Skessuhorn - 20.12.2006, Blaðsíða 18
18
MIÐVIKUDAGUR 20. DESEMBER 2006
^WItuLl
.'iKLD/
Hvemig er að eiga
ajnueli á aðfangadag?
Ester Guimarsdóttir,
1942 - Ólafsvík
„Það hefur aldrei verið neitt
mál og þetta hefur einfaldlega
verið eitthvað sem ég hef sætt
mig við og lifað með. Enda er
þetta alvanalegt í fjölskyldunni að
eiga afmælisdaga á ffábrugðnum
dögum, því sonur minn á afmæli
á hlaupársdag og móðir mín á ný-
ársdag," segir Ester. Hún heldur
áffam „Auk þess fékk ég alltaf
auka pakka, en það var enginn
sem reyndi að komast upp með
það að slá tvær gjafir í eina. Eg
fékk líka iðulega að heyra það
þegar ég var yngri að ég væri
jólabarn og það fannst mér að
sjálfsögðu ekki verra. Það eina
sem var erfiðara við að eiga var
kannski að halda upp á afmælið
sem rann óhjákvæmilega saman
við jólauppákomurnar en ég fann
aldrei fyrir öðru nema að það
væri bara skemrntilegt."
Vignir Már Runólfsson,
1976 - Grundarfjörður
Vignir Már Runólfsson á ekki
aðeins afmæli á aðfangadegi
heldur stendur fyrir dyrum
stórafmæli en hann verður þrí-
tugur þann 24. n.k. „Sem barni
fannst mér aldrei slæmt að eiga
afimæli á þessum degi enda var
alltaf passað upp á að halda það
a.m.k. viku fyrir. Það er kannski
ffekar núna sem það er óþægilegt
og strembnara að finna dag þar
sem hægt er hóa fólki saman til
fagnaðar. Eg reyni líklegast að
halda einhverja smá gleði á Þor-
láksmessu þessi jólin til að halda
upp á tímamótin, en það verður
allt í hófi,“ segir Vignir. Hann
segir foreldra sína alltaf gefa sér
afmælisgjöf og oftast í kringum
miðnætti á Þorláksmessu og það
hafi honum alltaf þótt spennandi
en hins vegar slái oft aðrir ætt-
ingjar og vinir í eina gjöf og er
hún oft veglegri fyrir vikið.
Hrönn Þórisdóttir,
1957 - Hellissandi
Hrönn Þórisdóttir á Hell-
issandi, er ein þeirra Vestlend-
inga sem fædd er á aðfangadag
jóla. Hún hefur aldrei haldið af-
mælisveislu sjálf, var eitthvað að
hugsa um slíkt þegar einhverjum
tugnum var náð, en ekkert varð
úr ffamkvæmd. Það var í eina
skiptið sem hún miimist þess að
hafa leitt hugann að því að
kannski væri gott að eiga afmæli á
öðrum degi. Hrönn er alin upp í
sveit og því skiptu afmælisveislur
kannski ekki eins miklu máli og í
kaupstaðnum, hún fann alla vega
ekkert fyrir því. En sem barn var
hún oft vakin að morgni aðfanga-
dags með söng og pakka, sem var
yndislegt að hennar sögn og svo
voru auðvitað pakkar um kvöldið.
Mamma hennar var yfirleitt
með kaffi um miðjan daginn fyrir
affnælisbarnið og fjölskylduna.
Oðrum bömum fannst þetta mik-
il upphefð fyrir hennar hönd að
eiga afmæli á sama dag og Jesús,
en hún fann ekkert fyrir því sjálf.
Þóra Þorgeirsdóttir
1960 - Þverholtum
Borgarbyggð
Þóra Þorgeirsdóttir er alin upp
í sveit og þá var ekki til siðs eins
og nú að bjóða heim öllum
bekknum á afmælisdaginn. En
henni finnst ffábært að eiga af-
mæli á jólunum. Fékk alltaf sínar
afmælisgjafir og systir hennar
vakti hana á morgni afmælisdags-
ins í mörg ár með því að spila
lagið Litla jólabarn.. ,fyíér hefur
alltaf fundist að ég ætti lagið og
auðvitað væri það um mig,“ segir
Þóra hlæjandi. A bemskuheimili
Þóra var margbýlt og um kvöldið
komu afi og amma og aðrir ætt-
ingjar í kaffi sem Þóra upplifði
sem afmæliskaffi.
„Það er í raun hagstætt að eiga
afmæli þennan dag, ekki síður
þegar ég var barn. Eg var laus við
pakkaspenning kvöldsins því að
ég var búin að fá fullt af pökkum
um morguninn. Hin síðari ár hef
ég stundum verið með kaffi á
Þorláksmessu. Bara passað mig á
því að vera alltaf búin að öllu í
tíma, svo ég geti notið þess að
taka á móti gesmm. Þegar ég
varð fertug hélt ég upp á daginn
klukkan 10 að morgni aðfanga-
dags. Það komu yfir fjömtíu gest-
ir og þetta var stórkostlegt." Þeg-
ar Þóra var unglingur fæddist
annað stúlkubarn í sveitinni á að-
fangadag jóla, sú hefur meira að
segja sama fangamark. „Mér
fannst ég alltaf eiga svolítið í
þessari stelpu, þótt við séum ekk-
ert skyldar, bara eingöngu vegna
dagsins," sagði Þóra að lokum.
Mikið keypt
af jólaseríum
á Grundarfirði
I Hrannarbúðinni í Gmndar-
Aðventuskreytingar í Módel á Akranesi.
Fyrirsögnin er tekin úr kunnug-
legum jólasöngtexta; Jólin koma,
eftir Omar Ragnarsson. Jólasvein-
arnir era að tínast til byggða, allt á
kafi í snó, í bænum er ys og þys og
heimilismóðirinn stendur sveitt í
jólahreingerningunum og bakstri.
Á meðan gengur mæðulegur
heimilsfaðirinn um bæinn á milli
búða, svo blankur að hann getur
ekki einu sinni keypt kjól á frúnna
því eins og segir í niðurlagi einnar
vísunnar, „það er svo dýrt að halda
þessi jól.“
Og þrátt fyrir að textinn standi
enn fyrir sínu og eigi enn við í dag,
þ.á.m. um dýrtíðina, era líklega
jólapakkarnir í ár ögn stærri og
íburðarmeiri en þá var talið venju-
legt. Og láti einhver það hvarfla að
sér að einn kjólgopi sé eitthvað til
þess að mæðast yfir skal sá hinn
sami taka það til ítarlegrar endur-
skoðunnar. Að því komst blaða-
maður Skessuhorns er hann tók tal
af forráðarmönnum verslana á
Vesturlandi, spurði þá hvernig
jólavertíðin færi af stað, hvort
heimamenn væra duglegir að láta
sjá sig og hver væri nú vinsælasta
jólagjöfin þetta árið?
Með ýmis
kjöttilboð í gangi
í Samkaup - Urvali í Borgarnesi
er nýráðinn verslunarstjóri Gísli
Sigurðsson. Segist hann eðlilega
ekki geta borið verslunina nú í ár
við þá í fyrra, en tilfinningin þeirra
í Samkaup sé sú að hún sé svipuð
og í fyrra. „Hún er að byrja að fara
af stað þessa vikuna [sagt í síðustu
viku] og ég vonast eftir að helgin
Gísli í Samkaupum.
verði lífleg," segir Gísli. „Verslan-
irnar í Hyrnutorgi hafa hins vegar
ekki verið með samræmdan opn-
unartíma í desember, en það hefði
vissulega verið ákjósanlegt." Gísli
sagði heimafólk aðallega leggja
leið sína til þeirra, ekki yrði hann
mikið var við að utanbæjar- eða
sumarbústaðafólk kæmi á þessum
tíma í verslunarleiðangur. Um
jólagjafirnar sagði hann selja mest
af hvers konar heimilistækjum;
sjónvörp, DVD spilara og mynda-
vélar, en einnig væri hellingssala í
bókum, sem yrði að teljast gleði-
legt. „Eg er bjartsýnn með fram-
haldið, enda erum við með alls
kyns tilboð í gangi, aðallega á kjöti
og býst fastlega við að fólk taki við
sér vegna þess,“ sagði hann að lok-
um.
Ungur drengur að skoðafína gripi hjá Gunnari ogjóhimnu í Hrannarbúðinni.
Stórir skartgripir
og flatskjáir
Guðni Tryggvasson er verslun-
areigandi Models á Akranesi.
Verslun hans býður m.a. upp á
heimilistæki, gjafavöra, blóm og
skartgripi. Guðni sagðist vera í
„himnasælu“ yfir gangi mála og
virtist jólaverslunin ætla að fara
fram úr björtustu vonum. „Það er
búið að vera mikill straumur fólks
hingað til okkar og hin eiginlega
jólaverslun byrjaði strax í nóvem-
ber. Það er mun meira um að vera
hjá okkur núna en í fyrra og gam-
an að sjá hversu margir heima-
menn sækja í að versla í heima-
byggð.“ Aðspurður sagði Guðni
líklega skýringu vera tilkomu fleiri
verslana og uppbyggingu á svæð-
inu, þ.á.m. þeirra sem seldu þekkt
lágvöramerki en þannig væri auk-
inn möguleiki á að halda fólki inn-
an heimabyggðar og fá það til þess
að versla þar meira.
„Hin almenna gjafavara hjá okk-
ur er mjög vinsæl en það sem er að
seljast hvað mest hjá okkur um
þessar mundir, era stórir skart-
gripir og síðan flatskjáir," segir
Guðni. „Flatskjáirnir kosta allt
upp í 500 þúsund og það er tals-
vert um að fólk sé að staðgreiða
þá, þannig að það er áberandi
meiri um peninga í umferð þessi
jólin en í fyrra.“ Guðni segist vera
afar bjartsýnn með framhaldið og
á ekki von á öðra eri straumurinn
haldi áfram, enda aðal verslunar-
vikan eftir.
KH
firði er verslunareigandi Gunnar
Kristjánsson. Verslunin sérhæfir
sig í ritföngum, gjafavöram, tölv-
um og bókum. Þegar Skessuhorn
hafði samband var hann í síðustu
viku var hann afar hress og ánægð-
ur með þá verslun sem þegar var
búin að vera og nánast sleitulaust
síðan frá jólaföstu. Hann sagði
bækur vera að seljast þónokkuð vel
og bjóst við salan á þeim myndi
aukast enn frekar næstu daga. „Það
er ekkert eitt fremur en annað sem
er að fara hjá okkur, heldur er það
frekar jafnt úr öllum flokkum.
Leikföng era vinsæl, gjafapappír
og hefðbundnar jólaseríur, en það
er mikill memaður í skreytingum
hérna í bænum og fólk upptekið af
því,“ segir Gunnar. Vertíðina segir
Gunnar vera svipaða og í fyrra,
hann sé bjartsýnn með framhaldið
og eftir því sem hann skynji sé
heimafólk duglegt að versla í
heimabyggð.
Er nálgast jólin lifiiar yfir öllu, það
er svo margt sem þarf að gera þá
Nokkrir verslunareigendur á Vesturlandi teknir tali