Dagblaðið Vísir - DV - 07.12.2018, Side 56

Dagblaðið Vísir - DV - 07.12.2018, Side 56
Góður biti 7. desember 2018KYNNINGARBLAÐ REYKJAVÍK RÖST: Það ilmar allt af jólakanil Veturinn er heldur betur mættur á Reykjavík Röst við Gömlu höfnina með heita kanilkaffidrykki, ekta heimagert heitt súkkulaði með gommu af rjóma og heitar súpur og samlokur sem bragð er að. „Það er ótrúlega hátíðleg stemning núna á kaffihúsinu með útsýni yfir forkunnarfagra báta skreytta jólaljósum, bjartan snjókrapa og dúðaða ferðamenn,“ segir Sigurgestur Jóhann Rúnarsson, rekstrarstjóri kaffihússins. Sjarmerandi kaffihús Reykjavík Röst er sjarmerandi kaffihús við Gömlu höfnina í Reykjavík. „Matseðillinn er einfaldur og við reynum eftir fremsta megni að halda verðinu í lágmarki á bæði mat og drykk án þess að tapa gæðum. Á morgnana bjóðum við upp á úrval af bakkelsi, sætabrauði, croissant-samlokur og morgunverðarbakka. Í hádeginu og fram eftir degi bjóðum við upp á ljúffengar heimagerðar samlokur og súpu. Súpan er alltaf vegan og skiptum við reglulega um tegund.“ Hátíðleg hamingjustund Reykjavík Röst er með úrvalsbjóra frá Borg Brugghúsi og gott úrval af léttvíni. Happy Hour er daglega frá kl. 15–19 á bjór, léttvíni og snafs dagsins. Á gleðistundinni er kjörið að grípa í ýmsa afþreyingu á staðnum eins og Jenga eða taka stutta skák. Dýrindis kanilkaffi „Kaffið okkar er ítalskt gæðakaffi frá Lavazza og bjóðum við að sjálfsögðu upp á alla þessa hefðbundnu kaffidrykki. Við erum einnig með æðislegan jólacappuccino með kanilsírópi og þeyttum rjóma og hefur hann verið að renna vel ofan í gesti,“ segir Sigurgestur. Nánari upplýsingar má nálgast á reykjavikrost.is og Facebook-síðu staðarins. Reykjavík Röst er við Gömlu höfnina í Reykjavík að Geirsgötu 5 Sími 552-7777 Netfang: info@reykjavikrost.is. Opið er frá kl. 8.30–23 alla daga. n

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.