Dagblaðið Vísir - DV - 07.12.2018, Page 65
TÍMAVÉLIN 657. desember 2018
H
ákon Sturluson var einbúi
sem bjó á Hjallkárseyri
við Arnarfjörð á síðustu
öld. Líkt og Gísli á Upp
sölum varð hann nokkuð þekkt
ur þegar hann kom fyrir sjón
ir landsmanna í viðtölum bæði í
sjónvarpi og dagblöðum. Eins og
fleiri einbúar var Hákon kynlegur
kvistur með sérstakar skoðanir.
Bjó hann án allra nútímaþæginda
og hafði í sig með sauðfjárbúskap
og refaskytteríi.
Ekki hrifinn af heimsóknum
Það var Ómar Ragnarsson sem
vakti fyrst athygli landans á Há
koni árið 1984 í Stiklum. Hjall
kárseyri var þá eitt minnsta bæj
arstæði á landinu, norðan megin í
Arnarfirði, mitt á milli Hrafnseyr
ar og Mjólkárvirkjunar. Þá heim
sótti Ómar hann með mynda
tökuliði en Hákon kunni því illa.
„Ég er ekki hrifinn af því,“
sagði Hákon um heimsóknina en
brosti þó. Þegar Ómar spurði Há
kon hvort hann væri ekki ánægð
ur með að fjallvegurinn yrði opn
aður í báðar áttir neitaði hann
því. „Það er alveg djöfull. Það er
allur friður búinn.“ Sagðist hann
kunna vel við sig í einverunni
upp til fjalla. „Helst þar sem ég sé
engan.“
Hákon var Barðstrendingur
að uppruna og gjarnan kallaður
Konni og var sum árin á Þingeyri
yfir veturinn. Hann gat þó sjaldn
ast beðið eftir að komast aftur
heim á eyrina þó að húsið þar
væri lítið og hrörlegt bárujárns
hús.
Las ekkert og var sama um
útlendinga
Hákon bjó áður á jörðinni Borg
í Arnarfirði. Var hann þá með
konu að nafni Guðmunda. En
jörðin var tekin eignarnámi þegar
Mjólkárvirkjun var byggð. Var
honum boðið að vera þar áfram ef
hann sinnti mjólkurframleiðslu
fyrir starfsfólk virkjunarinnar. En
hann vildi engar kýr hafa.
Á níunda áratugnum og fram
á þann tíunda, þegar hann var
orðinn aldraður maður, bjó hann
þar án allra nútímaþæginda. Raf
magn, heitt vatn, sími og sjónvarp
var þar ekkert. Sjálfur sagði hann
að það blési og fennti í gegnum
veggina. Hann nýtti þó hitann af
sauðfénu og hundarnir voru hans
félagsskapur.
„Þægindin eru nóg fyrir mig,“
sagði Hákon. Honum sagðist hins
vegar ekkert líða neitt sérstaklega
vel þarna, frekar en annars stað
ar. „Nei og andskoti. Mér líður
bara enn þá verr í kaupstað.“
Eina tæknin sem Hákon hafði
var útvarpstæki. Notaði hann það
einungis til þess að hlusta á veð
urfréttir. Ekkert las hann heldur.
Með öðrum fréttum, innlendum
eða erlendum, fylgdist hann ekk
ert.
„Þetta útlenda kjaftæði. Djöf
ulinn kemur mér það við þó þeir
drepi eitt og eitt kvikindi einhvers
staðar úti í heimi?“
Hákon hafði hins vegar skoð
anir á ýmsum málum. Fannst
honum til dæmis að það ætti
að leggja niður alla stóriðju í
landinu.
„Andskotans vitleysan í
Straumsvík og Grundartanga.
Þeir ættu að vera með þetta
helvíti í eyðimörkum. Mér finnst
að það eigi ekki að vera með þetta
helvíti þar sem að gróður er, þetta
drepur allan gróður. Við eigum
bara að vera nægjusamir eins og
ég. Gamli tíminn var miklu betri
heldur en þessi djöfulsins vit
leysa sem núna er. Mikið betri.“
Læknirinn í sjúkrabörunum
Sem dæmi um sérvisku Hákon
ar þá nefndi hann einn hund
inn á bænum með pomp og
prakt. Var honum kastað í læk
og fékk nafnið Snæbjörn. Þá
gekk hann gjarnan með bréf
pokahatt. Aðeins einu sinni í
viku eldaði hann fyrir sig og
hundana. Þá mjög mikið.
Þrátt fyrir að vera einbúi á
afskekktum stað þá var Hákon
nokkuð víðförull. Hafði hann
meðal annars búið í Reykjavík
um tíma. Endrum og sinnum
hitti hann nærsveitunga sína, á
mannamótum og samkomum.
Til dæmis þegar Vigdís Finn
bogadóttir heimsótti sveitina.
Sagðist hann hafa kosið hana.
Jafnframt sagðist hann hafa
verið mikill samkvæmismaður
á sínum yngri árum og leitað í
glauminn.
„Ætli ég drepist ekki hérna,“
sagði Hákon, þá 63 ára gamall.
„Það er enginn sem bíður eftir
manni hérna. Maður getur lagst
bak við stein og beðið eftir góðu
veðri. Ég hef nú staðið af mér él
en lítið sofið.“ Sagðist hann vilja
láta heygja sig í báti uppi á hól,
eins og fornmenn gerðu.
Hákon var þekkt refaskytta
og skaut hátt í tíu tófur á hverj
um vetri. Tók hann af þeim
skinnin og verkaði þau sjálfur.
Annað skaut hann ekki. Stæka
óbeit hafði hann hins vegar á
minknum. „Hann er viðbjóður,“
sagði hann ómyrkur í máli við
Ómar. „Ég hef nú skotið þá ef þeir
koma í færi. Ég hef skotið fjóra
minka.“
Um það leyti sem Ómar heim
sótti Hákon fékk gamli maðurinn
hjartaáfall. Neitaði hann fyrst um
sinn að fara með sjúkrabílnum til
Ísafjarðar. Eftir þriggja tíma reki
stefnu féllst hann á að fara en sat
frammi í og hafði kindabyssu í
beltinu. Læknirinn sem var með í
för þurfti að liggja á sjúkrabörun
um á leiðinni til baka.
Hákon náði sér og var í nokkur
ár til viðbótar á Hjallkárseyri við
búskap og refaskytterí. Hann lést
þann 3. október árið 1992, sjötug
ur að aldri. Bærinn að Hjallkárs
eyri er nú horfinn sem og húsin
sem þar stóðu. n
Hákon Sturluson einbúi
var kynlegur kvistur
n Engin nútímaþægindi n Ekki hrifinn af heimsóknum
„Djöfulinn
kemur mér
það við þótt þeir
drepi eitt og eitt
kvikindi einhvers
staðar úti í heimi?
Messufall vegna ölvunar
séra Jóns og Sigurðar
Á
rið 1734 var nokkuð
strembið fyrir íslensku
kirkjuna og trúverðug
leika hennar. Tveir
prestar gerðust þá sekir um
að koma fram í guðsþjónustu
mjög ölvaðir. Svo ölvaðir að
þeir ultu niður á kirkjugólfið
og gátu ekki haldið áfram.
Datt og gleymdi að helga
vínið
Jón Þórðarson var prestur á
Söndum til nærri þrjátíu ára.
Hann var mikið skáld og sagð
ur göldróttur en breyskur
mjög. Árið 1719 slapp hann
við dóm fyrir embættisafglöp.
Á allraheilagramessu árið
1734 stóð til að gifta hjón á
Söndum. Séra Jón mætti hins
vegar svo fullur til messunnar
að hann hneig niður við alt
arið og var lagður út af á einn
kirkjubekkinn. Var hann ætíð
kallaður dettir eftir það. Einn
kirkjugestanna þurfti að taka
að sér að halda guðsþjónust
unni áfram og las úr húslestra
bók fyrir salinn.
Þegar því lauk var séra Jón
kominn til meðvitundar aftur
og sagðist geta klárað guðs
þjónustuna. Útdeildi hann
tuttugu mönnum sakramenti
en gleymdi að vígja bæði vínið
og brauðið. Þá gat hann held
ur ekki gift grey hjónaefnin
eftir kirkjunnar reglum. Þau
héldu hins vegar að allt hefði
verið með felldu og hófu að
lifa eins og hjón eftir athöfn
ina. Var séra Jón talinn ábyrg
ur fyrir því.
Séra Jón var kærður fyrir
þetta atvik og um vorið sagði
hann sig frá brauðinu. Fluttist
hann þá í Hokinsdal og bjó þar
út lífið.
Klúðraði jólunum
Séra Sigurður Árnason hét
presturinn sem klúðraði
jólunum fyrir sóknarbörnum
í Landeyjum. Sigurður hafði
verið á Krossi í fjórtán ár og var
talinn drykkfelldur. Í eitt skipti
áður hafði orðið messufall hjá
honum vegna þessa.
Atvikið árið 1734 átti sér
stað í Voðmúlastaðakirkju,
sem var útkirkja frá Krossi. Á
jólanótt messaði Sigurður í
kirkjunni en var svo ölvaður
að hann hrundi út á kórgólfið.
Líkt og í tilviki séra Jóns á
Söndum var Sigurður þá bor
inn á einn kirkjubekkinn til að
sofa úr sér. En Sigurður svaf og
svaf og kirkjugestir þurftu frá
að hverfa án guðsþjónustu. Á
jóladag var hann svo timbrað
ur að hann gat engan veginn
messað þá heldur.
Á þrettándanum var
sóknarfólkið boðað til séra
Ólafs Gíslasonar, prófasts að
Odda, til að svara fyrir atvikið.
Allir sem höfðu verið í mess
unni neituðu að svara próf
asti og reyndist því vandasamt
að kæra Sigurð. Það tókst hins
vegar fyrir rest og var hann
sviptur hempunni árið 1738. n
Stiklur Hákon með
bréfpokahattinn.
Hjallkárseyri Húsin
eru nú öll horfin.
Messuvín Tveir prestar ófærir um að
sinna guðsþjónustu vegna ölvunar.
EIGUM MARGA
LITI Á LAGER
Nánari upplýsingar á
mt.is og í s: 580 4500
HANNAÐ FYRIR
ÍSLENSKT VEÐURFAR
ÁLKLÆÐNINGAR &
UNDIRKERFI