Dagblaðið Vísir - DV - 30.11.2018, Síða 66

Dagblaðið Vísir - DV - 30.11.2018, Síða 66
66 30 nóvember 2018 Þ að var bjart og kalt að morgni 6. desember 1917 í Halifax í Kanada. Franskur skipstjóri stýrði skipi sínu, SS Mont Blanc, upp innsiglinguna að höfninni í Halifax, mikilvæg- ustu höfn Kanada við Atlantshaf- ið. Um klukkan 8.30 leit franski skipstjórinn upp, um leið og skip- inu var siglt inn í flöskuhálsinn á milli innri hafnarinnar og hafsins, og sá svolítið sem ekki átti að vera þar. Það var SS Imo, norskt flutn- ingaskip, sem stefndi beint fyrir SS Mont Blanc í þessari þröngu inn- siglingu. Báðir skipstjórnendurnir þeyttu flautur skipanna og reyndu að víkja undan svo skipin rækjust ekki á hvort annað, en kinnungar þeirra rákust samt sem áður saman. Þetta var ekki svo slæm- ur árekstur að skipin biðu stóran skaða af. Vandinn var hins vegar að SS Mont Blanc var fljótandi sprengja og því var áreksturinn það versta sem gat gerst. SS Imo hafði í raun rekist á 3.000 tonna fljótandi sprengju. Um borð í SS Mont Blanc voru ýmis hergögn sem áttu að fara til Evrópu. Auk þess voru 2.500 tonn af dýnamíti og mjög sprengifimri sýru um borð. Dekk skipsins var þakið bensíntunnum. Allt þetta olli stærstu sprengingu af mannavöldum, áður en kjarnorkuöld hófst, að sögn sérfræðinga. Sprengingin gjör- eyddi hafnarsvæðinu og jafnaði nærri 2,5 ferkílómetra svæði við höfnina við jörðu. Rúmlega 2.000 manns létust og um 5.000 særð- ust. Þetta voru tæplega 12 pró- sent af íbúafjölda Halifax. Massíf- ir skipsskrokkarnir tættust í smá hluta sem dreifðust um nágrennið og í margra kílómetra fjarlægð frá höfninni. Hálfs tonns hluti af akkerinu þeyttist um þriggja kíló- metra leið og er enn á þeim stað þar sem hann lenti, til minningar um þau ógnaröfl sem þarna voru að verki. Öflugri sprenging varð ekki hér jörðinni fyrr en Banda- ríkjamenn vörpuðu kjarnorku- sprengju á Hiroshima 1945. Af litlum neista verður mikið bál Það má kannski líkja ástandinu í borginni eftir sprenginguna við það sem var í New York í kjölfar hryðjuverkaárásanna 11. septem- ber 2001. Blóðugt fólk ráfaði um götur, byggingar höfðu jafnast við jörðu og brak lá yfir öllu. Mikill uppgangstími hafði verið í Halifax en íbúum borg- arinnar hafði fjölgað mikið vegna annríkis í tengslum við fyrri heimsstyrjöldina. Höfn- in gegndi mikilvægu hlutverki hvað varðaði hergagnaflutninga og var heimahöfn kanadísku og bresku flotanna. Hún var einnig meiriháttar birgðastöð herjanna og þar var tekið við særðum her- mönnum frá evrópsku vígvöllun- um. Mikill mannfjöldi var á hafnar- svæðinu þegar sprengingin varð og skar hún sig í gegnum vetrar- kuldann. SS Mont Blanc hafði tek- ið farm sinn í Brooklyn í Banda- ríkjunum og var skipið komið til Halifax til að slást í för með fleiri skipum í skipalest til Evrópu. SS Imo var á leið til New York til að sækja neyðarbirgðir sem átti að flytja til Belgíu. Skipstjórar og stýrimenn beggja voru vanir sigl- ingum og hafnsögumenn voru um borð í báðum skipum. Mikil skipaumferð var í höfn- inni þennan dag og SS Imo hafði nýlokið við að sveigja fram hjá dráttarbáti og bandarísku herskipi þegar áreksturinn varð en skipið var þá þvert á siglingaleið SS Mont Blanc. Báðir skipstjórarnir reyndu að forða árekstri skipanna og í smá stund leit út fyrir að þeim myndi takast það en á síðustu stundu ákvað skipstjóri SS Imo að bakka. Þá sveigði skipið og kinnung- ur þess lenti á SS Mont Blanc. Engar sérstakar merkingar voru á SS Mont Blanc um farm þess. Fáir vissu hvað var um borð nema áhöfnin og örfáir hafnarstarfs- menn. Um leið og bensíntunnurn- ar opnuðust og eldur komst í þær þusti áhöfnin að björgunarbát- unum. Menn réru eins og þeir gátu í átt til lands og þegar á land var komið tóku þeir til fótanna og öskruðu aðvörunarorð til þeirra sem þeir mættu, en á frönsku. Fáir íbúar Halifax á þessum tíma töl- uðu frönsku. Sífellt fleiri hlupu niður að höfninni til að sjá eldinn í stað þess að hlaupa á brott enda vissi fólk ekki um þá miklu hættu sem var á ferðum. Stjórnlaust rak SS Mont Blanc að bryggjukantinum og sendi frá sér svartan reyk. Slökkviliðsmenn þustu að skipinu. Áhöfnin á SS Imo fylgdist með þessu úr löskuðu skipi sínu. Alls staðar var fólk að fylgjast með. Klukkan 9.35 gerðist það síðan. SS Mont Blanc sprakk í loft upp. Enn þann dag í dag er klukkan í ráðhústurninum föst á 09.35 og hefur verið í rúm 100 ár. Nákvæm tímasetning sprengingarinnar fékkst með jarðskjálftamælingum. Rúmlega 1.600 byggingar eyðilögðust samstundis og 12.000 til viðbótar skemmdust. Tugir þúsunda rúða brotnuðu við högg- bylgjuna og margir, sem höfðu staðið innan við þær og fylgst með, slösuðust illa, 37 urðu blindir og 250 misstu sjón á öðru auganu. Mörg hundruð eldar kviknuðu þegar hús hrundu til grunna í kringum eldstæði. Eldurinn barst í timbrið. Fljótlega ómuðu sárs- auka- og hryllingsöskur nauð- staddra um alla borg. Margir létust af völdum brunasára. Enn þann dag í dag er fólk að grafa málm úr SS Mont Blanc upp úr görðum sínum. Sprengingin var svo öflug að fallbyssa úr SS Mont Blanc flaug um fjögurra kílómetra leið. Það var kannski ákveðin kald- hæðni í því að öll áhöfn SS Mont Blanc lifði af nema einn sem varð fyrir málmstykki úr skipinu. Allir sem voru í brú SS Imo létust en tveir kafarar lifðu af því þeir voru neðansjávar. Björgunarstarf hófst Á næstu klukkustundum streymdu mörg þúsund hermenn, sjó- menn, skógarhöggsmenn og aðr- ir inn á hamfarasvæðið til aðstoð- ar. Hjúkrunarkonur hersins hófu strax störf en þær voru vanar að takast á við mikinn fjölda særðra í einu. Skurðlæknar störfuðu án hvíldar. Aðstoð barst frá bandarísk- um og breskum herskipum inn- an skamms. Frá Massachusetts í Bandaríkjunum var send járn- brautarlest með læknum, hjúkr- unarfræðingum og birgðum. Enn þann dag í dag gefa yfirvöld í Nova Scotia, þar sem Halifax er, Boston risastórt jólatré til að sýna þakk- læti Kanadamanna. n TÍMAVÉLIN -ERLENT Dragháls 14-16 Sími 412 1200 110 Reykjavík www.isleifur.is Straumhvörf í neysluvatnsdælum Grundfos Scala 3-45 Álagsstýrð, heldur jöfnum þrýsting og hljóðlát. Dregur vatn allt að 8 metra Innbyggð þurrkeyrsluvörn Afkastar 8 aftöppunar stöðvum Kristján Kristjánsson ritstjorn@dv.is 2.000 manns létust Harm - leikurinn í Halifax Hermenn Björgunar- starf eftir sprengingarnar.
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.