Dagblaðið Vísir - DV - 30.11.2018, Síða 68

Dagblaðið Vísir - DV - 30.11.2018, Síða 68
68 30 nóvember 2018 F yrri heimsstyrjöldin ein- kenndist af skotgrafahernaði og umsátrum sem varað gátu mánuðum eða árum saman. Sumarið 1915 gerðu Þjóð- verjar gasárás á eitt rammgerðasta virki austurvígstöðvanna. Töldu þeir að varnirnar væru algjörlega brostnar. Þeim brá hins vegar í brún þegar Rússar gerðu gagnárás „dauðra manna.“ Umsátur í næstum heilt ár Á seinni hluta nítjándu aldar voru öll stórveldi Evrópu að vígbúast og traustið á milli þeirra lítið. Osowiec var eitt rammgerðasta virki rússneska keisaradæmisins. Það var byggt árin 1882 til 1892 við ána Biebrza, þar sem nú er Pól- land, til að verjast hugsanlegum árásum Þjóðverja. Osowiec var eina leiðin yfir ána á stóru svæði. Auk þess að vera byggt til að þola árásir þá var virkið einnig varið af torfæru mýrlendi í kring. Í september árið 1914, tveim- ur mánuðum eftir að fyrri heims- styrjöldin hófst, sendu Þjóðverj- ar mikið lið að Osowiec. Fjörutíu deildir þýskra fótgönguliða herj- uðu á langtum fámennari rúss- neska deild sem varði virkið. Um tíma komust þýskar stórskota- deildir í færi við Osowiec en Rúss- ar náðu að hrekja þá til baka. Við þetta sat í fjóra mánuði. Þjóðverjar gerðu aðra stór- sókn að virkinu í byrjun febrúar árið 1915. Varð þeim svo ágengt að stórskotaliðið komst aftur í færi við virkið. Vel yfir milljón sprengj- um rigndi yfir Osowiec. Rússar bjuggust við að missa virkið og hófu undirbúning að brottflutn- ingi hersins og almennra borgara af svæðinu. Fjölmargar byggingar hrundu og erfitt var að komast á milli staða. Sprengjurnar dundu á virkinu með fjögurra mínútna millibili. Rússnesku herforingj- arnir vonuðust til að geta haldið virkinu í tvo sólarhringa en svo liðu mánuðirnir og herdeildin gaf sig ekki. Uppvakningar með byssustingi Í ágúst árið 1915 töldu Þjóðverjar sig hafa styrkinn til að ná virkinu á sitt vald. Þá voru fimm hundruð Rússar eftir í virkinu. Þjóðverjar biðu eftir hagstæðri vindátt sem kom sjötta þess mánaðar og létu klórgashylkjum rigna yfir svæðið. Á eftir gasinu komu tólf herfylki, samanlagt sjö þúsund fótgöngu- liðar. Bjuggust þeir við því að mæta lítilli eða engri mótspyrnu og að vel flestir Rússarnir væru dauðir. Annað kom hins vegar á daginn. Út úr gasmekkinum komu á bilinu sextíu til hundrað eftirlif- andi rússneskir hermenn og hófu gagnsókn. Það var ófrýnileg sjón. Rússarnir komu hlaupandi með byssustingina mundaða. Þeir voru með blóðuga klúta fyrir vitunum og alvarleg brunasár í andlitun- um. Þeir hræktu blóði og tægjum úr eigin lungum og öndunarvegi. Það var eins og her uppvakninga kæmi aðvífandi að. Þessi sýn olli svo miklu upp- námi meðal þýsku hermannanna að þeir tvístruðust og hlupu til baka. Þeir festust í drullunni og tröðkuðu hver annan niður. Margir þeirra festust í gaddavír þýska hersins og urðu auðveld bráð fyrir Rússana. Loks hófu Rússarnir skothríð og stráfelldu Þjóðverjana. Síðan héldu þeir aftur í virkið og tóku sínar stöður á ný. Slembilukka Þjóðverjar gerðu ekki aftur árás á Osowiec en Rússar héldu virkinu ekki lengi eftir þetta. Þeir gerðu sér grein fyrir að atvikið, sem hefur fengið nafnið „árás hinna dauðu“, var slembilukka. Á endanum myndi virkið falla. Tveimur vikum seinna, þann 18. ágúst, yfirgáfu Rússar Osowiec og eyðilögðu það sem þeir gátu. Osowiec varð aftur orrustu- svæði í seinni heimsstyrjöldinni og eftir stríðið var staðurinn gerð- ur að bækistöð fyrir pólska flug- herinn. Enn þá stendur hluti virk- isins sem byggt var fyrir um 120 árum. Í dag er þar minnisvarði um umsátrið mikla árin 1914 og 1915. n TÍMAVÉLIN -ERLENT Þitt er valið Þú velur að kaupa innréttinguna í ósamsettum einingum, eða lætur okkur um samsetninguna. Að sjálfsögðu önnumst við líka uppsetningu og endanlegan frágang. Fullkomin þjónusta, eigið verkstæði. Fjölbreytt úrval aF hurðum, Framhliðum, klæðningum og einingum ELDHÚSINNRÉTTINGAR styrkur - ending - gæði HÁGÆða DaNSKar Askalind 3 • 201 Kópavogur • Sími: 562 1500 • friform.is Opið: Mán. til föstudaga kl. 09 til 18 Laugardaga kl. 11 til 15 „Þeir hræktu blóði og tægjum úr eigin lungum og öndunarvegi Osowiec Hluti virkisins stendur enn. ÁRÁS HINNA DAUÐU Gagnárás gasbrenndra hermanna á austurvígstöðvunum Kristján Kristjánsson ritstjorn@dv.is Uppnám Þjóðverjarnir tvístruðust þegar þeir mættu her hinna dauðu.
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.