Tímarit Máls og menningar - 01.02.2018, Page 18
K r i s t í n Ó m a r s d ó t t i r
18 TMM 2018 · 1
Ertu gift, áttu ástvin?
Ég á kærustu. Við erum nýfluttar saman.
Hvort þykir þér skemmtilegra / betra að elska eða vera elskuð?
(Hlær.) Ég held það sé ekki hægt að skilja þetta í sundur.
Ertu hugrökk?
Ég held það – annars hefði ég aldrei farið til Kóreu og heldur ekki búið þar.
Nú ertu nýlega flutt frá Mön og komin aftur til Kaupmannahafnar. Hvar
annars staðar viltu búa? Sveit, staður, borg?
Mig langar að búa á Grænlandi í að minnsta kosti eitt ár og lifa þar hvort
tveggja um sumar og dimman vetur.
Ertu ævintýragjörn, nýjungagjörn?
Ég held ekki – fyrrverandi kærasta sagði einu sinni við mig: Þú lifir svo
ríku innra lífi. Ég held hún hafi haft rétt fyrir sér. Ég þarf ekki mikla örvun
utanfrá, þá ölvast ég bara af örvun. Það er svo nóg um að vera innra með mér
að ég þarf ekki út að skoða hvert skúmaskotið í heiminum.
Áttu þér fyrirmynd?
Ég hef aldrei verið góður aðdáandi. Mér líkar við marga rithöfunda og
listamenn en ég á ekki fyrirmynd.
Ef þú værir ekki þú sjálf hver vildirðu vera?
Tré. Haf. Ekki önnur manneskja.
Hvað er undarlegast við sjálfa þig?
Það kom mér – og öðrum – á óvart að ég skyldi verða fyrir þessari streitu.
Og enn furðulegra þótti öllum og mér mest að ég skyldi ílengjast á þessari
litlu eyju – ég reyndar velti fyrir mér að setjast þar að og verða kúreki. Það
var mjög undarlegt. Ég bjó á afskekktum stað heima hjá mömmu minni og
auðvitað þurfti ég félagsskap svo ég fór að mæta í hesthús skammt frá um það
bil annan hvern morgun og hjálpa þeim við að moka flórinn. Þegar vinnu var
lokið riðum við út. Þetta gæti verið það undarlegasta sem ég hef á ævi minni
aðhafst og kom mér sannarlega á óvart, að ég færi að stunda reiðmennsku og
kynni því svona vel að vera úti í náttúrunni.
Hver er mesta ást lífs þíns hingað til?
Þær eru margar: bækur, fólk, náttúran og nú hestar en ég myndi segja að
hafið sé stærsta ást lífs míns.