Dagblaðið Vísir - DV - 30.11.2018, Síða 55

Dagblaðið Vísir - DV - 30.11.2018, Síða 55
KYNNINGARBLAÐ Ábyrgðarmaður: Kolbrún Dröfn Ragnarsdóttir / kolla@dv.is Umsjón: Jóhanna María Einarsdóttir / johanna@dv.is Hreint fyrir jólin ÞRIF OG RÆSTIVÖRUR: Þrif og ræstivörur er um margt afar áhugavert fyrirtæki með mikla sérstöðu. Fyrirtækið er á Akureyri og rekur annars vegar sérverslun með efni og tæki til hreingerninga og veitir hins vegar víðtæka og fjölbreytta ræstinga- og hreingerningarþjónustu til fyrirtækja og einstaklinga. Verslunin er að Frostagötu 4C og er opin virka daga milli kl. 8 og 16. Þar er meðal annars að finna hinar þekktu Evans hreinsivörur frá Bretlandi og margvísleg önnur hreinsiefni. Þar eru einnig margs konar áhöld, vélar og tæki til ræstinga: tuskur, svampar, sköft, skúringavagnar og skúringafötur með vindum. Af öðrum vörum má nefna pappír, pappírsstanda og sápuskammtara frá hinum virta merki Katrin. Enn fremur er mikið úrval af ryksugum, gólfþvottavélum o.fl. undir hinu klassíska Nilfisk- merki til sölu í versluninni, sem og hreingerningarvélar frá þýska framleiðandanum Kärscher – en þar ber hæst afar vinsæla vél til heimilisnota sem bæði skúrar og ryksugar. Kärscher vélin sem bæði skúrar og ryksugar – hefur slegið í gegn hér á landi „Helsta sérstaða verslunarinnar er kannski sú að þar starfar fólk sem er að vinna með þessa hluti alla daga þannig að viðskiptavinir fá mjög sérhæfða ráðgjöf um val og notkun á efnum og tækjum. Þetta er eitthvað sem fólk fær ekki annars staðar. Mörg sterk hreinsiefni eru ekki fyrir alla og þú getur skemmt meira með þeim en gert gagn. Það er mikilvægt að velja rétta vöru sem hentar í viðkomandi verkefni. Við höfum alltaf lagt mikið upp úr persónulegri og góðri þjónustu,“ segir Sveinn Rúnar, annar eigenda fyrirtækisins, en hinn eigandinn er eiginkona hans, Birna Böðvarsdóttir. Starfsemi Þrifa og ræstivara hefur vaxið mikið í gegnum árin en fyrirtækið sinnir daglegum ræstingum og hreingerningum fyrir hina ýmsu aðila, stóra og smáa, fyrirtæki jafnt sem einstaklinga og heimili. Starfsmenn eru nú um 120 talsins, allt í allt. Starfsemin nær víða út fyrir Akureyri: „Við veitum þjónustu alveg austur á firði og vestur fyrir Blönduós. Við erum með föst ræstingarverkefni á Akureyri, Húsavík, Dalvík, Ólafsfirði, Siglufirði, í Mývatnssveit og víðar.“ Nilfisk stenst tímans tönn Sveinn Rúnar segir þörfina mikla og er lögð mikil áhersla á faglega ráðgjöf og persónulega þjónustu í hreingerningum, viðhaldi gólfefna og öðrum sérverkefnum. Fyrirtækið sinnir margs konar vandasömum sérverkefnum en Sveinn Rúnar telur að sú sérþekking sem fyrirtækið búi yfir á þessu sviði sé fágæt. Meðal stórra viðskiptavina Þrifa og ræstivara er Samkaup en fyrirtækið hefur séð um ræstingar fyrir allar verslanir Samkaupa á Norðurlandi í 12 ár. Einnig má nefna Samherja, Akureyrarbæ, Norðlenska, Íslandsbanka, Sjúkrahúsið á Akureyri, Mjólkursamsöluna og Eimskip. „Við höfum líka sérhæft okkur mjög í tækjabúnaði til að þjónusta tryggingafélög í tjónamálum,“ segir Sveinn Rúnar. „Við erum vel búnir tækjum til að glíma við afleiðingar vatnstjóns, erum t.d. með rakabúnað, skilvindur, blásara og fleira sem til þarf. Einnig erum við sérhæfð í að fást við brunatjón, t.d. með búnaði og tækjum til að fást við þrif eftir bruna og eyða lykt.“ Að sögn Sveins Rúnars eru verkefnin óþrjótandi en mikil áhersla er lögð á að viðhalda þeirri persónulegu þjónustu með faglegri ráðgjöf við viðskiptavini sem ávallt hefur einkennt starfsemi fyrirtækisins þrátt fyrir að það stækki og umsvifin aukist. Nánari upplýsingar um starfsemina veitir Sveinn Rúnar í síma 865-2425 en einnig er að finna upplýsingar á Facebook-síðunni Þrif og ræstivörur sem og á heimasíðunni thrif.is. n Fágæt sérþekking og persónuleg þjónusta Sala á öllum hreinlætisvörum og áhöldum til ræstinga fyrir fyrirtæki, stofnanir og heimili í verslun okkar G rum föst verðtilboð í öll verk, stór eð smá, þér að kostnaðarlausu. Markmið okkar er að veita viðskiptavinum okkar ávallt: Háma ksgæði og árangur, persónulega og góða þjónustu. • Hjá Þrif- og ræstivörum starfa nú um 100 manns við ræstingar og hreingerningar af öllum stærðum og gerðum. • Í dag þjónustum við um 70 fyrirtæki o stofn ir í daglegri ræstingu. • Auk þess rekum við öfluga hreingerni ga- og sérverkefnadeild. Með allt á hreinu í 15 ár • Gluggaþvottur • Aðalhreingerningar • Viðhald gólfefna • Bónleysing og bónun gólfefna • Salernis- og kísilhreinsun • Teppa- og flísahreinsun • Þr f eftir iðnaðarmenn • Bruna- o vatnstjónaþrif • Veggj -, lofta-, ljósa- og gluggaþrif Öll þrif fyrir fyrirtæki, stofnanir og heimili  Dagleg eða regluleg þrif: S la á öllum h einlæt svörum o á öldum til ræstinga fyrir fyrirtæki, stofna ir og heimili í ver lun okk r Gerum föst verðtilboð í öll verk, stór eða smá, þér að kostnaðarlausu. Markmið okkar er að veita viðskiptavinum okkar ávallt: Hámarksgæði og árangur, persónulega og góða þjónustu. • Hjá Þrif- og ræstivörum starfa nú um 100 manns við ræstingar og hreingerningar af öllum stærðum og gerðum. • Í dag þjónustum við um 70 fyrirtæki og stofnanir í daglegri ræstingu. • Auk þess rekum við öfluga hreingerninga- og sérverkefnadeild. Með allt á hreinu í 15 ár • Gluggaþvottur • Aðalhreingerningar • Viðhald gólfefna • Bónleysing og bónun gólfefna • Salernis- og kísilhreinsun • Teppa- og flísahreinsun • Þrif eftir iðnaðarmenn • Bruna- og vatnstjónaþrif • Veggja-, lofta-, ljósa- og gluggaþrif Öll þrif fyrir fyrirtæki, stofnanir og heimili  Dagleg eða regluleg þrif: Sala á öllum hreinlætisvörum og áhöldum til ræstinga fyrir fyrirtæki, stofnanir og heimili í verslun okkar
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.