Skessuhorn


Skessuhorn - 20.12.2006, Blaðsíða 55

Skessuhorn - 20.12.2006, Blaðsíða 55
SBgSSUHöBKi MIÐVIKUDAGUR 20. DESEMBER 2006 55 • l/'rrr-'J///(/ ei/,‘///uu( Umsjón: Ófeignr Gestsson Sparihumarréttur upplagður í forrétt á aðfangadagsköld Þóra Björk Kristinsdóttir með handmálaSan bolla sem einungis er notaður ájólum. Hjá flestum er aðalréttur að- fangadagskvölds jóla óhagganleg- ur frá ári til árs. Börnin venjast ákveðnum rétti sem yfirleitt er ekki eldaður nema þann dag með öllu tilheyrandi. Sá eða þeir sem sjá tun matseldina, hafa náð tök- um á aðalréttinum og vilja þess vegna helst ekki breyta tdl. Oðru máli gegnir um forrétt ef boðið er upp á hann. Þar er allt lausara í reipunum. Eftirréttur er víða „ris a la mang“ eða einfald- lega grjónagrautur með möndlu. Sumsstaðar er grauturinn forrétt- ur. Stundum er möndlunni stungið í skálina, hrært í og til- viljun látin ráða hver fær möndl- una. Stundum er skammtað á diskinn, möndlu komið fyrir á diski þess sem ætlast er til að fái möndlugjöfina, sú ákvörðun síð- an rökstudd með stuttri ræðu þegar möndluhafinn hefur gefið sig ffam. Hvaða aðferð sem er notuð, er stranglega bannað að gefa upp hver er með möndluna, fyrr en allir hafa klárað. Aftur að ákveðnum forrétti. Sparihumarréttur Þóra Björk Kristinsdóttir, hjúkrunarfræðingur til margra ára á Sjúkrahúsi Akraness, hefur borið hitann og þungann af gerð hátíðarmálsverðarins sem snædd- ur er á hennar heimili á aðfanga- dagskvöld. Hún hefur líka útbúið jóla- skreytingu á matarstell og er stellið notað yfir jóladagana. Það er hátíðlegt og hluti þess að jólin eru öðruvísi en aðrir dagar ársins. Hér á eftir er uppskrift og til- laga að eldunarmeðferð á humar- rétti sem forrétti. Humar- rétturinn hefur átt fastan sess á hátíðarborðinu hjá Þóru Björk í a.m.k. 20 ár. Hann er aðeins borinn ffam sem forréttur á að- fangadag. Stranglega er bannað að nota réttinn í annan tíma. Þó er kunn- ugt að á nokkrum heimil- um hefur verið svindlað, þar er þessi réttur aðal- rétturinn á gamlárskvöld en þá með auknu humar- magni. J ólahumarréttur fyrir fjóra - uppskrift 150-800 gr. skelflettur humar 50 gr. smjör Sósa 1/2 Itr. rjómi 2 tsk dill 1 tsk paprikuduft Nokkrir sajfranþræðir 1/2 dl koníak(eða rétt rúmlega, smakkist til) 1 tsk salt (sléttfull) eða smakkist til. Aðferð Humarinn er hafður þíður, til- búinn á diski við pönnuna. Smjörið er brætt á pönnunni en þess gætt að það ofhitni ekki (má ekki brúnast). Humarinn er snöggsteiktur á pönnunni, velt fram og aftur augnablik, þannig að aðeins náist að brúna hann. Gæta verður þess þó að hafa humarinn ekki of lengi á pönn- unni, hann verður þá of þurr og um leið seigur. Munið! Bara augnablik. Humarinn lagður í smurt eldfast mót (gott að loka með álfilmu). Sósan soðin saman á pönnunni. Setjið allt nema kon- íak og salt í sósuna, látdð suðu koma upp. Setjið þá koníak sam- an við. Saltið og þar má bæta við effir smekk. Ofninn þarf nú að vera tilbúinn í 200°C. Látið sós- tma yfir humarinn og bakið í ofn- inum 7-10 mín. Borið fram með ristuðu brauði, sumir velja ffekar snittubrauð því það drekkur fljótar vökva til sín. Það má einnig nota alls konar kryddað brauð. Niðurstaða: Veikleiki uppskriftarinnar er koníakið, víða er vínkeim eða vín- notkun úthýst, sérstaklega mikil- vægt um jólin hjá bindindisfjöl- skyldum. Sé koníakið ekki vandamál á heimilinu er hér um að ræða ein- faldan og fljótgerðan forrétt sem er mjög ljúffengur, sé þess vand- lega gætt að ofsteikja ekki humar- inn. Gefðu þér 5 mínútur þann 22. desember, skoðaðu uppskriffina, útvegaðu hráefhið. Gleymdu ekki að þíða upp humarinn á aðfanga- dag og fyrirhafnarlítill glæsifor- réttur er ffamreiddur af snilld. Gleðilega hátíð! Diskar sem aí sama skapi eru eingöngu nýttir ájólum. T* " gfHI Óskum landsmönnum gleðilegra jóla og farsældar á komandi ári Samfylkingin * 4 «
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.