Tímarit Máls og menningar - 01.02.2018, Side 43
S e b r a h e s t a r n i r í Ti j u a n a
TMM 2018 · 1 43
í syndaborginni, eins og hún er oft kölluð, þar sem hægt er að sletta ærlega
úr klaufunum, þar sem engar eru hömlurnar eftir því sem margir halda og
bókstaflega allt leyfilegt. Fljótandi vín og vændiskonur á hverju strái.
Það má segja að borgin beri nafn með rentu: Uppruni nafnsins Tijuana ku
vera Tía Juana eða Juana frænka, gestrisna konan sem gaf ferðalöngum hress-
ingu áður en þeir héldu lengra inn í eyðimörkina. Hún bjó á innsta bænum í
dalnum áður en haldið var upp á heiðina. Svo breyttist hún með tímanum í
hina lauslátu Juönu sem tældi til sín karlmenn til þess eins að snúa við þeim
baki, og síðar í vændiskonuna Juönu, lágkúrulega og grófa. Ekki styðja þó
allir fræðimenn þessa kenningu og telja nafnið komið úr máli frumbyggja.1
Hvað sem því líður er þessi kvengerving borgarinnar hluti af hinni svonefndu
myrku goðsögn: að Tijuana sé borg hins ljúfa lífs, vændis og drykkju.
Á höttunum stóð Honeymoon og Kiss me en líka Cisco Kid og Pancho
Lopes, því Tijuana er líka griðastaður bófa og glæpamanna. Útlaginn Cisco
Kid sem drap með köldu blóði varð að mexíkanskri hetju þótt hann væri
reyndar ekki annað en hugarfóstur bandaríska rithöfundarins O. Henry.2
Pancho Lopes var líka harðsvíraður bófi. Hver hefur ekki séð bíómynd þar
sem bandarískir bófar, kúrekar, gangsterar eða mafíósar flýja til Mexíkó,
og oftar en ekki er það til Tijuana. Þar eru engin lög, allt viðgengst. Og nú
á síðustu áratugum hafa bæst við goðsögnina eiturlyfjasmyglarar og glæpa-
gengi. Lag fransk-spænska söngvarans Manu Chau, Welcome to Tijuana, frá
árinu 1998, endurspeglar í hnotskurn þessa ímynd borgarinnar: „Welcome to
Tijuana, tequila, sexo, marihuana“ eða „Velkomin til Tijuana, tekíla, kynlíf,
maríjúana.“3