Tímarit Máls og menningar - 01.02.2018, Page 107
S a m s t æ ð s a k a m á l
TMM 2018 · 1 107
XII. Ef refsileysi er reglan
Hér að framan hafa verið rakin gömul og ný dæmi um meint lögbrot sem
margir vita um og stjórnmálahagsmunir voru og eru bundnir við og voru
samt og eru látin afskiptalaus eða látin fyrnast. Meint brot í tengslum við
einkavæðingu bankanna 1998–2003 fyrntust 2013, nokkrum mánuðum eftir
að Alþingi samþykkti að skipa rannsóknarnefnd í málið. Með því að láta hjá
líða að skipa nefndina gerði Alþingi sig sekt um að hindra óbeint framgang
réttvísinnar sem væri lögbrot ef einstaklingur ætti í hlut frekar en Alþingi.
Einnig voru nefnd til sögunnar nokkur meint brot tengd hruninu 2008 sem
virðast nú vera í kunnuglegum fyrningarfarvegi með vitund og vilja yfir-
valda. Klukkan tifar. Brýnt er að Alþingi og önnur yfirvöld læri af mistökum
fyrri tíðar og láti hefja rannsókn á þessum málum til að girða fyrir fyrningu
meintra brota og snúi með því móti af braut meðvitaðs refsileysis í málum
sem tengjast stjórnmálum og skyldum viðskiptahagsmunum.
Í samtali við Jóhann Hauksson í júní 2009 lýsti Eva Joly refsileysi svo:
„Að vera hafinn yfir lögin er merking þessa orðs. Þetta er stétt manna sem
telur sig ekki þurfa að lúta reglum réttarkerfisins. Hún lítur svo á að lögin
séu ekki ætluð þeim heldur öðrum. Í spilltum löndum mútar þessi stétt dóm-
urum. Meðal þróaðra þjóða á Vesturlöndum mynda menn bræðrareglu innan
þessarar stéttar. Lendi einhver þeirra bak við lás og slá koma reglubræður
á vettvang og vitna um sakleysi eða sjúkdóma og þar með er viðkomandi
sleppt. Ég hef tekið þátt í fjölþjóðlegu starfi lögfræðinga. Við tökum þessu
sem meginreglu og viljum berjast gegn þessari mismunun, refsileysi hinna
ríku og voldugu. Við höfum eitt nýlegt dæmi frá Frakklandi. 15. maí var
kveðinn upp dómur yfir Charles Pasqua, fyrrverandi innanríkisráðherra, en
hann er nú 82 ára. Hann hafði verið ákærður fyrir spillingu og fyrir að hafa
komið undan sem svarar 170 milljónum króna. Þetta var hafið yfir allan vafa.
Ríkislögmaður krafðist eins árs skilorðsbundins fangelsis. Í næsta réttarsal
var verið að dæma 19 ára mann. Hann hafði stolið sem svarar 40 þúsund
íslenskum krónum í matvörum. Viltu giska á hvaða dóm hann hlaut? Jú, eins
árs fangelsi óskilorðsbundið. Íslenska þjóðin er sködduð og ég finn til sam-
stöðu með henni og finn til með henni þegar ég hugsa til afleiðinganna af
bankahruninu. Byrðarnar sem henni er ætlað að bera eru eins og eftir mikla
styrjöld. Það er því mjög mikilvægt fyrir framtíðina að ábyrgðin sé dregin
fram í dagsljósið og að menn verði dregnir fyrir rétt. Meira get ég ekki sagt
um Ísland og hugsanlegt refsileysi að sinni þar sem ég á hlut að rannsókninni.
En ekkert er mikilvægara fyrir Íslendinga nú en að þessi rannsókn gangi alla
leið.“50
Eva Joly hélt áfram: „… ég held að Ísland sé réttarríki. Sannleiksnefndir
eru frekar verkfæri sem grípa þarf til í þróunarlandi. Maður setur ekki á fót
sannleiksnefnd í réttarríki. Þar er stuðst við réttarkerfið sjálft. Maður dregur
fólk fyrir dóm.“51