Dagblaðið Vísir - DV - 07.12.2018, Síða 20
20 7. desember 2018FRÉTTIR
LANDSINS MESTA ÚRVAL BÓKA
Bókabúð Forlagsins | Fiskislóð 39 | www.forlagid.is
1 Ungmennabókum
28. nóv. – 4. des.
Metsölulisti
Eymundsson
Ungmennabækur
28.nóv.– 4.des.
1.
PIZZERIA
DALVEGI 2, 201 KÓPAVOGI
DALSHRAUNI 13, 220 HAFNARFIRÐI
Vísar í vafasöm Youtube-
myndbönd á Alþingi
Varaþingmaður Miðflokksins brást ókvæða við fyrirspurn blaðamanns um heimildir fyrir málflutningi hans á Alþingi
E
ins og frægt er orðið fór
Bergþór Ólason, þingmað-
ur Miðflokksins, í leyfi í vik-
unni vegna Klaustursmáls-
ins svokallaða. Við sæti hans á
þingi tók varaþingmaðurinn Jón
Þór Þorvaldsson en áður hafði
hann leyst Bergþór af hólmi í
október á þessu ári. Fyrsta verk
Jón Þórs á Alþingi var að stíga í
ræðupúlt Alþingis og krefjast um-
ræðna um yfirlýsingu Sameinuðu
þjóðanna um innflytjendur sem
heitir „Global Compact for Safe
Orderly and Regular Migration“.
Hélt varaþingmaðurinn því fram
að yfirgnæfandi hluti þjóðarinnar
myndi setja spurningarmerki við
þann samning ef það stæði fólki til
boða að taka afstöðu til hans.
DV ákvað að kanna málið.
Þegar betur er að gáð sést að ekki
er um eiginlegan samning að ræða
þar sem þjóðirnar sem skrifa undir
yfirlýsinguna taka ekki á sig neinar
lagalegar skuldbindingar og er það
tekið margoft fram í yfirlýsingunni.
Markmið yfirlýsingarnar snýst um
að þjóðir heimsins séu með það
sameiginlega markmið að skerpa
það ferli sem fólk þarf að ganga
í gegnum þegar það er að flytj-
ast á milli landa vegna vinnu eða
náms til dæmis, en um 258 millj-
ónir manna eru innflytjendur um
allan heim. Einnig er tekinn fram
í yfirlýsingunni vilji þjóða að berj-
ast gegn andúð og rasisma gagn-
vart innflytjendum.
Segir að fólk sem hefur aðra
skoðun á yfirlýsingunni gæti
sætt refsingu
Jón Þór var í viðtali í útvarps-
þættinum Reykjavík síðdegis á
Bylgjunni að ræða yfirlýsinguna
þar sem þáttarstjórnandi hélt því
fram að um bindandi samkomu-
lag að ræða, sem það er ekki. Þar
sagði Jón Þór meðal annars:
„Ég fór að rýna í plaggið og lesa
mig aðeins til og fylgjast með um-
ræðum inn í Evrópuþinginu og
sá þar umræður um þessa hluti
og fór þá að lesa þennan samn-
ing og hann er nokkuð langur og
ítarlegur og byrjar á ágætum nót-
um og kannski í grunninn mann-
úðarmál. En eins og allir svona
alþjóðasamningar þá er hann
þannig gerður að þeir sem undir
hann rita, það er enginn þvingað-
ur til þess, en þeir sem undir hann
rita þeir hins vegar gangast undir
skuldbindingar og meðal annars
að færa í lög í sínu heimalandi,
það sem samningurinn fjallar um,
eitt af því er þetta að leiða í lög
þessa skipulögðu, reglubundnu
fólksflutninga. Hitt er líka það að
umræða síðan um þennan samn-
ing, ef hann er genginn í lög, að
þá má ekki hafa skoðun á hon-
um, þannig að einstaklingar sem
hafa skoðun á honum, það varðar
refsingu ef þeir hafa aðra skoðun
en samningurinn kveður á um og
það megi jafnvel loka fjölmiðlum
sem eru þeirrar skoðunar að, eða
eru að útvarpa þeirri skoðun að
þetta sé ekki gott plagg.“
DV hafði samband við Jón Þór
til að spyrja hann út í ræðu hans
á þinginu og yfirlýsinguna sjálfa.
Spurði blaða-
maður
hann
hvort
hann hafi lesið yfirlýsinguna sjálfa
og játaði hann því. Þegar hann
var spurður hvaða ákvæði það
væru í yfirlýsingunni sem myndi
láta fólk sæta refsingu fyrir að tala
gegn yfirlýsingunni eða að jafn-
vel yrði hægt að loka fjölmiðlum
varð fátt um svör. Vísaði þing-
maðurinn á Youtube-myndband
sem hann sagði blaðamanni að
horfa á til að hann myndi nú skilja
hvað hann væri að tala um. Mynd-
bandið sem Jón Þór sendi DV var
merkt ungliðahreyfingu UKIP,
en UKIP er stjórnmálaflokkur í
Bretlandi sem hefur verið harð-
lega gagnrýndur þar í landi
fyrir að ala á fordómum
gagnvart útlendingum. Í
myndbandinu eru fjór-
ir þingmenn Evrópu-
þingsins að ræða yfir-
lýsinguna og segir einn
þingmannanna meðal
annars að með aukn-
um fólksflutningi til
Evrópu fylgi stórkost-
leg aukning á nauðg-
unum og morðum.
„Fordómar þínir
gagnvart Evrópu-
búum eru alveg með
ólíkindum“
„Ég er að biðja um umræðu.
Ef þetta er svona þá getum við
tekið umræðu um það, ef
þetta er ekki svona
þá er það bara
gott mál. Það
er einhver
ástæða fyrir
því að það er
hópur þjóða
sem hafa sagt
sig frá því að skrifa undir þetta,“
segir Jón Þór við DV. Meðal þeirra
ríkja sem ætla ekki að skrifa und-
ir þessa yfirlýsingu eru Pólland,
Austurríki, Ungverjaland, Ísrael
og Bandaríkin ásamt því að Sannir
Finnar í Finnlandi og ADF í Þýska-
landi hafa lýst sig gegn þessari yf-
irlýsingu Sameinuðu þjóðanna.
„Við erum að fara skuldbinda
okkur til þess að setja lög sem
uppfylla ákvæði þessa samnings,“
sagði Jón Þór. Eins og kom fram
að ofan er yfirlýsingin ekki skuld-
binding á neinar lagabreytingar á
íslenskum lögum.
Þegar blaðamaður spurði Jón
Þór frekar út í myndbandið sem
hann sendi, meðal annars hvort
hann þekkti forsögu Evrópuþing-
mannanna sem töluðu á mynd-
bandinu sem hann sendi til DV,
brást hann illa við og vildi ekki
svara þeirri spurningu. Ljóst var
að honum var mikið niðri fyrir.
„Þetta er bara ekki fagmannlegt
sem þú ert að gera núna… Vegna
þessa máls hjá Miðflokknum þá
ertu að leita í dyrum og dyngjum
að öllu sem gæti verið tortryggi-
legt… Þú átt ekkert erindi með
að spyrja mig um einhverja aðra
hluti heldur þá sem ég hef sagt inn
á Alþingi. Fordómar þínir gagn-
vart Evrópubúum eru alveg með
ólíkindum… Viltu ekki bara gera
þetta eins og þið hafið oft gert bara
skálda í eyðurnar, þetta samtal
verður ekki lengra.“ Þegar blaða-
maður spurði hvort hann mætti
ekki spyrja frekar út í myndbandið
sem hann sendi sagði hann: „Á
ég að spyrja þig út í þetta mynd-
band?“ n
Bjartmar Oddur Þeyr Alexandersson
bjartmar@dv.is „Fordómar þínir gagn-
vart Evrópubúum eru
alveg með ólíkindum
Jón Þór Þor-
valdsson.