Skessuhorn


Skessuhorn - 20.12.2006, Blaðsíða 65

Skessuhorn - 20.12.2006, Blaðsíða 65
.onjeeA-r. f'ívic aaaMazaci .osHUOAcuxivair/ w saisstfiiiaiaRi___________________ miðvikudagur 20. desember 2006 ___________ _________65 -4 Sumardvöl í sveit og minningar af heiðum ofán Haustlitir Asgeirs Péturssonar, sýslumanns í ævisögunni Haustlitum efitír Asgeir sýslumann Pétursson, sem kom út í haust, er kafli sem segir frá er Asgeir var ungur drengur í sveit í Borgarfirði. Margt er að sjá og upplifa fyrir ungan dreng og reynslan hafði mótandi áhrif á hann. Við birt- um nokkur brot úr kaflanum hér. Millifyrirsagnir og hom- klofar em blaðsins. Fyrsta skipti í sveit Það varð úr, að ég yrði á Hrafn- kelsstöðum um sumarið. Það helsta sem ég man um þessa fyrstu ferð mína að heiman er sú eftir- vænting og spenna, sem upphófst þegar búið var að ákveða brottfar- ardaginn. Farangrinum var pakk- að ofaní trékassa og vom miklar vangaveltur um það hvað taka skyldi með og hvað ekki. Svo var að kveðja strákana í nágrenninu, - sem vorkenndu mér að vera að fara úr leikjunum á Landakotstúni út í óbyggðir handan flóans. Eg mætti þeim efasemdum þeirra með því að segja þeim tröllasögur af silungsveiðum og útreiðartúr- um, sem ég hafði heyrt eldri bræður mína lýsa. Borgaraes var friðsælt sveitaþorp Borgarnes var sveitaþorp, þótt það væri við sjó, því engin var þar útgerðin. Húsin vom flest lágreist og áttu sér sum hver nöfn, sem oft gáfú til kynna uppmna eigend- anna. Túnblettir voru á stöku stað, oft með hlöðnum grjótgörð- um. Kindakofar undir hömram, flestir úr torfi eða bámjárni, bám vott um sjálfsbjargarviðleitni íbú- anna. Þeir drýgðu vinnulaun sín með smábúskap. Þessi byggð var hreinleg og viðfelldin, féll vel inn í umhverfið, hóla, hamra og holt. Og mest var þetta grösugt og gró- ið. Hundgá og hanagal gáfu þess- ari ffiðsælu byggð lífsmark og ríð- andi menn og vagnar dregnir af hestum gáfu samfélaginu svip, sem óneitanlega minnir á „Húsið á sléttunni" eða einhverja alda- mótabyggð. Húsið molnaði niður á fáum áratugum Eg var þrjú sumur á Hra&ikels- stöðum. Síðasta sumarið var ráðist í byggingu stærðar steinhúss á bænum. Eg fékk stöku sinnum þá stöðu að vera kúskur og teyma hesta, sem drógu vagna hlaðna steypumöl og sandi úr Álftá, sem rann þar við túnfótinn. Þetta efni í steypuna hefur verið slæmt, sennilega blandað líffænum efn- um, því húsið entist illa og moln- aði að nokkra leyti niður á fáum áratugum. A Hrafnkelsstöðum var margt hrossa. Góðir reiðhestar og marg- ir dráttarklárar, sem við ungling- amir kölluðtun vagnhesta. Þeir vom reyndar mínir reiðskjótar. Eg fékk oft að fara spölkorn frá bæ og sat þá venjulega annaðhvort Hroll eða Tígul, en svo hétu þeir vagnhestar, sem helst vom heima- við. Það vora skemmtilegar ferðir þótt riðið væri berbakt og ekki sprett úr spori að heitið gæti. En þetta var leiðin til þess að læra að sitja hest, að halda jafnvægi og hafa stjóm á honum. Hin daglegu störf sveitarinnar Fyrstu kynni mín af lífinu í sveit vora mér dýrmæt reynsla. Dag- legt líf var á margan hátt ólíkt borgarlífinu. Ekkert rafmagn, ekki rennandi vam og allt starf snerist um búskap og undirbúning komandi vetrar. Margt nýstárlegt bar fyrir augu, sem mér þótti á- hugavert að fylgjast með. Þannig minnist ég þess að einn góðviðris- daginn kom Olöf húsffeyja út á hlað með allhátt kerald og rjóma- fötu. Þetta var gamall strokkur með bullu og ætlaði hún að fara að strokka smjör. Það hefur trú- lega verið erfitt verk, því strokk- urinn var þungur og þurffi mörg slög með bullunni, þar til í honum skildist. Var þá smjörið hnoðað og saltað í skökur, en áfirnar notaðar með undanrennunni til skyrgerð- ar eða seyddar með í mysuostinn. Heyskapur fór aðallega fram að hætti fyrri tíma, orf og hrífur vora helsm verkfærin. Eg minnist þess að Guðbrandur sagði eitt sinn að merkasti atburður í búskap nítj- ándu aldarinnar hefði verið til- koma skosku ljáanna. Torfi í Ólafsdal flutti þá til landsins. En um þessar mundir var fyrir nokkra farið að flytja inn sláttu- vélar, sem dregnar vora af tveim hesmm, eða þremur. Þær komu fyrst að notum þar sem vora víð- lendar engjar, sléttar frá náttúr- unnar hendi, en raddu sér svo til rúms á næsm áram, efrir því sem túnin vora sléttuð og gerð véltæk. Ingólfur á Hrafnkelsstöðum ann- aðist það vandaverk að temja dráttarhesta, sem nota átti við sláttinn. Hann hjálpaði mörgum bændum í héraðinu við þjálfun hesta til þeirra þarfa. * I sveit að Stafholtsveggj um Um Björn Ólafsson [bóndi á Stafholtsveggjum] er það að segja, að hann var bæði ffóður og minn- ugur og fús að miðla af þekkingu sinni. Marga sunnudaga tók hann mig með sér út um holt og haga, kenndi mér að þekkja fuglana, bæði af útliti þeirra, kvaki og söng. Þetta fannst mér ákaflega skemmtilegt og kveikti þetta ör- ugglega með mér upphafið að því að ég hef verið einlægur fuglavin- ur alla ævi. Síðar á sumrinu próf- aði Björn hvernig gengið hefði að kenna mér á fuglana og spurði þá gjarnan þegar við heyrðum í fugli: „Hvaða fugl var þetta?“ Eg dreg í efa að fróðari leik- maður um náttúraffæði hafi þá fundist í Borgarfirði. Hann átti erfitt með að afla sér ýmissa rita og annarra heimilda, sem hann þráði, en fékk þó bækur að láni til viðbótar hjá vinum sínum og vandamönnum, sem þekktu ffóð- leiksfysn hans. Hann var þó ekk- ert að auglýsa áhuga sinn eða þekkingu. Hógværð og lítillæti stjórnuðu því. Fúsastur var hann að kenna mér um móður jörð þegar við voram tveir einir. Þá talaði hann hægt og rólega. Eg vildi óska að ég hefði hlustað bet- ur. Auk búskapar síns var hann kunnur sem vandvirkur smiður og fékkst einkum við steinhúsasmíði. Ný sundlaug tekin í gagnið Eins og ég drap á var verið að byggja nýja sundlaug, Veggjalaug, rétt innan Laugalands. En gömul torflaug var þar fyrir og fór ég stundum þangað að busla. Hún var full af brunnklukkum og oft vora álar við bominn. Heita vam- ið rann ofanjarðar úr hveram og niður í laugina. Það fór því nokk- uð effir veðri og úrkomu hvort unnt var að nýta hana. Hún var oft of heit. En næsta sumar var nýja laugin fullgerð og lærði ég þá að synda í henni. Sundkennarinn ^ var Jón Brynjólfsson ffá Hlöðu- túni, mikið prúðmenni og góður sundkennari. Hann var bróðir Önnu, seinni konu Sigurðar á Gilsbakka. Mæðuveikin kom með karakúlfénu Mæðiveikin var að byrja í Reyk- holtsdal, Deildarmngu og Kletti haustið 1935. Þá varð vart við talsvert af veiku fé ffá þeim bæjum í leimnum. Þessi sýki barst til landsins með karakúlfé frá Þýskalandi. Karakúl- y. hrúmr kom að Deildarmngu og annar í Bæjarsveit. Það sem vakti fyrir mönnum með þeim inn- flutningi var að framleiða loðskinn af þessu fé, sem nefnd era „astrakan". Því vora mislitar ær, helst svartar og gráar, valdar til að hafa með karakúl-hrútnum í Deildarmngu. Þær drápust fyrst- ar. Því féll granurinn um smitun- ina fljótt á hrútinn. En þrátt fyrir þetta átmðu sumir sig ekki á því strax, að sýkin stafaði ffá hinu innflutta fé. Jafiivel fræðimenn héldu því fram á árinu 1937, að hér væri ekki ný veiki á ferðinni, ý heldur lungnapest, sem hér var löngu landlæg. Pestin varð þjóð- inni fjarska dýr og var loks gripið til niðurskurðar sem faðir minn átti mikinn þátt í að ákveða, en hann var þá landbúnaðarráðherra. t Eg hef alla ævina fagnað því að hafa dvalist í sveit í Borgarfirði á æsku-áranum. Eg kynntist land- inu, gróðri og dýralífi, búskapar- háttum og mannlífi. Nýr tími var að renna upp með vélvæddum landbúnaði og bættum hag og betri vegum. Aukið menningarlíf var að byrja að setja svip sinn á þjóðlífið. Þessi ár áttu effir að koma mér að góðu gagni, þegar ég fór að starfa að málefn-um, sem snertu mannfólkið og at- vinnulífið. Eg hafði kynnst að nokkra leyti því lífi, sem hér var lifað í aldir og var þátttakandi í f breytingum, sem voru að ryðja sér til rúms. Það veitti þarfa yfirsýn og löngun til framfara. ásgeir pétursson haustlitir minningaþættir
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.