Tímarit Máls og menningar - 01.02.2018, Page 12
K r i s t í n Ó m a r s d ó t t i r
12 TMM 2018 · 1
fjalla. Þú býrð eins og í botni skálar, ofan í dal. Seoul er stressandi borg að
búa í, þar er svo margt að gerast og sífelldar breytingar eiga sér stað, en alls
staðar og alltaf sérðu landslag og það er auðvelt að komast upp í fjöllin.
Landið er mjög fallegt. Á haustin þegar laufin skipta litum er dásamlegt að
ganga uppi í fjöllunum. Á vorin springa kirsuberjatrén út og standa í blóma
í viku eða tvær.
Geturðu borið saman þessi samfélög: danskt og kóreskt?
Þau eru mjög ólík. Í Suður-Kóreu ræður beinharður kapítalismi ríkjum
og hlutirnir gerast ofsalega hratt. Á meðan ég bjó þar fór ég til Kaupmanna-
hafnar á sumrin og þegar ég snéri til baka að tveimur mánuðum liðnum
höfðu risið upp nýjar búðir og aðrar horfið í bænum sem ég bjó í. Allt gerist
hratt, líka í litlu bæjunum, staðir fara, nýir koma í staðinn. Fólk býr ekki
við sama velferðarkerfi og hér, það borgar fyrir að fara á spítala og í háskóla.
***
Hver er uppáhaldsmálsverðurinn þinn og uppáhaldsdrykkur?
Sake – hrísgrjónavín – er uppáhaldsdrykkurinn minn og kóreskur matur.
Þar er um margt að velja, skrifaðu bara: bibim bap.
Hvað meturðu helst í fari manneskju? Hvað meturðu mest í fari vina þinna?
Samkennd, meðaumkun.
Hvað meturðu minnst í fari manneskju?
Tilfinningaleysi.
Hverjir eru kostir þínir?
Ég er þolinmóð og einbeitt – öðruvísi hefði ég varla eytt sjö árum í að skrifa
bók um ættleiðingariðnað. Ég hef sjálfsaga og það er gott vilji maður skrifa
bækur og vera sjálfstæður.
Hver er þinn helsti löstur?
Ég hneigist til áráttu, verð auðveldlega gagntekin af ákveðnu þema og af
manneskjum, það getur annaðhvort verið gott eða vont. Málefni ættleiðinga
var þráhyggja mín í sjö ár.
Hvað finnst þér skemmtilegast að gera?
Skrifa, eiga í djúpum samtölum við aðra, skemmta mér og hafa gaman,
vera úti í náttúrunni, ferðast, borða og sofa. Ég nýt grundvallaratriða lífsins.