Tímarit Máls og menningar - 01.09.2013, Síða 27
B r ó ð i r m i n n L j ó n s h j a r t a 4 0 á r a
TMM 2013 · 3 27
En einmitt þetta var eitt helsta aðfinnsluefni þeirra sem gagnrýndu Bróður
minn Ljónshjarta. Bókin var talin fela í sér flótta frá vandamálum jarðlífsins
og líta jafnvel á sjálfsmorðið sem sérstaka hetjudáð og lausn á öllum vanda.
Einn gagnrýnandinn lýsir sögulokunum þannig:
Það er aðeins ein aðferð til þess að losna við sjúkdóminn, og hún er sú að Snúður litli
bróðir tekur Jónatan á bakið og stekkur fram af hengiflugi og deyr. Astrid Lindgren
hefur þannig ætlað gullinni framtíð hins fatlaða barns stað í heimi hinna dauðu.1
Meðal annarra gagnrýnisatriða var að höfundur drægi upp of einfaldaða
mynd af illskunni og eðli hennar. „Verður ekki bók sem fjallar um baráttu
góðs og ills að rannsaka heiðarlega og af gaumgæfni rót hins illa?“ er spurt
í harðorðri yfirlýsingu svokallaðs Barnabókahóps bókmenntafræðinga í
Gautaborg.2 Rithöfundurinn P.C. Jersild reis upp bókinni til varnar og lýsti
eftir víðsýni, skopskyni og umfram allt virðingu í umfjöllun og greiningu á
listrænum verkum. „Að öðrum kosti er svolítil hætta á að fólk umbreytist
í Nefnd Æðstaráðsins um þjóðfélagslega raunsæjar barnabækur. Það er þá
sérstökum erfiðleikum bundið ef bók fjallar um dauðann. Marx var svolítið
takmarkaður á því sviði.“ Jersild var reyndar fráleitt eini maðurinn sem sá
verðleika bókarinnar, og jafnvel þeir sem gagnrýndu hana viðurkenndu hvað
hún væri vel skrifuð. Sumir þeirra töldu að einmitt það gerði það að verkum
að fólk sogaðist inn í söguna og léti blekkjast af henni.
Ævintýri og veruleiki
Félagslegt raunsæi er reyndar alls ráðandi í upphafsfrásögn bókarinnar.
Drengirnir búa þröngt í einu herbergi og eldhúsi með móður sinni. Hún
vinnur fyrir þeim með saumaskap og virðist ekki hafa orku til að sinna
Karli litla sem liggur í rúminu sínu í eldhúsinu og hóstar og þjáist. Þessi
raunveruleiki kallast sífellt á við ævintýraheiminn sem Snúður hverfur inn
í, en það fer eftir þroska lesandans hversu meðvitaður hann er um það. Þessi
ævintýraheimur er í sjálfu sér mjög skýrt mótaður og raunsæislegur sem
slíkur.
Í Nangijala fær Snúður þegar í stað allar óskir sínar uppfylltar. Hann er
skyndilega laus við sjúkdóminn, frelsaður úr þröngri eldhúskytrunni þar sem
hann hefur legið. Hann hefur ekki lengur skakka fætur heldur þráðbeina, er
sterkur og heilbrigður, og fyrst og fremst hefur hann aftur sameinast bróður
sínum sem hann elskar takmarkalaust. Hann þarf sífellt að ganga úr skugga
um það sem hann reyndar veit, að í Nangijala er allt nákvæmlega eins og
Jónatan hefur sagt honum. Hann nýtur andartaksins og reynir að ýta þeirri
hugsun frá sér að þessi sæla geti tekið enda.
En ekki líður á löngu áður en hinn óttalegi veruleiki lýkst upp fyrir honum
og hann heyrir um hinn dalinn sem skerst inn í fjöllin í Nangijala, Þyrni-
rósadal, og um Þengil frá Karmanjaka sem hefur lagt hann undir sig. Og