Skessuhorn


Skessuhorn - 20.12.2006, Blaðsíða 16

Skessuhorn - 20.12.2006, Blaðsíða 16
16 A ■ífiM'MUa .01 ílUi JAClUXr/Ulf/. MIÐVIKUDAGUR 20. DESEMBER 2006 —P Hvað eru krakkamir að gera? „Það er alltaf svo rosalega gaman um áramótin, þau eru miklu skemmtilegri en jólin“ sagði lítill drengur við mig um daginn. Marg- ir taka undir þetta og þá ekki hvað síst karlmenn og skiptir þá litlu máli á hvaða aldri þeir eru. Flugeldar eiga hug þeirra allan á þessum tíma og því stærri sem þeir eru því betra. Ákveðin lög gilda um flugelda og þau eru ekki sett að ástæðulausu. Bannað er að selja þeim sem eru yngri en 16 ára vörur sem hætta getur stafað af ef staðið er í minna en eins metra fjarlægð ffá þeim. Þumalfingursreglan er sú að ekki má selja krökkum yngri en 16 ára neitt sem hefur kveikiþráð. Hið sama á við um rokeldspýtur. Ald- ursleiðbeiningar er að finna á öllum vörum sem seldar eru á flugelda- mörkuðum björgunarsveitanna, þ.e. hvaða aldurshópur má með- höndla vöruna, og jafhffamt hvern- ig bera eigi sig að við meðhöndlun hennar. Ef farið er effir þessum leiðbeiningum í einu og öllu stafar lítil hætta af flugeldunum. Því miður stunda mörg böm, og þá sérstaklega strákar, þann hættu- lega leik að breyta eiginleikum flugelda á einn eða annan hátt. Þeir eru teknir í sundur, púðri safnað saman eða annað gert sem e.t.v. gefur þeim aukinn sprengikraft. Verða alvarlegustu slysin oft á tíð- um við þessa iðju þeirra. A bak við hverja flugeldategund liggja ákveðnar prófanir sem tryggja eiga að flugeldurinn sé sem öruggastur. Ef búið er að breyta þeim eiginleik- um er engan veginn hægt að vita hvernig flugeldurinn springur, hversu hratt það gerist eða hver krafturinn verður. Flestir áverkar sem hljótast af svona fikti verða á höndum og andliti þeirra sem ekki hafa náð að koma sér í örugga fjar- lægð þegar flugeldurinn springur. Miklu máli skiptir að foreldrar fylgist vel með bömum sínum á þessum árstíma og vita hvað þau em að fást við. Foreldrum ber að gæta þess að böm séu ekki að sýsla með flugeldavörur án eftirlits full- orðinna. Flest flugeldatengd slys á bömum verða dagana fyrir og eftir áramótin en ekki á sjálfu gamlárs- kvöldinu. Þá era flest börnin með foreldram sínum að skjóta upp og því undir virku eftirliti. Fullorðnir karlmenn era hins vegar í meiri- hluta þeirra sem slasast á gamlárs- kvöld og nýársnótt. Aldrei er of varlega farið í um- gengni við flugelda. Foreldrar verða að sýna gott fordæmi með því að umgangast flugeldana á réttan hátt og fara í hvívetna eftir þeim leiðbeiningum sem fylgja vörunni. Allir ættu að nota flugeldagleraugu, Brunnin hendi eftir flugeldaslys líka þeir sem aðeins era að fylgjast með. Skinn- eða ullarhanskar verja hendur og auðvitað á enginn sem er undir áhrifum áfengis að með- höndla flugelda. Sé farið efdr þess- um einföldu varúðarreglum ættu allir að eiga ánægjuleg og slysalaus áramót. Sigrún A. Þorsteinsdóttir Sviðstjóri slysavamasviðs Slysavamafélaginu Landshj'órg Föndur og tónlist í Laugargerðisskóla Það er ekki hægt að segja að það sé lítið um að vera í Laug- argerðisskóla en í lok nóvem- ber héldu nemendur Steinunar Pálsdóttir tónlistarkennara tónlistardag. Nær allir nem- endur við skólann læra söng eða hljóðfæraleik hjá Steinunni Pálsdóttur þannig að dagskráin var mjög fjölbreytt . Þann 30. nóvember kom Bjorn Thoroddsen ásamt tveimur öðram með tónlist fyrir alla og vöktu þeir mikla athygli nem- enda enda algjörir snillingar á ferð. I nægu hefur verið að snúast hjá kór skólans en hann kom ffam þegar kveikt var á jóla- trénu í Borgarnesi og á að- ventukvöldi í Lindartungu fyr- ir skömmu. Foreldrafélag skólans var með jólaföndurdag þann 6. desember sl. og mættu fjöl- margir foreldrar þá í skólann og föndraðu með börnunum. Þann 14. desember mættu svo allir nemendur skólans í laufa- brauðsgerð, eldri nemar sáu um deigið og að fletja það út og þau yngri skára út munstur í laufabrauðið. Litlu jólin í skólanum verða haldin í dag, þann 20. desember en eftir það byrjar kærkomið jólafrí hjá þessum atorkusömu krökkum. ÞSK Orkuveita Reykjavíkur
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.