Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.04.2019, Page 141

Tímarit Máls og menningar - 01.04.2019, Page 141
U m S a g n i r U m B æ k U r 141 að heimili Elísabetar sem hefur verið í eigu fjölskyldu hennar í fjóra ættliði, en þar er mikið af undarlegum skápum, eins og þeim sem áður er lýst. Þegar Elísabet er að farða Kríu fyrir fyrsta skólaballið segir hún henni frá að hún hafi uppgötvað nýjan skáp, sem virðist hafa verið falinn. Inni í skápnum var skrín og í því mynd af stelpu sem eftir nánari eftirgrennslan reynist hafa verið ömmusystir Elísabetar, stúlka sem hvarf þegar hún var tólf ára. Síðan hafði eng­ inn í fjölskyldunni talað um hana og því vissi hvorki mamma Elísabetar né hún sjálf að stúlkan, Sylvía Snæhólm, hefði nokkru sinni verið til. Stelpurnar ákveða að grafast fyrir um málið og sýna mikla útsjónarsemi í því. Sá þáttur sögunnar minnir skemmtilega á gamal­ dags sögur um unglinga að leysa ráðgát­ ur. Það er synd að rekja sögu leyndar­ dómanna frekar, en þó þarf það ekki að koma lesanda á óvart að einhver tengsl eru milli ömmu Gerðu og Sylvíu, enda eru þær af sömu kynslóð og bjuggu báðar í miðbænum. En þó að sagan af eftirgrennslan vinkvennanna sé ákveðið burðarvirki í sögunni snýst hún ekki síður um samskipti ungs fólks í mennta­ skóla, vináttu, nám, ástir, tjáskipti og samskipti, félagslíf og föt. Og allt eru þetta flóknir hlutir, enda veltir Kría fyrir sér hvort hún „ætti kannski að byrja að glósa félagslífið líka“, því nýju vinkonurnar eru vel inni í öllu en hún „alveg græn“ (42). En hægt og hægt blandast hún inn í hópinn og reynir að yfirvinna erfiðleika fortíðarinnar. Vinátta er því rauður þráður í Ljón- inu. Erfiðleikar Kríu á Akureyri höfðu með vináttu og vinslit að gera, og hún þarf því bæði að takast á við spurningar um fyrirgefningu þegar gamla vinkonan bankar uppá, og að læra að treysta aftur: Kríu hitnaði allri að innan. Hún ætlaði varla að trúa því að henni hefði á ein­ hvern óskiljanlegan hátt tekist að vingast við þessar flottu stelpur. Hún reyndi að þagga niður í litlu óþægilegu röddinni sem bærði á sér einhvers staðar aftast í kollinum og sagði að hún ætti manna best að vita að þegar hlutirnir virtust of góðir til að vera sannir, þá væru þeir það yfirleitt. (38–39) Í ljós kemur að það er nokkuð til í þessu – en þó á annan hátt en Kríu hafði órað fyrir. Önnur hlið vináttunnar er svo í for­ tíðinni, en amma Gerða hafði verið vin­ kona Sylvíu, þótt hún vilji ekkert um það tala. Sú vinátta segir síðan aðra sögu, en fjölskylduaðstæður og sam­ félagsstaða Gerðu og Sylvíu var gerólík. Sylvía var af vel stæðu fólki – eins og kemur fram í ættarhúsinu og ættarnafn­ inu, enda er mamma Elísabetar skóla­ meistari Menntaskólans í Reykjavík. Gerða var hinsvegar af efnalitlu fólki þar sem ekkert var sjálfgefið, enda fór hún ekki í Menntaskólann. Mamma Kríu reynir að útskýra þetta fyrir dótt­ urinni eftir að amman bregst illa við tali um Elísabetu og heimili hennar og bendir á að Snæhólm­fjölskyldan sé bæði þekkt og stöndug, meðan Gerða hafi „þurft að berjast fyrir öllu sem hún hefur fengið í lífinu“: „Amma og afi áttu ekki mikla peninga, sérstaklega ekki eftir að hann veiktist. En hún vann og vann, lagði til fjölskyldunn­ ar frá því hún var krakki og menntaði sig líka. […] Hún amma þín hefur aldrei fengið neitt á silfurfati, Kría. Og kannski sárnar henni bara að það sé fólk sem að … tja, hefur kannski ekki þurft að hafa fyrir hlutunum. Fjölskyldan hennar Elísabetar vinkonu þinnar er búin að eiga peninga í margar kynslóðir.“ (37–38)
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.