Skessuhorn


Skessuhorn - 20.12.2006, Blaðsíða 78

Skessuhorn - 20.12.2006, Blaðsíða 78
78 f 'T y 'Tn nr gr TrvA/H TMTlZrHM MIÐVIKUDAGUR 20. DESEMBER 2006 ð^ssunu^: unarfélags Akraness unglingadeild sem hlaut nafnið Unglingdeildin Ames. Nafh sveitarinnar er dregið af útilegumanni þeim sem vann sér það til ffægðar og ef til vill lífs að snúa á leitarmenn í Akrafjalli árið 1750. Ásgeir Kristinsson formaður Björgunarfélags Akraness segir að með starfsemi sveitarinnar vilji fé- lagið stuðla að heilbrigðu félags- starfi meðal unglinga og breikka um leið grunninn að starfi félags- ins. Hann segir að áður hafi inntaka í nýliðastarf miðast við sextán ára aldur en með stofhun sveitarinnar hafi verið ákveðið að færa aldurinn niður í fjórtán ára. Félagið hafi undanfarið fylgst með umræðu um brottfall unglinga úr íþróttastarfi og einnig að sú áhersla sem lögð er á keppni og ffama í íþróttum henti alls ekki öllum. Með stofnun ung- lingadeildarinnar verði til nýr val- kostur í félagsstarfi unglinga. „Við ákváðum að fara hægt á stað í haust og tókum einungis tuttugu imglinga úr m'unda og tíunda bekk grunnskóla inn. Þessir unglingar starfa í einum hópi innan deildar- innar, en vænta má þess að ef við fáum tækifæri til og öflugan stuðn- ing bæjarbúa við aðalfjáröflun okk- ar, flugeldasöluna nú um áramótin þá verði hægt að bæta tveimur til þremur hópum við í þessu ung- lingastarfi okkar næsta haust“ segir Asgeir. Hann segir starf deildarinnar hafa verið fjölbreytt í haust og krakkamir fái einstakt tækifæri að hans mati til þess að kynnast nátt- úm Islands ffá ýmsum sjónarhorn- um auk þess sem þau hafi tekið þátt í hluta af starfi björgunarsveitarinn- ar og nefnir sem dæmi að þau hafi að mestu séð um sölu Neyðarkalls- ins á dögunum á Akranesi. Þá hafi þau fengið kennslu í fyrstu hjálp, ferðamennsku og rötun svo eitt- hvað sé nefnt og vetrarstarfi þeirra ljúki með námskeiði í útivistarskól- anum á Gufuskálum í vor. „Með starfi þessara tæplega 50 unglinga emm við að skapa kraft- mikla ffamtíð í starfi Björgunarfé- lags Akmess,“ segir Asgeir að lok- um. HJ Akraneskaupstaður styrkir MND félagið Jón Pálmi Pálsson bæjarritari á Akranesi afhenti í síðustu viku Guðjóni Sigurðssyni formanni MND félagins styrk að upphæð 150 þúsund krónur. Þetta er í ann- að sinn sem bæjarfélagið styrkdr fé- lagasamtök í stað þess að senda út jólakort. Jón Pálmi sagði það mik- inn heiður að fá að afhenda styrk- inn fyrir hönd bæjarins. Hann sagði baráttu félagsmanna MND félagsins ávallt vekja aðdáun og því vildi bæjarfé- lagið leggja starfi þess lið. Guðjón þakkaði fyrir stuðninginn og sagði hann ómetan- legan. Félagið væri fámennt og því væri stuðningur sem þessi kærkominn. Hann afhenti bæjarfélaginu eintak af „Ljóð í sjóð“ sem er bók og geisladiskur sem félagið gaf út fyrir nokkru með stuðningi íslenskra listamanna. Bókin er fagurlega myndskreytt og á geisladisknum em lög og ljóðaupplestur skáldanna sem gáfu verk sín. I MND félaginu era að jafhaði tuttugu félagsmenn. Fjórir greinast með sjúkdóminn á ári og fjórir kveðja félagið árlega að jafnaði að sögn Guðjóns. MND-Motor No- urone Disease er banvænn sjúk- dómur sem ágerist venjulega hratt og herjar á hreyfitaugar líkamans sem flytja boð til vöðvanna. Af hon- um leiðir máttleysi og lömun í handleggjum, fótleggjum, munni hálsi og svo framvegis. Að lokum er um algera lömun að ræða. Vits- munalegur styrkur helst þó óskadd- aður. Líftími sjúklinga eftir að þeir fá sjúkdóminn er frá 1-6 áram en sumir lifa lengur. Ekki er vitað um orsök sjúkdómsins. Þeim sem vilja fræðast meira um sjúkdóminn eða styrkja starf félags- ins geta farið á heimasíðu félagsins www.mnd.is HJ * / Myndir úr safni Olafs Amasonar Sjómannadagur og bekkjarmynd Áfram heldur Skessuhorn að birta myndir úr safni Olafs Arna- sonar Ijósmyndara. Að þessu sinni birtast tvær myndir. Onnur er frá Sjómannadegi á Akranesi árið 1961 en hin af 10 ára bekk í Bamaskóla Akraness árið 1959. Þeir sem telja sig þekkja ein- hverja á myndunum, eða hafa um þær aðrar upplýsingar, era vinsam- legast beðnir um að hafa samband við Maríu Karen Sigurðardóttur á Ljósmyndasafni Reykjavíkur í síma 563-1790, eða í netfangið ljosmyndasafn@reykjavik.is Þá er minnt á að fleiri myndir Olafs má skoða á myndavef Ljósmyndasafns Reykjavíkur á netinu. MM Piparkökubakstur í algleymingi I öllum jólaundirbúningi desembermánaðar tilheyrir að sjálfsögðu að baka pipar- kökur og það fengu börn í Grunnskólanum á Hvann- eyri, ásamt foreldram sín- um að spreyta sig í síðustu viku. Þar var deigið hnoð- að, flatt út á fjöl, eins og segir í vísunni og mótað í alls kyns kynjadýr. Að end- ingu vora kökurnar bakað- ar og skreyttar með litfögra glassúri, sem einhverja hluta vegna, vildi iðulega rata eitthvað annað en á kökurnar, enda þekkt fýrir að vera fádæma gott á bragðið fyrir unga bakarameistara. A myndinni má sjá Pál Isak Lárasson í miðju pipar- kökuferli. KH Fimm Skagamenn á úrtaksæfingum Fimm leikmenn IA verða í eld- línunni um næstu helgi þegar úr- taksæfingar fara ffam hjá þremur yngri landsliðum karla. Aron Ymir Pétursson, Ragnar Þór Gunnars- son og Ragnar Leósson æfa með liði skipuðu leikmönnum undir 17 ára aldri, Guðmundur Böðvar Guðjónsson æfir með liði skipuðu leikmönnum undir 19 ára aldri og þeir Amar Már Guðjónsson og Jón Vilhelm Akason æfa með liði skip- uðu leikmönnum undir 21 árs aldri. HJ A myndinni eru, taliðfrá vinstri: Jakob Grétar Sigurðsscm, Daði Freyr Guíjónsson, Þórð- ur Helgi Guðjónsson, Smebj'óm Þorri Amason, Sigrún Hjartardóttir, Sigríður Kristín Guðlaugsdóttir, Magnús Benjamínsstm, Þorsteinn Bjarki Pétursson og Snorri Bjömsson. Útskrifað úr aikídonámskeiði Ungmenni sem æft hafa aikido á Kleppjárnsreykjum í vetur luku við prófgráður í íþróttinni 13. desem- ber sl. Þjálfari þeirra er Sigrún Hjartardóttir, Sho Dan. Atta krakkar tóku próf og luku 8 kuy og 7 kuy. Stefnt er að því að ljúka 6 kuy í vor. Æft hefur verið tvisvar í viku á önninni. Gráðunin er þannig að í tölum era sú fyrsta 8 kuy og sú síðasta 1 kuy. Þegar nemendtn hafa náð 1 kuy þá taka þeir próf til að ná eftirfarandi gráðun; Sho Dan, Ni Dan , San Dan og Yo Dan. Sú síðastnefnda er sú æðsta. HHS Kvennakórinn Ymur ásamt stjómanda sínum, Sigríði Elliðadóttur. Jólastjömur Yms í Akranesldrkju Síðastliðið þriðjudagskvöld hélt kvennakórinn Ymur jólatónleika í Akraneskirkju og nefndust tónleik- arnir Jólastjörnur. Efnisval tónleik- ana einkenndist af jólalögum eins og nafhið gefur til kynna. Þarna vora flutt jólalög ffá ýmsum lönd- um, blanda af þekktum lögum eins og Bjart er yfir Betlehem, Litli trommuleikarinn og Yfir fannhvíta jörð, og minna þekktum jólalögum. Stjórnandi Yms er Sigríður El- liðadóttir. I þeim lögum sem spilað var undir á píanó sá Friðrik Stef- ánsson um undirleik. Kristín Sig- urjónsdóttir spilaði á fiðlu, Hólm- steinn Valdimarsson á trompet og Sigrún Þorbergsdóttir spilaði á þverflautu. I tveimur fýrstu lögun- um söng barnakór með sem var búin til eingöngu fýrir þessa tón- leika. MM
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.