Dagblaðið Vísir - DV - 07.12.2018, Síða 26

Dagblaðið Vísir - DV - 07.12.2018, Síða 26
26 FÓLK - VIÐTAL 7. desember 2018 Guðrún Dröfn fann upprunann á verndarsvæði n Fjórtán ára frændi hafði frumkvæði að leit n Bíður ákvörðunar ættbálks G uðrún Dröfn Emilsdótt- ir var ættleidd við fæðingu og er 51 árs gömul í dag. Hún kynntist nýverið föð- urfjölskyldu sinni í Bandaríkj- unum en þau eru frumbyggjar af ættbálki sem býr á verndarsvæði í Oklahoma. Guðrún hafði aldrei ætlað sér að leita upprunans en fyrir tilstilli ungs frænda síns hófst vegferðin. Nú hefur hún heimsótt bæði systur sína og frændfólk og myndað náin og góð tengsl. Einnig hefur hún formlega sótt um inn- göngu í ættbálkinn og vonast eft- ir jákvæðri niðurstöðu í upphafi næsta árs. DV ræddi við Guðrúnu um þessa reynslu og þær tilfinn- ingar sem hafa bærst innra með henni í öllu ferlinu. Vel heppnuð ættleiðing Henry Linwood Jackson hét faðir Guðrúnar, úr ættbálknum Otoe- -Missouria. Í ættbálknum eru rúmlega þrú þúsund manns, flestir búsettir í Oklahoma-fylki í Bandaríkjunum. Ættbálkurinn hefur sína eigin stjórn og sitt eigið yfirráðasvæði. Henry var sjómað- ur í bandaríska flotanum og kom til Íslands árið 1966. Guðrún segir: „Hann hitti blóðmóður mína sem varð ólétt í afmælisboði í júlí- mánuði. Hún býr ekki lengur á Ís- landi og þetta er mjög viðkvæmt fyrir hana. Hún hefur aldrei viljað tala mikið um þetta. Hún gaf mig til ættleiðingar og valdi foreldrana vel. Þegar hún var gengin um sex mánuði komst á samband með þeim. Ég er mjög þakklát fyrir það hvernig hún stóð að þessu. Hún setti til dæmis nafn föður míns á fæðingarvottorðið sem varð lykil- atriði fyrir mig þegar ég sótti um að ganga í ættbálkinn.“ Eina vandamálið var að það vantaði millinafnið Linwood. Henry Jackson er mjög algengt nafn í Bandaríkjunum. Fað- ir Guðrúnar gekk almennt undir nafninu Linwood og gata í landi Otoe-Missouria heitir í höfuðið á honum. Frændi Guðrúnar hóf að leita að Henry fyrir mörgum árum síð- an. Ef millinafnið hefði verið með hefði hann að öllum líkindum fundið hann miklu fyrr. Leit öðruvísi út en önnur börn í Vesturbænum Lengi vel hugsaði Guðrún ekki mikið út í uppruna sinn jafnvel þó að útlit hennar væri ekki áþekkt flestum Íslendingum. Guðrún var dekkri á hörund þegar hún var yngri og enginn annar krakki í Vest- urbænum leit út eins og hún. Yngri systir hennar hugsaði meira út í þetta og þær spurningar sem þær fengu um hversu ólíkar þær voru. „Fólk kemur sjaldnast upp að manni sjálfum til að spyrja svona spurninga,“ segir Guðrún. „Það er auðveldara að spyrja einhvern annan. Í eitt skipti þegar við vor- um litlar kom systir mín grátandi heim og sagði að það væri verið að stríða sér út af þessu. Hún leit upp til stóru systur sinnar og skildi ekk- ert í þessu. Þá settust foreldrar okk- ar niður með okkur og útskýrðu allt, mjög fallega.“ Þegar Guðrún var 25 ára hafði eldri bróðir hennar í móðurlegg uppi á henni. Tilvist Guðrúnar hafði verið leyndarmál í þeirri ætt. 28 ára ára komst hún í samband við blóðmóður sína. „Þá vissi ég hvernig þetta allt hefði atvikast og var því ekki með neinar neikvæðar tilfinningar út í blóðmóður mína. Ég var mjög þakklát henni og það gekk auð- veldlega að ganga inn í kærleiks- ríkt samband við hana og þau öll. Krakkar sem eru gefin til ætt- leiðingar eru oft að burðast með mikla höfnun og hafa blendnar tilf- inningar til blóðforeldra sinna. Hjá mér var ekki búið að sverta eitt né neitt.“ Varst þú sjálf fyrir aðkasti sem barn? „Nei, ég var ótrúlega heppin. Ég var í bekk sem var mjög sam- heldinn og ég átti góða vini. Ég hef alltaf verið mjög vinamörg og þetta hefur aldrei truflað mig neitt. En ég var auðvitað meðvituð um útlitið eins og allir krakkar.“ Kristinn Haukur Guðnason Auður Ösp Guðmundsdóttir kristinn@dv.is / audur@dv.is Guðrún Dröfn Kom henni á óvart hvað uppruninn skipti miklu máli.
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.