Orð og tunga - 08.07.2019, Blaðsíða 100
88 Orð og tunga
4.2 Nafngiftir
Ekki virðist mikill munur eftir málum á því hvernig litaorðaforði er
notaður til þess að merkja litbrigði samkvæmt tölfræðilegu greining-
unni, en gerð hans í hverju máli fyrir sig er engu að síður þó nokkuð
mismunandi. Eftir að höfuðheiti eru skráð og greind er hægt að bera
þau saman.
Höfuð-
heiti
Ráðandi
heiti
Hlutaheiti Tökuorð Villa
ÍTM 52 11 26 9 0
ÍSL 26 11 9 8 2
ENS 54 12 37 1 0
Tafla 4: Sundurliðun á orðaforða.
Í Töflu 4 sést fjöldi höfuðheita (einstök heiti smættuð eftir verklagi
EoSS), fjöldi villna (ekkert svar eða ekkert litaheiti), fjöldi hlutaheita
(lita heiti sem eru í grunnin heiti hlutar sem ber einkennandi lit), og
fjöldi tökuorða (orð úr öðru máli en því sem málhafi er prófaður í,
annað hvort algild tökuorð sem eru í almennri notkun, t.d. túrkis, lilla,
eða erlend heiti sem eru nefnd í og með, t.d. turquoise, beige).
Í tölfræðilegri skoðun á nafngiftum er íslenska táknmálið líkast ís-
lenska raddmálinu en þegar orðaforðinn er skoðaður eru tölurnar í
íslenska táknmálinu mun líkari ensku tölunum heldur en tölunum úr
íslenska raddmálinu. Íslenska raddmálið hefur áberandi fæst höfuð-
heiti vegna þess hversu mikið málhafar reiða sig á að búa til sam-
setn ingar úr algengari heitum (t.d. blágrænn, ljósrauður), en ís lenska
táknmálið og enskan hafa svipaðan fjölda höfuðheita. Fjölda höfuð-
heita í íslenska táknmálinu má að einhverju leyti skýra með því að þar
fylgja sumum hugtökum fleiri en eitt tákn eða afbrigði af tákni. Þetta
stafar af því hversu smátt málsamfélagið er (um 300 manns). Við þær
aðstæður verða breytingar oft mjög hraðar og hluti þess orðaforða
sem eldri kynslóðir nota hefur nú þegar horfið og/eða breyst hjá
yngstu málhöfum. Þar af leiðandi nota eldri þátttakendur gjarnan
tákn sem þeir yngri nota ekki og öfugt (Rannveig Sverrisdóttir og
Kristín Lena Thorvaldsdóttir 2016).
Þegar skoðuð eru hlutaheiti sjást mjög svipuð hlutföll. Íslenska
táknmálið og enskan hafa aftur áberandi fleiri hlutaheiti heldur en
íslenska raddmálið. Mismunandi aðferðir eru notaðar til að mynda
þessi hlutaheiti í ensku og íslenska táknmálinu. Í ensku eru hlutaheiti
óspart notuð sem litaheiti óbreytt, svo sem cream ‘rjómi’, salmon ‘lax’
tunga_21.indb 88 19.6.2019 16:56:03