Morgunblaðið - 27.06.2019, Síða 45
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 27. JÚNÍ 2019 45
Tilkynningar
Uppboð
Einnig birt á www.naudungarsolur.is.
Framhald uppboðs á eftirfarandi eignum verður háð á
þeim sjálfum, sem hér segir:
Árbær, Rangárþing ytra, ehl. gþ., fnr. 219-6305, þingl. eig. Kolbrún
Sveinsdóttir, gerðarbeiðandi Arion banki hf., miðvikudaginn 3. júlí nk.
kl. 10:00.
Tjaldhólar, Rangárþing eystra, fnr. 219-4649, þingl. eig. Særún
Steinunn Bragadóttir og Guðjón Steinarsson, gerðarbeiðendur
Rangárþing eystra og Íbúðalánasjóður, miðvikudaginn 3. júlí nk.
kl. 11:00.
Káratangi, Rangárþing eystra, fnr. 219-2138, þingl. eig. Bjarni Rúnar
Ingvarsson, gerðarbeiðandi Rangárþing eystra, miðvikudaginn 3. júlí
nk. kl. 11:30.
Lambafell land, Rangárþing eystra, fnr. 234-2037, þingl. eig. Þorsteinn
Njálsson og Ólöf Guðrún Pétursdóttir, gerðarbeiðandi Arion banki hf.,
miðvikudaginn 3. júlí nk. kl. 12:05.
Sýslumaðurinn á Suðurlandi
26. júní 2019
Árneshreppur
Framkvæmdaleyfi
fyrir gerð vinnuvega og efnistöku
vegna rannsókna fyrir Hvalárvirkjun
Hreppsnefnd Árneshrepps samþykkti á fundi
sínum þann 12. júní sl. umsókn VesturVerks
ehf. dags. 4. júní 2019, um framkvæmdaleyfi
fyrir gerð vinnuvega og efnistöku vegna
rannsókna fyrir Hvalárvirkjun. Um er að ræða
14 km2 framkvæmdasvæði sem tekur aðeins
til svæðis umhverfis starfsmannabúðir,
vinnuvegi og efnistökusvæði. Reiknað er
með þremur nýjum efnistökusvæðum í
tengslum við gerð rannsóknarvega, eitt uppi
á Ófeigsfjarðarheiði og tvö á láglendi í og við
Hvalá. Meginefnistökusvæðið verður við
Hvalárósa. Tryggt verður að vinnuvegir raski
ekki vistgerðum með hátt eða mjög hátt
verndargildi og vistkerfum eða jarðminjum
sem njóta verndar skv. 61. gr. laga um
náttúruvernd nr. 60/2013. Leyfið er veitt með
vísan í 13. og 14. grein skipulagslaga nr.
123/2010, s.br. 6. og 7. gr. reglugerðar um
framkvæmdaleyfi nr. 772/2012.
Umrædd framkvæmd er matsskyld sam-
kvæmt lögum nr. 106/2000 um mat á um-
hverfisáhrifum og er fyrirliggjandi álit
Skipulagsstofnunar varðandi mat á um-
hverfisáhrifum framkvæmdarinnar, dags. 3.
apríl 2017, ásamt matskýrslu framkvæmdar-
aðila, dags. 17. nóvember 2016.
Framkvæmdin er að mati hreppsnefndar í
samræmi við aðalskipulag Árneshrepps
2005 – 2025 og deiliskipulag Hvalárvirkjunar
v/rannsókna og álit Skipulagsstofnunar.
Niðurstaða álits Skipulagsstofnunar er að
matsskýrsla VesturVerks uppfylli skilyrði laga
og reglugerðar um mat á umhverfisáhrifum
og að umhverfisáhrifum hafi verið lýst á
fullnægjandi hátt.
Vakin er athygli á því að ákvörðun hrepps-
nefndar um veitingu framkvæmdaleyfis er
kæranleg til úrskurðarnefndar umhverfis- og
auðlindamála, Skúlagötu 21, 101 Reykjavík,
s.br. 52. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Kærufrestur er einn mánuður frá birtingu
þessarar auglýsingar um leyfið, s.br. 2. mgr.
4. gr. laga nr. 130/2011 um úrskurðarnefnd
umhverfis- og auðlindamála.
Umsókn um framkvæmdaleyfi og fylgigögn
eru aðgengileg á heimasíðu Árneshrepps,
www.arneshreppur.is.
Nauðungarsala
Félags – og skólaþjónusta
RANGÁRVALLA- OG VESTUR-SKAFTAFELLSSÝSLU
Suðurlandsvegur 1-3, 850 Hella og Austurvegur 4, 860 Hvolsvelli
Skólaþjónusta Rangárvalla- og Vestur-Skaftafellssýslu, Hvolsvelli, auglýsir
eftirfarandi störf laus til umsóknar:
Stöðu forstöðumanns skólaþjónustunnar sem auk stjórnunar stofnunarinnar, sinnir einnig að hluta
sérkennsluráðgjöf í grunnskólum á svæðinu. Krafist er menntunar í sérkennslufræðum auk almennra
kennsluréttinda og farsællar reynslu á sviði kennslu/sérkennslu í grunnskóla. Menntun og reynsla á sviði
stjórnunar og kennsluráðgjafar í grunnskólum er æskileg, auk réttinda á helstu greiningartæki sem notuð
eru til að greina námserfiðleika nemenda á því skólastigi. Um er að ræða 100% starf.
Stöðu kennsluráðgjafa í grunnskólum. Leitað er að ráðgjafa í sérkennslu og almennri kennslu. Krafist er
menntunar á sviði sérkennslu auk almennra kennsluréttinda og farsællar reynslu af kennslu/sérkennslu í
grunnskóla. Reynsla af kennsluráðgjöf er æskileg, auk réttinda á helstu greiningartæki sem notuð eru til að
greina námserfiðleika nemenda í grunnskólum. Um er að ræða 50 - 100% starf.
Skólaþjónustan veitir tíu leik- og grunnskólum á svæðinu lögbundna sérfræðiþjónustu. Við stofnunina
starfar öflug liðsheild sérfræðinga sem samanstendur af forstöðumanni, kennsluráðgjafa, leikskólaráðgjafa,
náms- og starfsráðgjafa og sálfræðingi. Sérfræðingar skólaþjónustunnar eiga í nánu og góðu samstarfi við
starfsfólk félagsþjónustunnar með heildarhagsmuni barna og unglinga að leiðarljósi.
Leitað er að áhugasömum og jákvæðum einstaklingum sem búa yfir afbragðsgóðri samskiptahæfni, sjálf-
stæði í vinnubrögðum og sveigjanleika og frumkvæði í starfi.
Laun og starfskjör eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og Skólastjórafélags
Íslands vegna starfsmanna á skólaskrifstofum.
Umsóknarfrestur er til 15. júlí nk., en viðkomandi þurfa að geta hafið störf sem fyrst.
Umsóknir ásamt náms- og starfsferilsskrám berist á netfangið skolamal@skolamal.is, eða í pósti
á Skóla þjónusta Rangárvalla- og Vestur-Skaftafellssýslu, b.t. Eddu G. Antonsdóttur forstöðumanns, Austur-
vegi 4, 860, Hvolsvelli.
Nánari upplýsingar veita Edda í netfanginu edda@skolamal.is eða í síma 862 7522 og Lilja Einarsdóttir
formaður stjórnar Byggðasamlags um félags- og skólaþjónustu í netfanginu lilja@hvolsvollur.is eða í síma
863 8282.
Raðauglýsingar
Ánægðir viðskiptavinir eru
okkar besta auglýsing
Sérfræðingar í
ráðningum
lind@fastradningar.is
mjoll@fastradningar.is
FAST
Ráðningar
www.fastradningar.is
ÁSKRIFTASÍMI
569 1100