Tímarit Máls og menningar - 01.02.2018, Blaðsíða 55
101 F l a t e y r i
TMM 2018 · 1 55
Sæbjörg Freyja Gísladóttir
101 Flateyri
Ég bý á Flateyri en er samt ekki þar. Í gær var tiltektardagur á eyrinni, íbúar
söfnuðu rusli og grilluðu í lok dags en ég sat inni og skrifaði meistararitgerð
um þetta sama fólk. Undir lokin fæ ég vonandi meistaragráðu fyrir téða rit-
gerð en fólkið fær ekki neitt. Nema kannski stundarkorns athygli frá þeim
sem lesa ritgerðina og meira rusl til að tína þar sem ég legg ekki hönd á plóg
í samfélagslegum verkefnum. Flateyri og íbúarnir eru viðfang mitt í ritgerð
sem skrifuð er til meistaragráðu í þjóðfræði við Háskóla Íslands. Eyrin og
fólkið hafa líka verið viðföng kvikmyndagerðarfólks og rithöfunda, ferða-
langa og annarra sem langar að vekja athygli á þeim og jafnvel eignast hlut-
deild í slorrómantík forfeðranna um stund.
Þegar ég fór að venja komur mínar aftur til Flateyrar á fullorðinsaldri sá
ég ekki beint fólkið sem býr þar heldur frekar sérkennileg gömul hús, ryð-
bletti, brotna glugga og annað sem mátti fanga með myndavélarlinsu. „Er
þetta bara svona skáldsöguþorp, þar sem hver og einn hefur sína týpu að
gangast upp í?“ spurði ég einn listamanninn sem ég tók viðtal við fyrir rit-
gerðina. Á þeim tíma sá ég Flateyri svona. Utanfrá, eins og skáldsögu eða
listaverk til að gaumgæfa. Ekki innihaldið. Vegna persónulegra aðstæðna
flutti ég á Flateyri sumarið 2014 með syni mína tvo. Ég átti greiðan aðgang
að samfélaginu vegna ættartengsla og sömu sögu má segja um nokkra af
þeim listamönnum sem eiga þar sumarhús. Aðrir lista- og fræðimenn hafa
keypt sér aðgang að samfélaginu í gegnum fasteignir eða fyrirtæki og húsin
sem aðkomufólkið hefur keypt eru oftar en ekki gömul og standa í þeim
hluta þorpsins sem gengur undir nafninu 101 Flateyri í daglegu tali. Lista-
maðurinn sem ég talaði við keypti sér hús á Eyrinni á síðasta áratug og eins
og hann sagði: „Þá var það búið að vera draumur hjá mér að eignast eitthvað
svona, úti á landi. Einhvern stað sem ég gæti farið á og skrifað og unnið.“1
Hann skoðaði hús í Hveragerði, á Stokkseyri og Eyrarbakka en fannst húsin
dýr og staðirnir „dáldið trendí“ eins og hann orðaði það sjálfur. Loks benti
félagi hans honum á hús á Flateyri í grennd við leikskólann en hann er í 101
Flateyri og er nú umkringdur af húsum í eigu ýmissa listamanna, leikstjóra
og leikmyndahönnuða frá Reykjavík og öðrum löndum.
Ég var í svipuðum hugleiðingum og sporum og listamaðurinn þegar ég
ákvað að flytja vestur. Landsbyggðin kallaði og þjóðfræðileg rómantíkin