Dagblaðið Vísir - DV - 07.12.2018, Síða 68

Dagblaðið Vísir - DV - 07.12.2018, Síða 68
68 7. desember 2018 E ins og er vitum við ekki til þess að líf sé að finna annars staðar í alheiminum en hér á jörðinni. Margir telja að eina lífið í alheiminum sé hér á jörðinni en öðrum finnst það væg­ ast sagt ótrúlegt enda er alheimur­ inn risastór, svo stór að við vitum ekki hversu stór hann er. Áratug­ um saman hefur verið hlustað eft­ ir merkjasendingum frá vitsmuna­ verum utan jarðarinnar og með hverju árinu eykst þessi leit. En hverju á að leita að? Hvaða um­ merki gæti líf utan jarðarinnar skilið eftir sig þannig að við gæt­ um séð það? Það eru fleiri en ein aðferð til að leita að lífi, sérstaklega vitsmunalífi, sem gæti verið að finna í alheim­ inum. Ef líf er þar að finna getum við vænst þess að það sé í ýmsum formum, allt frá einfrumungum til samfélaga sem eru milljónum eða milljörðum ára eldri en samfélag okkar mannanna. Það gefur eigin­ lega auga leið að við getum ekki notað sömu aðferðir við leit að ein­ frumungum og við leit að háþró­ uðum tæknivæddum samfélögum vitsmunavera. Af þessum sökum verðum við að vita að hverju við erum að leita og hvaða aðferðir við viljum nota. Þá vaknar sú spurning hvort við eigum að veðja á að leita að lifandi verum eða eigum við frekar að leita að samfélögum sem geta gert vart við sig með útvarps­ merkjum, geimförum eða á annan hátt? Flestir telja eflaust að það sé meira spennandi að finna vits­ munalíf utan jarðarinnar en ör­ verur sem synda í sjó á plánetu í órafjarlægð. Það er einmitt þetta sem starf SETI, Search for Extra­ ­Terrestrial Intelligence, snýst um en stofnunin leitar að vitsmunalífi utan jarðarinnar. Fram að þessu hefur leitin byggst á að hlusta eft­ ir útvarpsmerkjum utan úr geimn­ um og stundum hefur verið leitað að lasermerkjum. Á vísindaráð­ stefnu í byrjun árs velti Jill Tart­ er, einn helsti rannsakandi SETI á undanförnum áratugum, því fyrir sér hvort þessar aðferðir dugi til, einar og sér. Skoðun hennar er að SETI snúist í raun ekki um leit að vitsmunalífi því við getum ekki skilgreint hvað vitsmunalíf er. Tækni og greind er ekki það sama Eins og Jill Tarter sagði þá eru það ummerki um tækni sem við leitum að og þar með notum við tækni sem einhvers konar ímynd greind­ ar en vandinn er að það er ekki hægt að segja að tækni og greind séu það sama. Það má til dæmis ímynda sér mjög greind dýr sem lifa í vatni og geta því ekki notað eld sem er einmitt ein af grunn­ stoðum tækni mannkynsins. Leit SETI að lífi utan jarðar­ innar er kannski það sem flestir kannast við í þessum málaflokki en það eru miklu fleiri sem vinna saman að þessu en aðferðirnar eru ekki alltaf þær sömu. Stærsti hluti þessarar leitar og rannsókna snýst um að finna merki um líf á annarri plánetu og væri því tekið fagnandi þótt aðeins fyndist merki um ör­ verur. Það eru aðallega líffræðingar og tæknisinnaðir vísindamenn sem vinna að rannsóknum sem þess­ um. Líffræðingarnir leita að lífs­ merkjum en þeir tæknisinnuðu að merkjum um tækni. Lífsmerki eru öll lífræn um­ merki sem líf sendir frá sér, það gæti til dæmis verið gastegund í andrúmslofti eða lífræn efni á yfir borði plánetu sem, að því er við best vitum, verða aðallega til fyrir tilstuðlan lifandi vera. Hér á jörðinni má nefna súrefni til sögunnar sem dæmi um þetta. Merki um tæki eru ummerki um að tækni sé til staðar. Þetta get­ ur verið ýmislegt fleira en útvarps­ merki. Þar má nefna geimför eða svokallað Dyson­hvolf þar sem heilu sólkerfi hefur verið breytt af vitsmunaverum til að tryggja til­ vist þeirra enn betur. Getur verið erfitt að greina á milli Það getur verið erfitt að greina á milli þess sem er náttúrulegt og tæknilegt. Eitt besta dæmið um það er að 1877 fluttu fjölmiðl­ ar fregnir af því að skurðir væru á Mars og að þeir væru gerðir af vits­ munaverum sem hefðu verið að veita vatni frá pólum Mars niður til þurru svæðanna við miðbaug. Nú vitum við að skurðirnir voru sjón­ villa sem varð til þegar reynt var að sjá smáatriði á lítilli rauðri plánetu í gegnum stóran sjónauka. Það er kannski hægt að brosa að þessu í dag en dæmi úr nútímanum er ekki ólíkt þessu. Fyrir sjö árum uppgötvuðu vís­ indamenn að stjarna í um 1.300 ljósára fjarlægð hegðaði sér undar­ lega. Birtustigið frá henni veiktist um 15 prósent 2011 og 22 pró­ sent tveimur árum síðar. Þetta var of mikið til að hægt væri að skýra þetta með því að pláneta hefði far­ ið fyrir hana og skyggt á hana. Því voru margir sannfærðir um að hér væri um Dyson­hvolf að ræða þar sem vitsmunaverur hefðu beinlín­ is virkjað stjörnuna og byggt stór­ an hlut sem væri á braut um hana. Þetta gat verið mikill fjöldi sólar­ sella sem var á braut um stjörnuna og hefði þá eðlilega skyggt á hana. En mælingar frá því á síðasta ári sýna að hér var um rykský að ræða sem skyggði á stjörnuna. Þannig er auðvelt að fara villur vegar enn þann dag í dag. Það er heldur ekki auðvelt að túlka lífsmerki. Það virðist kannski liggja beinast við að leita að nýrri jörð með bláum höfum, hvítum skýjum og súrefnisríku andrúms­ lofti. En við megum ekki gleyma að jörðin hefur ekki alltaf litið svona út. Hún hefur breyst í gegn­ um tíðina og ef við hefðum séð hana fyrir nokkrum milljörðum ára hefðum við eflaust afskrifað hana sem plánetu þar sem líf gæti þrifist. Þá samanstóð andrúms­ loftið að mestu af köfnunarefni, metan, koltvísýringi og vatni en nær engu súrefni. Þrátt fyrir það var líf hér á jörðinni, örverur sem þoldu ekki súrefni og sumar þeirra framleiddu metan. Svona var jörðin fyrir um það bil tveimur til fjórum milljörðum ára. Þá má ekki gleyma að jörðin hefur að minnsta kosti einu sinni verið alþakin ís og engum hefði eflaust dottið í hug að líf gæti þrifist á slíkum stað. n UMHVERFISVÆNI RUSLAPOKINN www.igf.is SEGÐ U NE I VIÐ P LAST I TÍMAVÉLIN - ERLENT „Fyrir sjö árum upp- götvuðu vísinda- menn að stjarna í um 1.300 ljósára fjarlægð hegðaði sér undarlega Hverju eigum við að leita að? Kristján Kristjánsson ritstjorn@dv.is Leitin að lífi utan jarðarinnar SETI Leitin að lífi á öðrum hnöttum hefur staðið yfir lengi.
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.