Skessuhorn - 20.12.2006, Blaðsíða 14
14
MIÐVIKUDAGUR 20. DESEMBER 2006
Bæjarstjóm unga fólksins
bjartsýn og vill hugsa stórt
Fimmti fundur bæjastjórnar trnga
fólksins á Akranesi var haldinn í
bæjarþingsalnum sl. þriðjudag. Þar
tóku ungmenni í unglingaráði
Akraness sæti í bæjarstjórn. Ung-
lingaráðið er skipað fulltrúum
nemendafélaga grunnskólanna,
nemendafélags Fjölbrautaskóla
Vesturlands á Akranesi og fulltrú-
um félagsmiðstöðvanna tveggja;
Arnardals og Hvíta hússins. Ráðið
starfar sem samráðsnefnd tóm-
stunda- og forvarnarnefndar þegar
um málefni unglinga er að ræða og
vinnur að stefhumótun í æskulýðs-
málum í samstarfi við kennara,
æskulýðsfulltrúa og deildarstjóra
æskulýðsmála.
Strætókort
Bæjarfulltrúarnir ungu voru sjö
að tölu og í upphafi fundar bauð
bæjarstjórinn, Gísli S. Einarsson þá
alla velkomna og benti á að sjaldan
hefði verið jafin fjölmennt á áhorf-
endabekkjunum, sem táknaði
greinilega góðan áhuga á fundin-
um. Krakkamir sem tóku til máls
vom öll skelegg og málefnaleg,
þökkuðu bæjarstjórninni það sem
vel væri gert fyrir unglinga en
bentu einnig á ýmislegt sem mætti
betur fara. Þór Birgisson, nemandi
í Fjölbrautaskóla Vesturlands, stakk
upp á að útvega því unga fólki héð-
an af Skaganum, sem stundar nám
við Háskóla í Reykjavík, strætókort
og þannig mætti stuðla að því að
fólkið héldist ffekar í héraði.
Vilja meiri tíma
að Laugum
Líf Lámsdóttir ffá Grundaskóla
gerði það að umtalsefhi að jákvæð-
ari viðhorf til margra hluta mætti
ríkja og hvatti bæjarfélagið að
hugsa stórt. Láms Björgvinsson úr
Brekkubæjarskóla, fjallaði um dvöl
9. bekkinga að Laugum í Sælings-
dal og benti á að krakkar af Skagan-
um fengu ekki fulla vikudvöl, líkt
og krakkar í öðmm skólum, en þess
í stað skiptu nemendur í Grunda-
og Brekkjubæjarskóla með sér vik-
unni og lagði Láras til að því fyrir-
komulagi yrði breytt, því mikil
ánægja væri hjá þeim með veruna
að Laugum.
Tækifæri til að skapa og
hugsa sjálfstætt
Einnig komu krakkarnir inn á
umhverfismál og endurvinnslu, en
auðheyrt var að þau hafa sterkar
skoðanir á þeim málum og því
hvernig bærinn eigi að líta út. Sig-
urbjörg G. Guðmundsdóttir, frá
félagsmiðstöðinni Arnardal, lagði
til að komið yrði upp skautasvelli í
bænum sem myndi nýtast allri fjöl-
skyldunni en hún gagnrýndi
einnig lítið skipulagt félagslíf fýrir
unglinga á Akranes á sumrin og
kom fram með tillögur að lausn-
um.
A fundinum var komið að þeirri
neikvæðu umfjöllun sem unglingar
fá stöðugt að heyra og er hamrað á
í þjóðfélaginu og bentu á ýmislegt
sem sýndi það gagnstæða. Ung-
lingar væm yfirleitt að standa sig
mjög vel og fullorðna fólkið mætti
vera stolt af ungdómi dagsins en
nauðsynlegt væri að vinna saman
og gefa unglingunum tækifæri á
skapa, hugsa sjálfstætt og sýna
þeim traust.
KH
Tíu íbúðir fyrir fadaða
keyptar í Borgamesi
Oryrkjabandalag íslands, í sam-
vinnu við Félagsmálaráðuneytið
og Svæðisskrifstofu um málefni
fatlaðra á Vesturlandi era um þess-
ar mundir að semja um kaup á tíu
íbúðum í þremur mismunandi
húsum í Borgarnesi fyrir fatlaða
einstaklinga. A skrifstofu um mál-
efni fatlaðra á Vesturlandi er verið
að kynna málið þessa dagana fyrir
væntanlegum íbúum og aðstand-
endum þeirra.
Að sögn Arnheiðar Andrésdótt-
ur sviðssjóra hjá SFV verður afar
ánægjulegt ef þessi áfangi næst,
sem allar líkur era á. „Þörfin fyrir
íbúðarhúsnæði var orðin brýn. Að
mörgu er að hyggja. Sem dæmi
verður að vera aðgengi fyrir fatl-
aða og því verða allar íbúðir að
vera á fyrstu hæð. Ein af íbúðun-
um er hugsuð eingöngu fyrir
starfsfólk, því talað er um að veita
þjónustu allan sólarhringinn. Eins
yrði í sömu íbúð aðstaða fyrir
skammtímavistun fýrir einn ein-
stakling ef t.d. skyndilega koma
upp veikindi í fjölskyldu viðkom-
andi. Þessa úrlausn hefur vantað
sárlega. Fram að þessu hefur nær
eingöngu verið hægt að bjóða upp
á skammtímavistun um helgar.
Skrifstofan kemur til með að veita
alla þjónustu inn í íbúðirnar í sam-
vinnu við Borgarbyggð. Ef samn-
ingar nást munu tvær af íbúðun-
um sérstaklega vera ætlaðar geð-
fötluðum og yrði það hluti af átaki
um málefni þeirra og Félagsmála-
ráðuneytið er með í gangi. Ef allt
fer eins og ætlað er munu íbúar
geta flutt inn í árslok 2007,“ sagði
Arnheiður að lokum.
BGK
F.v. Sveinn Hálfdánarson, Þorvar&ur Magnússon og Vilhjálmur Birgisson undirrita
samninginn.
Vimustaoasamningur
fyrir starfcfólk Fjöliðjunnar
I gær var undirritað samkomulag
milli starfsmanna Fjöliðjunnar;
vinnu- og hæfingarsstaðar annars
vegar og Verkalýðsfélag Akraness
og Stéttarfélags Vesturlands hins-
vegar um kjör starfsmanna Fjöliðj-
unnar. Þar staðfestist formlega að
starfsmenn Fjöliðjunnar eru og
hafa verið fullgildir félagsmenn í
þessum félögum og njóta allra
þeirra réttinda sem þau veita fé-
lagsmönnum. „Allt frá stofnum
Fjöliðjunnar árið 1984 hefur verið
greitt eftir gildandi kjarasamningi
stéttarfélaganna og er þessi undir-
rituð staðfestinga á því sem verið
hefur,“ sagði Þorvarður Magnús-
son, forstöðumaður Fjöliðjunnar
við þetta tilefni.
Formenn félaganna, þeir Vil-
hjálmur Birgisson og Sveinn Hálf-
dánarson lýstu yfir mikilh ánægju
með að þetta samkomulag væri
komið í höfn og ítrekuðu að það
væri staðfesting á gildandi fýrir-
komulagi varðandi launamál starfs-
manna. Lýstu þeir yfir mikilli
ánægju með það starf sem unnið
væri í Fjöliðjunni og hvöttu þeir
starfsmenn til að nýta sér þjónustu
félaganna, svo sem orlofshús og
aðra þjónustu sem í boði væri.
I lokin afhenti Vilhjálmur Birgis-
son, formaður VLFA forstöðu-
manni Fjöliðjunnar ávísun að upp-
hæð kr 100.000 sem viðurkenningu
fýrir það góða starf sem Fjöliðjan
væri að vinna. Þorvarður lýsti því
yfir að þessir fjármunir yrðu notað-
ir tdl skemmtiferðar starfsfólks, en
færu ekki inn í beinan rekstur
Fjöliðjunnar. MM
Burðarstóll fyrir fatlaða í
Grunnskóla Borgamess
Ragnhildur Kristín Einarsdáttir formaiur Rauða kross deildar-
innar afhendir Krisljáni Gíslasyni skólastjára Grunnskóla
Borgamess stólinn góða.
í liðinni viku
var Grunnskólan-
um í Borgarnesi
afhentur sérhann-
aður og útbúinn
burðarstóll fyrir
fatlaða einstak-
linga sem nota á ef
til þess kemur að
rýma þurfi skóla-
húsnæðið tafar-
laust.
Það var Bjarni
K. Þorsteinsson,
slökkviliðsstjóri
Borgarbyggðar
sem gekkst fýrir
því að stóllinn yrði
keyptur. Bjarni
sagðist hafa haft
samband við Olaf
Gíslason & co/
Eldvarnamiðstöð-
in sem flytur þessa
stóla inn og Borgarfjarðardeild
Rauða kross Islands. Fyrirtækið gaf
helminginn og Rauði krossinn það
sem út af stóð. Að sögn Bjarna era
sams konar stólar notaðir víða þar
sem þrengsli væra, meðal annars í
sjúkrabílum. Tveir merm geta auð-
veldlega borið stólinn og einnig
era stór hjól að aftan svo auðvelt er
að komast með hann niður siga.
„Þessi mál þurfa einfaldlega að vera
í lagi og engin þörf að gera vanda-
mál úr einhverju sem tiltölulega
auðvelt er að leysa,“ sagði Bjami að
lokum.
BGK
Misjöfn sýn sveitarstjómamianna á íjárhagsáæthin
Þegar sveitarstjórn Borgar-
byggðar samþykkti fjárhagsáætlun
fýrir árið 2007 bókuðu fulltrúar
meirihlutans og minnihlutans í
bæjarstjórn skoðun sína á áætlun-
inni og þar kemur glöggt fram
hversu misjöfnum augum fulltrúar
einstakra stjórnmálaafla líta á verk
sín. Fulltrúar Sjálfstæðisflokksins
og Borgarlistans, sem mynda
meirihluta bæjarstjórnar, sögðu
meðal annars í sinni bókun að fjár-
hagsáætlunin sýndi „vel þann vöxt
og þá uppbyggingu sem á sér stað í
nýju sameinuðu sveitarfélagi. Þessi
fjárhagsáætlun er metnaðarfull
áætlun sem verður leiðarljós við
rekstur Borgarbyggðar á komandi
ári,“ segir í bókuninni.
Þá kemur fram að þjónustustigið
í sveitarfélaginu sé hátt og sífellt sé
unnið að því að efla og bæta að-
búnað íbúa sveitarfélagsins. „Það
er staðföst trú okkar, sveitarstjórn-
arfulltrúa Sjálfstæðisflokks og
Borgarlista, að í Borgarbyggð sé
gott að búa og vera, mannlíf fjöl-
skrúðugt og blómlegt og framtíðin
er björt. Fjárhagsáætlun Borgar-
byggðar fýrir árið 2007 ber merki
uppbyggingar í vaxandi sveitarfé-
lagi en þó er gætt aðhalds í rekstri
sem leiða mun til aukinnar hag-
sældar á komandi áram.“
Fulltrúar Framsóknarflokksins,
sem sitja í minnihluta lögðu einnig
fram bókun þar sem segir að flokk-
urinn hafi í kosningabaráttunni í
vor lagt fram „raunhæfa stefnuskrá
byggða á bestu fáanlegum upplýs-
ingum um fjárhagsgetu sveitarfé-
lagsins,“ eins og segir í bókuninni.
„Þar var ekki að finna loforðalista
eins og þann sem meirihlutaflokk-
arnir lögðu fram og engin inni-
stæða var fyrir.“ Telja fulltrúarnir
að hvergi sé að finna í áætluninni
merki um að meirihlutinn ætli sér
að standa við þessi loforð og nefha
í því sambandi gjaldfrjálsan leik-
skóla, aukið námsframboð í grunn-
skólum, umhverfismál og margt
fleira. Þetta sé einkennilegt í því
ljósi að tekjur sveitarfélagsins séu
áætlaðar töluvert hærri „en eðli-
legt var að gera ráð fýrir þegar
þessi loforð vora gefin.“
Þrátt fýrir þetta greiddu sveitar-
stjórnarmenn Framsóknarflokks-
ins fjárhagsáætluninni atkvæði sitt.
„Fjárhagsáætlunin er ekki galla-
laus, en hún er með vísan í ofanrit-
að, á margan hátt líkari stefnu-
mörkun Framsóknarmanna en
meirihlutaflokkanna. I ljósi þess
styðja fulltrúar Framsóknarmanna
fýrirliggjandi fjárhagsáætlun.“
m
r /