif á söguhetj-
una. Þar hefur fæðst nýtt skáld,
að vísu fjórum árum of snemma.
Bókin sýnir hlutverkin sem
Heklu stendur til boða í samfé-
laginu sem hún fæðist inn í. Á
leiðinni til Reykjavíkur er henni
boðið að taka þátt í fegurðar-
keppninni Ungfrú Ísland sem
geti komið henni til útlanda.
Ísey, vinkona Heklu, er að sama
skapi víti til varnaðar. Ísey er föst
í eiginkonu- og móðurhlutverki,
hugsar og talar eins og skáld,
skrifar stundum í óþökk eigin-
manns síns, en gefur þó ekkert
út. Einnig er að finna í bókinni
konu sem klárar aldrei setningar
sínar, klárar aldrei heila hugsun.
En Hekla er hetja. Hún þrástag-
ast við að skrifa sem hefur áhuga-
verðar afleiðingar í för með sér.
Vængstýfðar skáldsystur
Skáldkonan Hekla er líklega
lauslega byggð á skáldkonunni
Unni Benediktsdóttur Bjarklind
sem ferðaðist um Evrópu, skrif-
aði undir dulnefninu Hulda og
dó ári áður en Hekla gaus. Hulda
var áhugavert, jafnvel frumlegt
skáld og er einna þekktust fyr-
ir að endurvekja þuluformið
í ljóðaskáldskap. Hennar
þekktasta ljóð, fyrir utan „Hver
á sér fegra föðurland“ er án efa
ljóðið „Ljáðu mér vængi“. Ung-
frú Ísland er stútfull af mynd-
máli um fugla, lýsingum á fugl-
um og sögupersónur líkja sér við
fugla. Það er því ekki fjarstæða að
hugurinn tengi saman Heklu og
Huldu.
„Grágæsamóðir,
ljáðu mér vængi,“
svo ég geti svifið
suður yfir höf.
…
Langt í burt ég líða vil
ljá mér samfylgd þína.
Enga vængi á ég til,
utan löngun mína,
utan þrá og æskulöngun mína.
Auður segir bókina fjalla um
það hvernig samfélagið væng-
stýfir skapandi, viðkvæmt og
næmt fólk og birtist það ljós-
lifandi í kærasta Heklu. Hann
er sjálfur skáld og ætti að skilja
sköpunarþörf Heklu. Samfélagið
nær þó lúmskum tökum á honum
og Hekla neyðist til þess að gera
breytingar á lífi sínu. Vængstýfð-
asti fugl bókarinnar er ekki Hekla
sjálf, heldur vinurinn Davíð Jón
John Stefánsson Johnsson. Jón
John er „hómósexúalisti“ eins og
það er nefnt í bókinni og á tíma
bókarinnar er slíkum karakter-
um ekki tekið vel. Þarna sést að
þó svo einn hópur í samfélaginu
fái aukin réttindi er alltaf þörf
fyrir breytingar, því það eru alltaf
einhverjir sem sitja eftir.
Karlar sem eigna sér verk
kvenna
Auður Ava segist hafa viljað „…
búa til frumlegan kvenrithöf-
und sem gæti hafa verið til ef
samfélagið hefði verið öðru-
vísi“, eins og segir í bókmennta-
þættinum Kiljunni. Þegar Hekla
kemur í bæinn hefur hún fengið
nokkur ljóð birt í virtum tímarit-
um, en aldrei undir eigin nafni,
líkt og Hulda. Það kemur líka
í ljós að aðrir karlrithöfundar
hika ekki við að eigna sér verk
Heklu ef á þá eru bornar sakirn-
ar. Í bókmenntasögunni er fjöldi
dæma þess að efast hafi verið um
ágæti kvenrithöfunda. Þær jafn-
vel sagðar hafa fengið ótæpi-
lega hjálp frá eiginmönnum sín-
um við handrit sín, eins og sagt
var um Mary Shelley, höfund
Frankenstein. Með Ungfrú Ís-
land nær Auður að snúa þessu
við og setur spurningarmerki við
að öll þau skáldverk, sem komið
hafa út eftir karlkyns rithöfunda,
séu í raun eftir þá. Þeir gætu allt
eins hafa ljáð skáldsystrum sín-
um nafn sitt og vængi svo bækur
þeirra yrðu gefnar út. Og til þess
að setja punktinn yfir i-ið vísar
kápan í hönnun Gísla B. Björns-
sonar á bókarkápu Dagleiðar á
fjöllum eftir Halldór Kiljan Lax-
ness, en að margra mati hefði
nóbelsskáldið líklegast ekki ver-
ið svo afkastamikið ef ekki hefði
verið fyrir eiginkonuna, Auði
Sveinsdóttur.
Fimmta stjarnan
Hvort sem þú sérð Heklu frá
Laugarvatni eða Selfossi líkist
hún alltaf maganum á óléttri
konu, kringluleit, löguleg út-
bungun. Hræringar hóta því að
setja hana af stað þá og þegar
enda er tími til kominn að
jörðin fari bráðum að fæða af
sér nýtt hraun.
Ég veit vel að gagnrýnend-
ur eiga að gagnrýna bækur af
hlutleysi og ábyrgð en ég held
að ekki sé til betra hrós fyrir
nokkuð skáld en að vita til þess
að bók þess hafi veitt öðrum
innblástur. Því má kannski líta
á efnisgreinina að framan sem
fimmtu stjörnuna í þessum
fjögurra stjörnu dómi. n
Ritdómur um Ungfrú Ísland:
Skáldað skáld sem gæti hafa verið til
Jóhanna María Einarsdóttir
johanna@dv.is
Bækur
Ungfrú Ísland
Höfundur: Auður Ava Ólafsdóttir
Útgefandi: Benedikt
239 bls.
Nokia 7.1
Með öllu því
nýjasta frá Google
• 12 mp tvöföld
ZEISS myndavél
• full hd+ 5.84” hdr skjár
• 4/64gb minni
ÍMYND
GLÆSILEIKANS
Sundaborg 1
104 Reykjavík
777 2700
xprent@xprent.is
BANNER-UP STANDAR
Ódýr
og einföld
leið l að
kynna
þína vöru.