Skessuhorn - 20.12.2006, Blaðsíða 69
^nusunu^.
MIÐVIKUDAGUR 20. DESEMBER 2006
69
Vetrarstilla á Vesturlandi
Grœðum saman mein og mein
Jólin, hátíð ljóss og friðar,
ganga nú senn í garð. Allt frá
örófi alda hefur fjölskyldan og
nágrannasamfélagið verið kjöl-
festa þjóðfélags okkar.
Jólin eru hátíð fjölskyldunnar,
börnin koma heim úr skólunum
og sjómennirnir koma í land.
„Gleðileg jól, gleðileg jól,“
hljóma um loftin. Allt er fullt af
gleði og eftirvæntingu. Frá
örófi alda hefur fjölskyldan og
nágrannasamfélagið verið kjöl-
festan og grunneining þjóðfé-
lags okkar. Um hana viljum við
standa vörð.
Hugur okkar leitar því með
einlægri hluttekningu til þeirra
sem misst hafa ástvini með
alltof skyndilegum hætti og eiga
nú um sárt að binda. Ekki að-
eins í gleði heldur einnig á erf-
iðum stundum í lífi hvers og
eins er ómetanlegt að eiga at-
hvarf og geta sótt styrk til fjöl-
skyldunnar og hjálpsamra ná-
granna.
Jólin eru hátíð fjölskyldunnar.
I faðm hennar sækjum við öll
huggun, gleði og styrk til sókn-
ar á nýju ári. Það er hart sótt að
fjölskylduböndunum. Kapp-
hlaupið um hin ytri gæði verður
stöðugt harðara. Jólin eru kær-
kominn tími til að minna á hin
góðu gildi sem ekki verða keypt
fyrir peninga.
Orð þjóðskáldsins Matthíasar
Jochumssonar í ljóðinu „Islands
minni“ eru ef til vill aldrei
brýnni en nú:
Græðwn saman mein og mein,
metumst ei við grannann,
fellum saman stein við stein,
styðjum hverjir annan;
plöntum, v'ókvum rein við rein,
rœktin skapar framann.
Hvað má höndin ein og ein?
Allir leggi saman.
Styrkur hinnar íslensku þjóð-
ar er fólginn í sterkum fjöl-
skylduböndum og góðu ná-
grannasamfélagi. Það eru þessi
gildi sem Vinstri græn hafa að
leiðarljósi í baráttunni fyrir vel-
ferðarsamfélagi til ffamtíðar.
Ég óska lesendum Skessu-
horns og landsmönnum öllum
friðsælla og gleðilegra jóla.
Jón Bjamason,
þingmaður Vinstri grænna
í Norðvesturkjördæmi
Þó svo að tíðin hafi í haust og
framan af vetri verið ffemur mis-
viðrasöm birtum við hér fjórar
myndir sem eiga það sammerkt að
vera teknar á blíðviðrisdögum -
sannkölluðum vetrarstillum. Þess-
ar myndir sýna Haukabergið ný-
komið til hafnar í Grundarfirði
(Sverrir Karlsson), Næturstillu í
Búðardal (Björn A Einarsson),
Kindur á Snæfellsnesi (Þóra Sif
Kópsdóttir og Bæ í Borgarfirði
með Bauluna í baksýn (Björn H
Sveinsson).
MM
þalckar viðsldptavinun
llum gleðilegra jóla
aLftMy■■ j/ 4/' } i
Mw'KJf v'