Skessuhorn - 20.12.2006, Blaðsíða 30
30
MIÐVIKUDAGUR 20. DESEMBER 2006
Vesturland 2006 í máli og myndum
Kirkjur áttu afimæli
Fagnað var vígsluafmæli nokkurra kirkna á Vesturlandi í
ár. Má þar nefna Akraneskirkju sem nú er 110 ára, Hjarðar-
holtskirkja í Dölum varð 100 ára, Grundarfjarðarkirkja 40
ára og Reykholtskirkja 10 ára. Fjölmennar hátíðir voru
haldnar á öllum þessum stöðum. Myndin er tekin að aflok-
inni hátíðarmessu í Grundarfjarðarkirkju í sumar.
Slátrun hætt þrátt fyrir endurbætur húss
Síðsumars var ákveðið að hætta slátrun í Búðardal þrátt
fyrir að húsnæðið hafi á nýliðnum árum verið tekið í gegn
ffá grtmni til þaks fyrir 66 milljónir króna. Kom þessi
ákvörðun mjög á óvart en nýlega áður hafði KS tekið við
rekstri hússins af Norðlenska. Það er stefna KS að nýta
mannvirkin að hluta til sögunar og þar hafa einnig verið
sviðnir hausar í haust. Myndir sýnir tóma vinnslusali slátur-
hússins.
Vaxtarsamningur undirritaður
Á aðalfundi SSV í haust var Vaxtarsamningur Vesturlands
undirritaður. Unnið hefur verið að samningnum undanfarin
tvö ár. Vaxtarsamningar ganga í grundvallaratriðum út á að
stofna klasa á ákveðnu svæði sem vinni saman. Klasi er land-
fræðileg þyrping tengdra fyrirtækja, birgja, þjónustuaðila,
fyrirtækja í tengdum atvinnugreinum og stofnana á sérhæfð-
um sviðum sem eiga í samkeppni og einnig í samvinnu. At-
hyglisverðasta dæmið um klasa af þessu tagi er samstarf
ferðaþjónustuaðila á Vesturlandi undir nafninu All Senses.
Þar starfa um 20 framsækin ferðaþjónustufyrirtæki saman
m.a. að markaðssetningu og hafa þau þegar náð merkjanleg-
um árangri með samstarfinu.
Lasinn kútter
Ástand Kútters Sigurfara á Akranesi er bágborið og eru nú
uppi áætlunir um að taka skipið niður af stalli sínum við
Garða og flytja erlendis til viðgerðar. Verkið er hinsvegar
kostnaðarsamt og er leitað fjármagns til að ganga af mynd-
ugleik í verkið. Víða er skipið gegnumfúið og er einungis
tímaspursmál hvenær það hrinur undan þunga sínum, verði
ekkert að gert.
SPM valinn frumkvöðull Vesturlands
I haust voru Frumkvöðlaverðlaun Vesturlands veitt í fyrsta
skipti. Tilgangur verðlaunanna er að örva frumkvöðlastarf á
Vesturlandi með því að veita þeim aðila/einstaklingi eða fyr-
irtæki sem talið er skara ffam úr, viðurkenningu fyrir frum-
kvöðlaframtak á Vesturlandi á sviði atvinnumála. Það var
Sparisjóður Mýrasýslu sem hlaut verðlaunin fyrir árið 2005.
Rök nefndarinnar voru m.a. þau að Sparisjóður Mýrasýslu
hefði verið öflugur bakhjarl atvinnulífs og stutt dyggilega
við nýsköpun þess á svæðinu. Auk þess hefði hann verið öfl-
ugt hreyfiafl í umbreytingum og nýrri hugsun í fyrirtækjum
á Vesturlandi. Sparisjóðurinn hafi einnig verið frumkvöðull
í breytingum á eignarhaldi Sparisjóða í landinu.
Runólfur hættir
I haust kom á yfirborðið óánægja með stjórnunarhætti
stjómar og rektors Viðskiptaháskólans á Bifföst. Reynt var að
lægja öldur en upp úr sauð nú í nóvember. Runólfur Agústsson,
sem stýrt hefur skólanum undanfarin ár, sagði þá af sér og nú
hefur háskólastjóm ráðið Agúst Einarsson prófessor í starf
rektors. Runólfs verður hinsvegar minnst fyrir einstaklega mik-
inn ífumkvöðlakraff við uppbyggingu h'tils háskóla í sveit upp í
það að vera ffamsækinn háskóh með margar námsbrautir. Sam-
félagið á Bifföst telur nú hátt í 800 íbúa.
Hvalurinn
I haust var nýr kafli skrifaður í hvalveiðisögu Islendinga.
Sjávarútvegsráðherra gaf veiðileyfi á 9 langreyðar og var
rykið og ryðið dustað af eldgömlum hvaðveiðibáti; Hvali 9
RE-399 og siglt á miðin. Veiðarnar gengu vel miðað við árs-
tíma og var hver hvalurinn af fætur öðmm dreginn að landi
í hvalstöðinni í Hvalfirði, þeir skornir þar og verkaðir á
Akranesi. Fá mál hafa fengið eins mikla umfjöllun í fjölmiðl-
um hér á landi á þessu ári og erlendir fjölmiðlar fylgdust
einnig grannt með. Hvalskurðarmenn frá fyrri tíð mættu á
planið í Hvalstöðinni og tóku sveðjur sínar og skám, rétt
eins og hér á árum áður. Á myndinni eru þeir kumpánar
Kristján Loftsson í Hval hf. og Einar K Guðfinnsson, sjáv-
arútvegsráðherra kampakátir eftir að fyrsti hvalurinr; kom
að landi.
Akranesshöllin vígð
I október var formlega vígt gríðarstórt íþróttahús á Akra-
nesi og hlaut það nafhið Akranesshöllin. Þar með hafa
Skagamenn eignast yfirbyggðan knattspyrnuvöll í fullri
stærð sem vafalaust á eftir að gagnast vel við iðkun ýmissa
íþróttagreina í bæjarfélaginu.
Við óskum viðskiptavinum
okkar og Vestlendingum
öllum gleðilegra jóla og
farsœldar á komandi ári
Landsbankinn
Banki allra landsmanna