Dagblaðið Vísir - DV - 07.12.2018, Page 84
84 7. desember 2018
R
okkhljómsveitin Vintage
Caravan var stofnuð af fjór-
um strákum frá Álftanesi
fyrir tólf árum. Síðan þá
hafa þeir gefið út fjórar plötur, flutt
til útlanda og komist á samning
hjá einu stærsta útgáfufyrirtæki
þungarokks heims. Meðlimirnir
Óskar, Alexander og Stefán ræddu
við DV.
Eltu drauminn út með Norrænu
Hljómsveitin var stofnuð árið
2006 þegar meðlimirnir voru að-
eins tíu eða ellefu ára gamlir. Þetta
voru þeir Óskar Logi Ágústsson,
Halldór Gunnar Pálsson og Guð-
jón Reynisson. Þannig var skipun
bandsins fyrstu fjögur árin. Árið
2009 lentu þeir í þriðja sæti á Mús-
íktilraunum og tóku fyrstu plötuna
upp í kjölfarið í verðlaunahljóð-
verstímunum. Óskar segir:
„Eftir Músíktilraunir fórum við
að spila á fullu. Þetta var algjört
ævintýri. Ég man að ég fór niður í
bæ og tékkaði á öllum stöðum sem
hægt var að spila á og við bókuð-
um mjög margar helgar. Frá 2009
til 2013 vorum við eiginlega að
spila flestar helgar hérna heima.“
Mannabreytingar urðu árið
2010. Halldór Gunnar hætti og Páll
Sólmundur kom inn. Það ár spil-
aði Vintage Caravan á tónlistarhá-
tíðinni Gærunni sem Óskar seg-
ir að hafi verið stórt skref fyrir þá.
Þeir spiluðu einnig í fyrsta skipti á
Iceland Airwaves. Páll hætti árið
2012 og þá kom Alexander Örn
Númason inn. Það ár gáfu þeir út
sína aðra plötu, Voyage.
„Með innkomu Alexanders fór
bandið á miklu hærra flug,“ segir
Óskar. „Árið eftir fengum við út-
gáfusamning við Nuclear Blast,
sem er risastórt þýskt útgáfufyrir-
tæki.“
Alexander segir:
„Í framhaldi af því endurútgáf-
um við Voyage hjá Nuclear Blast
og fengum bókunarþjónustu til
liðs við okkur. Svo fórum við bara
beint að túra. Við ákváðum að
flytja til Danmerkur svo það værir
auðveldara fyrir okkur að taka tón-
leika úti, af því að við vorum að fá
fullt af svona tilboðum. Allir fyrstu
túrar úti eru þannig að fólk er
mjög mikið að borga með þeim, til
dæmis flugið og fleira. Við svindl-
uðum pínu og fluttum út og vor-
um þar í tvö ár.“
Óskar bætir við:
„Við hættum í vinnunni og
skildum allt eftir til að elta draum-
inn. Við fengum hugmyndina að
þessu á miðvikudegi. Vorum bún-
ir að finna stað og búnir að ákveða
að fara á föstudegi. Mánuði seinna
vorum við farnir út með Norrænu.“
Flókið að eiga kærustur
í tónleikaferð
Árið 2015 tóku þeir upp plötuna
Arrival í félagsheimili í Borgarfirðin-
um. Skömmu síðar hætti Guðjón
sem trymbill og Stefán Ari Stefáns-
son kom inn í stað hans.
Starfið þið alfarið við tónlistina?
Stefán: „Að mestu leyti er tón-
listin forgangsatriði. En svo hefur
maður verið að taka auka störf, sem
barþjónn hér og þar og eitthvað svo-
leiðis.“
Óskar kennir á gítar og Alexand-
er starfar sem sviðsmaður.
Þegar þið eruð á túr og eruð að
spila mikið, náið þið þá að fram-
fleyta ykkur alfarið á tónlistinni?
Alexander: „Við getum það og
það er líka nauðsyn. Það er svo mik-
ið að gera hjá okkur og því erfitt að
fá vinnu þegar maður er í burtu sex
mánuði á ári.“
Óskar: „Caravan er það stór
hluti af okkar lífi að það tekur mest-
allan tímann hjá okkur. Sem er ekki
slæmur hlutur, þetta er skemmtileg-
asta vinna í heimi.“
Fáið þið aldrei leiða á þessu?
Stefán: „Kannski mest þreyttir á
því að búa í ferðatöskunni. Mann
langar að fara heim í sturtu og eitt-
hvað og svo fara út aftur.“
Óskar tekur undir þetta og Al-
exander segir:
„Svo eru bara allir aðrir í
vinnunni eða í skóla og maður
situr heima hugsar: Hvað á ég að
gera núna?“
Hvernig er einkalífið þegar þið
eruð að spila svona mikið, eigið
þið kærustur?
Alexander: „Ég bjó úti með
kærustunni minni, hún er frá
Austurríki. Hún hefur verið mjög
dugleg að mæta á tónleika. Yfir-
leitt er ekki mikið pláss fyrir ein-
hverja auka manneskju í rútunni,
sem er ekki að starfa við neitt hjá
bandinu. Við reynum að forðast
það eins mikið og við getum. Það
er líka erfitt að fókusera og þetta
er hörkuvinna, oft fimmtán tíma
vinnudagar. Þetta er svona „hálft
og hálft long distance“ en það er
alltaf rosalega gott að koma heim
til konunnar.“
Óskar: „Ég er með svona díl, ég
reyni að hringja svona einu sinni
á dag. Tékka hvort allt sé í góðu
og reyna að vera ekki of fjarlæg-
ur. Stundum er það erfitt, til dæm-
is á seinasta tónleikaferðalagi, en
maður lætur þetta ganga.“
Framleiðandinn fékk flogakast
Eftir Arrival tóku við stanslaus
tónleikaferðalög í þrjú ár og Óskar
segir að það hafi tekið verulega
á. Þeir hafi verið orðnir þreytt-
ir og kulnaðir. Þá hafi þeir tekið
sér hálft ár í pásu. Nýjasta platan
kom síðan út á þessu ári og heitir
Gateways. Alexander segir að hún
hafi komið ári á eftir áætlun vegna
pásunnar.
„Ýmsir hlutir gerðu það að verk-
um að það tókst ekki. Fyrst seink-
aði ferlinu um nokkra mánuði og
svo loks þegar við vorum búnir að
taka upp plötuna þá fékk framleið-
andinn okkar, sem ætlaði að fara
blanda plötuna, flogakast undir
stýri. Hann þurfti að fara á spítala
og það seinkaði þessu um aðra sex
mánuði. Platan hefði getað verið
tilbúin miklu fyrr.“
Stefán segir að stíft tónleika-
hald um Evrópu hafi tekið við af
útgáfunni. „Við vorum að koma
frá Rússlandi í fyrradag, við tókum
tvenna tónleika þar, í Péturborg
og Moskvu, sem var bara algjör
snilld.“
Hvar myndu þið segja að ykkar
helsti aðdáendahópur sé?
Stefán: „Aðallega í Þýskalandi
og löndunum þar um kring. Það
eru margir rokk- og metalaðdá-
endur í Þýskalandi. Útgáfufyrir-
tækið okkar er þýskt og alltaf lang-
best fyrir okkur að spila þar.“
Grassering í næstu bylgju
Vintage Caravan treður upp á
Hard Rock Cafe þann 7. desem-
ber næstkomandi. Stefán segir að
þeir muni spila kokteil af öllum
plötunum. Síðast þegar hljóm-
sveitin spilaði hér heima tóku þeir
heila plötu í gegn. Nú fær fólk að
heyra sama prógramm og þeir
spila erlendis.
Finnst ykkur vera mikill mun-
ur á rokksenunni hérna heima og
úti?
Alexander: „Það er alltaf þessi
pínu íslenski fílingur sem loðir við
allt íslenskt tónlistarlíf. Þetta er
miklu nánara, fólk deilir til dæm-
is meira meðlimum. Það er ekk-
ert óalgengt að einn sé í fjórum
eða fleiri böndum, sem maður
sér minna af úti. Í rokksenunni er
mikið af upprennandi böndum.
Mér finnst eins og seinustu ár hafi
ekkert svakalega mikið verið að
gerast, svona á hærra plani, fyr-
ir utan þessi bönd sem hafa ver-
ið í gangi lengi eins og Sólstafi,
Dimmu og Skálmöld. Það virðist
vera einhver grassering sem er að
koma í næstu bylgju.“
Hvað er svo næst á sjóndeildar-
hringnum hjá ykkur?
Óskar: „Það eru að hrúgast inn
fjölmargar hátíðir næsta sum-
ar. Við verðum á Wacken, einni
stærstu metalrokkhátíð í heim-
inum. Svo eru fullt af flottum há-
tíðum sem við förum að tilkynna
bráðum. Eftir sumarið er planið að
fara á stóran túr þar sem við hitum
upp fyrir eitthvert stórt band eða
tökum sjálfir svipaðan túr og við
vorum að gera núna.“ n
TÓNLIST
Vintage Caravan
slær í gegn í Þýskalandi
n Plötuútgáfu seinkaði vegna flogakasts framleiðanda n Fluttu til Danmerkur til að túra„Erfitt að fá
vinnu þegar
maður er í burtu
sex mánuði á ári
Guðni Einarsson
gudnieinarsson@dv.is