Skessuhorn


Skessuhorn - 20.12.2006, Blaðsíða 59

Skessuhorn - 20.12.2006, Blaðsíða 59
 MIÐVIKUDAGUR 20. DESEMBER 2006 59 ferlinu við svona aðgerðir, ég hélt engu niðri, ég var viðþolslaus af kvölum í iljunum og í fyrsta skipti frá því að allt þetta hófst, beygði ég af og grét.“ Bloggsíðan kom mér frammúr „Það sem bjargaði miklu fyrir mig þarna úti og í allri þessari vanlíðan, var bloggsíðan, „asdisofurhetja. blogspot.com," sem ég hélt úti meðan á dvölinni í Svíþjóð stóð. Eg velti því fyrir mér yfir daginn hvað ég ætlaði að skrifa, hvernig ég gæti sagt ffá upplifun minni á broslegan hátt og þannig neyddi ég sjálfa mig til sjá jákvæðu punktana við aðstæð- urnar. Einnig var það mikill stuðningur að fá allar hlýju kveðj- umar að heiman sem fólk skrifaði á síðuna og það var iðulega sem ég dröslaði mér frammúr, til þess eins að sjá hvort ef einhver skila- boð hefðu borist." Um ástand sitt skrifar hún á bloggsíðunni: „Eg heft oft verið að benda fólki á mikilvægi þess að vera með góða vírusvörn. Ekki veit ég hvað ég hef verið að þenja mig. Mér var nefnilega tjáð í dag að í líkama mínum væri ekki svo mikið sem eitt hvítt blóðkorn. Það er vissu- lega kominn tími á uppfærslu." Smátt og smátt fór Asdís að hjarna við, en á spítalanum var ýtt snemma á hana að fara á fætur, jafnvel þó henni fyndist hún í engu sérstöku ástandi til þess. A bloggsíðunni er mjög spaugileg frásögn af þeim systrum þar sem því er lýst þegar þær fara sína fyrstu ferð út saman, Sigga Fann- ey keyrandi Asdísi í hjólastól um um- hverfið: „Ekki vildum við systur þó sleppa útivist í dag og ákveðið var að Sigga skyldi aka mér um í hjólastól. Eg hef hingað til á- litið hana öndvegis bílstjóra, en ef prófað væri til hjólastólaaksturs- réttinda stórefast ég um að hún næði prófi. Hún ók nán- ast á hvert einasta tré, hvem stein og ljósastaur í ná- grenni sjúkrahúss- ins. Hún reyndi að afsaka sig með því að hafa gleymt gleraugunum, en ég veit ósköp vel að svona illa sér hún ekki. Við grétum af hlátri. Þess á milli hljóðaði ég: ó, ó, ó og ææ..æ - og hjálp. Þetta var afskap- lega góð æfing fyrir lungun en mikil áreynsla fyrir fmmuskertan munn og kok. Það er hreint glópalán að ég skuli nú sitja hér við óslösuð. Sigga er reyndar ör- lítið sködduð - klemmdi sig á bremsunum!" Að koma heim og meta samfélagið „Sveinn Oðinn, bróðir minn, kom og tók við vaktinni af systur minni. Eg held að þetta hafi reynt rosalega á hana, enda mikið álag og hún viðurkenndi síðar fyrir mér að hún hefði verið orðin mun þreyttari en hún hefði gert sér grein fyrir. Astandið á mér var orðið mun skárra er Sveinn Oð- inn kom út, en þó held ég að hon- um hafi bmgðið hressilega við er hann sá mig. Eg var á miklum steram auk annarra lyfja, öll út- blásin og sköllótt og mér þótti bati minn ganga hægt.“ Asdís lýsir sjálfri sér á þessum tíma á bloggsíðunni: „Eg smyr mig inn í ofurfaktora, geng um með barðastóra hatta, stór sólgleraugu, í síðum skálmum og með langar ermar og lít út eins og geimvera í fáklæddri fólks- mergðinni. Ekki bætir úr að ég er þessa dagana með ofursterakinn- ar; andlitslag eins og Kalli kanína og það er farið að vaxa fínlegt hár um allt andlit. Það er víst ekki óvanalegt eftir meðferð eins og þá sem ég er búin að fara í gegnum og kemur til með að falla af eða það ætla ég rétt að vona. Hárvöxt- ur ofan á höfði er nokkur en litur erm óljós virðist stundum ljóst, stundum rautt og stundum dökkt, jafnvel svart. Eg er farin að ímynda mér ég verði bröndótt." Komið heim „Það var síðan í ágústlok sem ég fékk fararleyfi heim og þrátt fyrir að ég væri því afskaplega fegin, var meðferðinni ekki lokið, enda var það ekki fyrr en um daginn sem ég kláraði síðustu lyfjameð- ferðina." Þegar ég lít til baka þá finnst mér þetta hafa liðið afskaplega hratt og ef þetta hefur kennt mér eitthvað er það að meta samfélag- ið sem við lifum í. Til dæmis fékk ég góða styrki frá félögum hér í Borgarfirði áður ég fór út sem skiptu miklu máli og komu sér afar vel. Reynsla mín af heilbrigð- iskerfinu og öllu því hæfileikaríka og metnaðarfulla starfsfólki sem þar vinnur er mjög góð og ég skynjaði virkilega umhyggju þess fyrir mér sem sjúklingi. Læknar, hjúkranarfræðingar, sálffæðingar og allir aðrir sem ég kynntist í gegnum þessa reynslu voru mér afar góðir og sérstaklega ber ég virðingu fyrir hjúkrunarfræðing- um og starfi þeirra eftir kynni mín af þeim.“ Allir ættu að gefa blóð „Og svo vil ég vil koma því að, að allir ættu að gefa blóð. Eg veit ekki hversu mikið ég hef þurft að fá af blóði, en það skipti sköpum. Eg sé mest eftir því sjálf að hafa aldrei gefið blóð en nú er ég „skemmd vara“ og því þýðir ekk- ert að velta því fyrir sér. Einnig vil ég benda fólki á að skrá sig sem stofnffumugjafa í Blóðbanka Is- lands en slíkt er lífsspursmál og getur bjargað mannslífum. Eg veit ekki hvernig ég endurgeld mínum þýska yfirskeggjaða bjargvætti líf- gjöfina og hvort það er hægt yfir- leitt, en vissulega er það ómetan- legt þegar fólk hikar ekki við að gera slíkan greiða og koma tdl hjálpar á þann hátt,“ segir Asdís Ingimarsdóttir, sannkölluð ofur- hetja, að lokum. KH Umbúðir utanaf lyfjaskammti helgarinnar meðan hún dvaldi í Svíþjóð. „Ég smyr mig inn í ofurfaktora, geng um með harðastóra hatta, stór sólgleraugu, t síðum skálmum og með langar ermar og lít út eins og geimvera ífákladdri fólksmergðinni, “ sagði hún m.a. á blogginu sínu þegar meðferðin stóð sem hæst. Við á&kimv aid&kiptaMniwi akkar gieðilegrayjála ag far&dddar á nýjw curi. Takkjýrir mð&kiptúv á áiimi &em er að líða. Ífvi’ðjíl, átllljáfálk Í(Jipáaio/itiM6kála í HREÐAVATNSSKÁLI C A ¥ É • HBSTAUHANT • SAS Ureðoumtn&&káli aerður lakaður 2 3. de&. -2 6. de&. Opið uerður 27.-29. de& frá 11.00-22:00. Opnað rnrður ajtur á nýjw ári 3. jan. kl. 11:00 Gleðileg jól og farsælt komandi ár Þökkum viðskiptin á árinu sem er að líða HRAÐFRYSTIHUS HELLISSANDS HF Hafnarbakkl 1 ■ 360 Hellissandur ■ Sími: 430 7700 ■ Fax: 430 7701
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.