Dagblaðið Vísir - DV - 30.11.2018, Blaðsíða 66
66 30 nóvember 2018
Þ
að var bjart og kalt að
morgni 6. desember 1917 í
Halifax í Kanada. Franskur
skipstjóri stýrði skipi sínu,
SS Mont Blanc, upp innsiglinguna
að höfninni í Halifax, mikilvæg-
ustu höfn Kanada við Atlantshaf-
ið. Um klukkan 8.30 leit franski
skipstjórinn upp, um leið og skip-
inu var siglt inn í flöskuhálsinn á
milli innri hafnarinnar og hafsins,
og sá svolítið sem ekki átti að vera
þar. Það var SS Imo, norskt flutn-
ingaskip, sem stefndi beint fyrir SS
Mont Blanc í þessari þröngu inn-
siglingu.
Báðir skipstjórnendurnir
þeyttu flautur skipanna og reyndu
að víkja undan svo skipin rækjust
ekki á hvort annað, en kinnungar
þeirra rákust samt sem áður
saman. Þetta var ekki svo slæm-
ur árekstur að skipin biðu stóran
skaða af. Vandinn var hins vegar
að SS Mont Blanc var fljótandi
sprengja og því var áreksturinn
það versta sem gat gerst. SS Imo
hafði í raun rekist á 3.000 tonna
fljótandi sprengju. Um borð í SS
Mont Blanc voru ýmis hergögn
sem áttu að fara til Evrópu. Auk
þess voru 2.500 tonn af dýnamíti
og mjög sprengifimri sýru um
borð. Dekk skipsins var þakið
bensíntunnum.
Allt þetta olli stærstu
sprengingu af mannavöldum, áður
en kjarnorkuöld hófst, að sögn
sérfræðinga. Sprengingin gjör-
eyddi hafnarsvæðinu og jafnaði
nærri 2,5 ferkílómetra svæði við
höfnina við jörðu. Rúmlega 2.000
manns létust og um 5.000 særð-
ust. Þetta voru tæplega 12 pró-
sent af íbúafjölda Halifax. Massíf-
ir skipsskrokkarnir tættust í smá
hluta sem dreifðust um nágrennið
og í margra kílómetra fjarlægð
frá höfninni. Hálfs tonns hluti af
akkerinu þeyttist um þriggja kíló-
metra leið og er enn á þeim stað
þar sem hann lenti, til minningar
um þau ógnaröfl sem þarna voru
að verki. Öflugri sprenging varð
ekki hér jörðinni fyrr en Banda-
ríkjamenn vörpuðu kjarnorku-
sprengju á Hiroshima 1945.
Af litlum neista verður mikið
bál
Það má kannski líkja ástandinu
í borginni eftir sprenginguna við
það sem var í New York í kjölfar
hryðjuverkaárásanna 11. septem-
ber 2001. Blóðugt fólk ráfaði um
götur, byggingar höfðu jafnast við
jörðu og brak lá yfir öllu.
Mikill uppgangstími hafði
verið í Halifax en íbúum borg-
arinnar hafði fjölgað mikið
vegna annríkis í tengslum við
fyrri heimsstyrjöldina. Höfn-
in gegndi mikilvægu hlutverki
hvað varðaði hergagnaflutninga
og var heimahöfn kanadísku og
bresku flotanna. Hún var einnig
meiriháttar birgðastöð herjanna
og þar var tekið við særðum her-
mönnum frá evrópsku vígvöllun-
um.
Mikill mannfjöldi var á hafnar-
svæðinu þegar sprengingin varð
og skar hún sig í gegnum vetrar-
kuldann. SS Mont Blanc hafði tek-
ið farm sinn í Brooklyn í Banda-
ríkjunum og var skipið komið til
Halifax til að slást í för með fleiri
skipum í skipalest til Evrópu. SS
Imo var á leið til New York til að
sækja neyðarbirgðir sem átti að
flytja til Belgíu. Skipstjórar og
stýrimenn beggja voru vanir sigl-
ingum og hafnsögumenn voru um
borð í báðum skipum.
Mikil skipaumferð var í höfn-
inni þennan dag og SS Imo hafði
nýlokið við að sveigja fram hjá
dráttarbáti og bandarísku herskipi
þegar áreksturinn varð en skipið
var þá þvert á siglingaleið SS Mont
Blanc.
Báðir skipstjórarnir reyndu að
forða árekstri skipanna og í smá
stund leit út fyrir að þeim myndi
takast það en á síðustu stundu
ákvað skipstjóri SS Imo að bakka.
Þá sveigði skipið og kinnung-
ur þess lenti á SS Mont Blanc.
Engar sérstakar merkingar voru
á SS Mont Blanc um farm þess.
Fáir vissu hvað var um borð nema
áhöfnin og örfáir hafnarstarfs-
menn. Um leið og bensíntunnurn-
ar opnuðust og eldur komst í þær
þusti áhöfnin að björgunarbát-
unum. Menn réru eins og þeir
gátu í átt til lands og þegar á land
var komið tóku þeir til fótanna og
öskruðu aðvörunarorð til þeirra
sem þeir mættu, en á frönsku. Fáir
íbúar Halifax á þessum tíma töl-
uðu frönsku. Sífellt fleiri hlupu
niður að höfninni til að sjá eldinn
í stað þess að hlaupa á brott enda
vissi fólk ekki um þá miklu hættu
sem var á ferðum.
Stjórnlaust rak SS Mont Blanc
að bryggjukantinum og sendi frá
sér svartan reyk. Slökkviliðsmenn
þustu að skipinu. Áhöfnin á SS
Imo fylgdist með þessu úr löskuðu
skipi sínu. Alls staðar var fólk að
fylgjast með.
Klukkan 9.35 gerðist það síðan.
SS Mont Blanc sprakk í loft upp.
Enn þann dag í dag er klukkan í
ráðhústurninum föst á 09.35 og
hefur verið í rúm 100 ár. Nákvæm
tímasetning sprengingarinnar
fékkst með jarðskjálftamælingum.
Rúmlega 1.600 byggingar
eyðilögðust samstundis og 12.000
til viðbótar skemmdust. Tugir
þúsunda rúða brotnuðu við högg-
bylgjuna og margir, sem höfðu
staðið innan við þær og fylgst með,
slösuðust illa, 37 urðu blindir og
250 misstu sjón á öðru auganu.
Mörg hundruð eldar kviknuðu
þegar hús hrundu til grunna í
kringum eldstæði. Eldurinn barst
í timbrið. Fljótlega ómuðu sárs-
auka- og hryllingsöskur nauð-
staddra um alla borg. Margir létust
af völdum brunasára.
Enn þann dag í dag er fólk að
grafa málm úr SS Mont Blanc upp
úr görðum sínum. Sprengingin var
svo öflug að fallbyssa úr SS Mont
Blanc flaug um fjögurra kílómetra
leið.
Það var kannski ákveðin kald-
hæðni í því að öll áhöfn SS Mont
Blanc lifði af nema einn sem varð
fyrir málmstykki úr skipinu. Allir
sem voru í brú SS Imo létust en
tveir kafarar lifðu af því þeir voru
neðansjávar.
Björgunarstarf hófst
Á næstu klukkustundum streymdu
mörg þúsund hermenn, sjó-
menn, skógarhöggsmenn og aðr-
ir inn á hamfarasvæðið til aðstoð-
ar. Hjúkrunarkonur hersins hófu
strax störf en þær voru vanar að
takast á við mikinn fjölda særðra
í einu. Skurðlæknar störfuðu án
hvíldar.
Aðstoð barst frá bandarísk-
um og breskum herskipum inn-
an skamms. Frá Massachusetts
í Bandaríkjunum var send járn-
brautarlest með læknum, hjúkr-
unarfræðingum og birgðum. Enn
þann dag í dag gefa yfirvöld í Nova
Scotia, þar sem Halifax er, Boston
risastórt jólatré til að sýna þakk-
læti Kanadamanna. n
TÍMAVÉLIN -ERLENT
Dragháls 14-16 Sími 412 1200
110 Reykjavík www.isleifur.is
Straumhvörf
í neysluvatnsdælum
Grundfos Scala 3-45
Álagsstýrð, heldur jöfnum þrýsting og
hljóðlát. Dregur vatn allt að 8 metra
Innbyggð þurrkeyrsluvörn
Afkastar 8 aftöppunar stöðvum
Kristján Kristjánsson
ritstjorn@dv.is
2.000 manns létust
Harm -
leikurinn
í Halifax
Hermenn
Björgunar-
starf eftir
sprengingarnar.