Dagblaðið Vísir - DV - 07.12.2018, Side 83

Dagblaðið Vísir - DV - 07.12.2018, Side 83
Fjórar vinkonur hjálpuðust að við að gera þessa sniðugu bók um slím. Í bókinni eru skref fyrir skref leiðbeiningar um það hvernig hægt er að gera slím á auðveldan hátt. Glært slím, froðuslím, smjörslím og jafnvel slím í fánalitunum. Þetta er geggjuð gjöf fyrir alla skapandi krakka. Dásamleg bók með fallegum teikningum og eftirminnilegum persónum sem leiða börn inn í heim töfrandi ævintýra H.C. Andersen. Í bókinni eru 15 sígild ævintýri. Einnig er fáanleg bókin Fegurstu Grimmsævintýri í sama bókaflokki. Ómissandi fjársjóður sígildra ævintýra. Íslenska landsliðið í knattspyrnu spreytti sig á móti bestu fótboltaliðum heims. Hvað mannst þú frá þessum tímamótaviðburði í íslenskri knattspyrnusögu? Litmyndir prýða þessa skemmtilegu spurningabók. Tilvalin gjöf fyrir alla þá sem elska fótbolta! Hahahaha! Híhíhí ... Stútfull bók af frábærum bröndurum. Þetta er bók fyrir þá sem vilja veltast um af hlátri yfir jólahátíðirnar ... og kannski eitthvað fram á nýtt ár! (vonandi með einhverjum hléum samt). Sumir eru ennþá hlæjandi eftir að þeir eignuðust bækur nr. 1 og 2 í bókaflokknum. Veröld Leu hrynur þegar foreldrarnir tilkynna henni að fjölskyldan muni flytja úr litla þorpinu þeirra í stórborgina Montréal. Með aðstoð smáskilaboða og tölvupósta deilir Lea með okkur gleði og sorgum við að aðlagast lífinu í borginni er hún skrifast á við Maríu, bestu vinkonu sína, kærastann Tómas og nýju „vini“ sína. Lögreglufulltrúinn Banks stendur frammi fyrir skelfilegu verkefni. Bein ungrar konu finnast við Hobbs End þegar nærliggjandi á þornar upp. Hún hefur augljóslega verið myrt. Nú þarf Banks að afhjúpa morðingja sem í hálfa öld hafði komist upp með grimmilegt morð. BÓKAHILLUNA Nýjar bækur í

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.