Morgunblaðið - 27.06.2019, Blaðsíða 42

Morgunblaðið - 27.06.2019, Blaðsíða 42
       atvinna@mbl.is • Sölufulltrúi • Richard Richardsson, richard@mbl.is, 569 1391 Við leitum að jákvæðum og metnaðarfullum einstaklingi til að bætast í hóp öflugra starfsmanna í heildsölu fyrirtækisins. Lögð er áhersla á jákvætt hugarfar og metnað við að veita framúrskarandi þjónustu. Starfið felst aðallega í þjónustu og sölu til rafvirkja, rafverktaka, byggingaraðila og hönnuða. Hæfnikröfur: • Iðn- eða tæknimenntun sem nýtist í starfi • Þekking á rafmagnsvörum og lýsingarbúnaði • Rík þjónustulund og lipurð í mannlegum samskiptum • Stundvísi Einungis reyklausir einstaklingar eldri en 25 ára koma til greina og þarf viðkomandi að hafa hreint sakarvottorð. Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst. Um framtíðarstarf er að ræða. Umsókn ásamt ferilskrá skal senda á atvinna@rafkaup.is fyrir 6. júlí 2019. Rafkaup er þjónustufyrirtæki sem sérhæfir sig í sölu og þjónustu á lömpum, lampa- búnaði og rafmagnsvörum. Markmið félagsins er að vera ávallt í fremstu röð varðandi þjónustu til viðskiptavina sinna og markaðssetningu á þeirri vöru sem fyrirtækið selur. Sölumaður í fagverslun • Gott skipulag • Gott vald á íslensku og ensku • Kurteisi • Snyrtimennska Landsnet | Gylfaflöt 9 | 112 Reykjavík | Sími 563 9300 | landsnet@landsnet.is | www.landsnet.is VILTU VERA MEÐ Í SNJALLRI FRAMTÍÐ? Sérfræðingur í reikningshaldi Starfið er á fjármálasviði og innan teymis reikningshalds þar sem sérfræðingur í reikningshaldi vinnur að fjölbreyttum verkefnum. Starfssvið • Þátttaka í ársfjórðungslegum uppgjörum • Gerð mánaðarlegra uppgjöra og tengd verkefni • Umsjón með verkbókhaldi • Þátttaka í öðrum verkefnum á sviði reikningshalds Menntunar- og hæfnikröfur • Menntun sem nýtist í starfi s.s. viðskiptafræði. Framhaldsmenntun er kostur • Reynsla af uppgjörum skilyrði auk haldbærrar reynslu af verkbókhaldi • Þekking á skattalögum og alþjóðlegum reikningsskilastöðlum • Mjög góð þekking og reynsla af notkun upplýsingakerfa, þekking á Dynamics AX kostur • Reynsla af greiningarvinnu og góð þekking á Excel • Drífandi hugur og frumkvæði • Sveigjanleiki og geta til að takast á við tímabundið álag Við erum að leita að snjöllum einstaklingi til að starfa með okkur á fjármálasviði. Hjá okkur færð þú góða vinnufélaga, krefjandi verkefni, gott vinnuumhverfi, tækifæri til þróunar og góðan stuðning í starfi. Umsóknarfrestur er til og með 14. júlí 2019. Umsjón með ráðningu, Kristín Halldórsdóttir, yfirmaður reiknings- halds, kristinh@landsnet.is og Valka Jónsdóttir mannauðsstjóri, sími: 563-9300, netfang: mannaudur@landsnet.is. Umsækjendur eru beðnir um að sækja um starfið á heimasíðu Landsnets, www.landsnet.is. Umsóknum þarf að fylgja ítarleg starfsferilskrá og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og rökstuðningur fyrir hæfni viðkomandi í starfið. Við vinnum fyrir þig Við erum þjónustufyrirtæki – við vinnum fyrir þig í takt við samfélagið og höfum sett okkur það markmið að tryggja örugga afhendingu á raforku til framtíðar. Við viljum vera eftirsóknarverður vinnustaður þar sem umhyggja og öryggi er haft í hávegum. Þannig sköpum við góðan vinnustað með spennandi verkefnum, með gildin okkar – samvinnu, ábyrgð og virðingu – að leiðarljósi. www.hagvangur.is FRÆÐSLA OG ÞJÁLFUN HJÁ HAGVANGI FYRIR FYRIRTÆKI OG EINSTAKLINGA Skólamatur ehf. leitar að metnaðarfullum og skipulögðum rekstrarstjóra. Rekstrarstjóri starfar náið með öðrum stjórnendum fyrirtækisins. Leitað er að einstaklingi sem býr yfir frumkvæði, metnaði og vilja til nýsköpunar. Rekstrarstjóri þarf að búa yfir framúrskarandi leiðtogafærni, samskiptahæfileikum og hafa styrk til að taka ákvarðanir og vinna undir álagi. Helstu verkefni · Ábyrgð á framleiðsluáætlunum · Ábyrgð á skipulagi framleiðslu · Ábyrgð á viðhaldi og endurnýjun tækja og búnaðar · Innkaup og samningagerð · Umsjón lagerbókhalds · Kostnaðareftirlit · Sala og reikningagerð · Þátttaka í stefnumótun og markmiðasetningu Hæfniskröfur · Reynsla og/eða menntun sem nýtist í starfi · Miklir samskipta- og skipulagshæfileikar · Framúrskarandi þekking og færni á upplýsingakerfum sem nýtast í starfi · Sjálfstæði og frumkvæði · Lausnamiðuð hugsun · Afburða leiðtoga- og stjórnunarhæfni · Reynsla af stjórnun Umsókn fylgi starfsferilsskrá ásamt kynningarbréfi. Umsóknarfrestur er til og með 16. júlí 2019. Fyrirspurnir um starfið og umsóknir berist til Fannýjar Axelsdóttur, mannauðsstjóra, skolamatur@skolamatur.is. Rekstrarstjóri Skólamatur ehf. er fjölskylduvænt fyrirtæki sem býður upp á ferskan, hollan og næringaríkan mat - eldaðan frá grunni. Fyrirtækið þjónustar um fimmtíu mötuneyti á suðvesturhorni landsins og eru starfsmenn þess rúmlega eitthundrað.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.